Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.1935, Blaðsíða 6
234
ríku. Fyrst er þar mynd af Zeppe-
lin-verksmiðjunum í Friedrichs-
hafen, síðan flugmynd af hinni
gömlu Bodensee-borg, svo kemur
yfirlitsmynd frá Spáni, kerruasni
í Kataloníu, fiskibátur, sem er að
lenda, albatrosar, eyjan Ilíza,
flugfiskur, eyjan Madeira. Mynd-
ir frá strönd Afríku eru margar.
Þar sjest grenjandi ljón á eyði-
mörku, Svertingjakonur, bambus-
kofar og sjerkennilegur seglbát-
ur frá Palmaströnd. Fluginu yfir
Atlantshaf er lýst með ýmsum
skemtilegum myndum: hákarl, sem
klýfur sjávarflötinn, hinir sjald-
gæfu freigátufuglar og eyjan
Fernand da Noronha. Svo sjest
Brasilíuströnd og ýmsar myndir
þaðan: Jangada-floti, frumskógur
með marglitura páfagaukum og
fögrum fljettijurtum. Seinast
koma flugmyndir af Pernambuco
og Rio de Janeiro. Með því að
horfa á vegginu, geta farþegar
jafnan vitað hvað þeir geta vænst
að sjá, ef þeir ganga út á skemti-
þilfarið.
f samkvæmissalnum eru sögu-
legar myndir frá ferðum yfir At-
lantshaf. Þar sjest fyrst hið lít-
ilfjörlega skip Maghellans (um
1521) og skip Cooks (1777) og
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
myndirnar enda á hinum stóru
Atlantshafsskipum, sem nú keppa
um „bláa bandið“.
En það er eigi aðeins þetta, sem
á að skemta farþegum. f borð-
salnum er dýrindis flygill og bestu
útvarpstæki, sem. unt er að fá. Og
í borðsalnum verða haldnir fyrir-
lestrar og hljómleikar þegar loft-
farið er á ferðalagi.
m 8 * ••••
Jörðin á eftir að „lifa“ í
2 biljónir ára.
Hjá Cammermeyers bókafor-
laginu norska er nýlega komin út
bók eftir P. Rolseth verkfræðing
um alheiminn og stærð hans. Rek-
ur hann þar allar kenningar, sem
komið hafa fram um það, kenn-
ingu Einsteins og margar aðrar
kenningar, sem skotið hefir upp
alt fram á þennan dag. Seinast
talar hann um það, hve lengi
jörðin muni verða við líði, og mun
margur fagna því, að hann kemst
að þeirri niðurstöðu, samkvæmt
nýustu útreikningum vísinda-
manna, að það verði 2 biljónir ára
þangað til alt líf á jörðunni er
út kulnað. En þá eigi þó sólin eft-
ir að skína í 15—20 biljónir ára.
Hraustur maður.
Á einu af norsku síldveiðaskip-
unum, sem voru hjer við land í
sumar, vildi til það slys, að einn
af skipverjum lenti í vindunni og
stórslasaðist. Hann handleggs-
brotnaði, þrír fingur slitnuðu af
honum og höfuðkúpan brotnaði,
en heilinn skemdist ekki.
Maðurinn var þegar fluttur um
borð í eftirlitsskipið „Michael
Sars“ og fenginn þar lækni í hend
ur. Læknirinn helt að maðurinn
væri meðvitundarlaus og notaði
því ekki deyfingarmeðul áður en
hann tók að rannsaka beinbrotin,
en til vonar og vara hafði hann
hjá sjer tvo menn til að halda
sjúklingnum.
Maðurinn lá fyrst alveg ró-
legur, en alt í einu fór hann að
tala — og þá brá lækninum.
Sjúklingurinn var hinn rólegasti
ag bað læknirinn að hugsa fyrst
um handlegginn og fingurna,
hvort ekki væri hægt að bjarga
því. „Það liggur ekkert á að
hugsa um höfuðið“, sagði hann,
>,jeg finn að það er í lagi“.
Dóttir Japanskeisara.
Mynd þessi er af elstu dóttur
Japanskeisara. Hún heitir Teru-
No-Miya Shigeka og verður bráð-
um 10 ára gömul. Á að halda
upp á afmæli hennar með mikilli
viðhöfn.