Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.1935, Blaðsíða 7
LÉSBÓK MOBGtlXBLAÐStNS
235
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii iiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimii
<
Tvö söngljóð.
íiaust.
e
Drýpur sorg af dagsins rósum,
dimmum fölva á laufið slær,
himinn breytir lit og ljósum,
lífið nýja strengi fær.
Blíðu sólarbrosin fækka,
blikar stjarna nætur hljóð.
Fossins öldnu hljómar hækka,
haustið kveður vetrarljóð.
E
Undir hjarni sóley sefur,
sumarrós við. draumamál.
Vorsins barni geisla gefur
guð, sem býr í þinni sál.
Litli vinur.
Litli vinur, fugl sem flýgur
frjáls á braut með söngvaklið,
þegar blóm á hausti hnígur,
hverfur þú í rökkurfrið.
Suðrið hlýja lundum ljómar,
lofar yndi, sól og vörn.
„Litli vin, þín harpa hljómar,
hlusta vorsins glöðu börn“.
Þegar aftur vonir vaka,
vorið svífur yfir grund.
Komdu fugl, sem fyrst til baka,
finn eg þig í skógarlund.
Þar sem glaðast geislar skína,
greinar láttu vagga þjer.
„Syngdu vinur söngva þína,
söngva’ er aldrei gleymast mjer“.
Kjartan ólafsson.
(§2iiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii(§
rjaðrafok.
í Greifswald var nýlega haldin
trúlofunarveisla. Þegar veislan
stóð sem hæst, urðu hjónaefnin
missátt og lauk því stríði þannig,
að konuefnið Ijek kærasta sinn
svo, að það varð að flytja hann
í sjúkrahús.
í Tokio hefir verið stofnaður
skóli, þar sem nemendunum er
kent að segja skrítlur og kýmni-
sögur, svo að þeir sje velkomnir
í öll samkvæmi.
I Neidenburg, skamt frá Masu-
rísku-vötnunum, varð maður nokk-
ur 110 ára gamall um daginn. Á
afmælinu var honum boðið í
Fritz Kortner,
| hinn frægi þýski kvikmyndaleik-
| ari, sem austurlenskur ræn-
| ingjaforingi í kvikmyndinni „Cu
| Chin Chow“, sem tekin var af
| bresku kvikmyndafjelagi.
| skemtiferð á skipi á vötnunum.
| Karl var hinn hressasti og ljek
| við hvern sinn fingur. Bn hann
| ljet þess getið, að þetta væri í
| fyrsta skifti, sem hann stigi fæti
| sínum um borð í skip og í fyrsta
| skifti, sem hann sæi Masurisku
| vötnin .
E ■ -.-... ■
Póstflugvjel með þremur mönn-
i um varð að nauðlenda á eyði-
| mörk í Ástralíu. Það varð nokk-
| ur bið á því, að þeim yrði bjarg-
að, og urðu þeir skjótt matar-
lausir ,en engan mat var a& fá
þar nærri. Þeir tóku það því til
bragðs að slátra ungum krókódíl,
sem flugvjelin átti að flytja til
einhvers dýragarðs, og lifðu á
honum þangað til hjálp kom.
Lítill drengur var í fylgd með
föður sínum á götu. Alt í einu
kemur að þeim hundur með gelti
miklu. Dengsi varð hræddur og
faldi sig á bak við pabha sinn.
— Þú þarft ekki að verá
hræddur, sagði pabbi hans, hund-
ar, sem gelta, bíta ekki.
— En þegar hann hættir að
gelta?