Lesbók Morgunblaðsins - 24.11.1935, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 24.11.1935, Side 4
372 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Á veiðum í Norður-Sjálandi. Á hverju hausti efnir Kristján X. konungur til veiðiferða og býð ur þar til ýmsu stórmenni. Að þessu sinni var Gustav Svíakonungi boðið að taka þátt í veiðunum. Hjer á myndinni sjest veiðimannahópur í Grönholt Hegn á Norður-Sjálandi. Fremstir eru þeir konungarnir Gustav og Kristján. „en ef þig langar meður mjer í mínum himni að eiga vistir, hann æ skal standa opinn þjer svo oft þig þangað vitja lystir.“ (Þýðing Svb. Egilsson). Skáldin eru skáld. en engir gróðamenn eða búhöldar og mega ekki vera að því að sinna neinni búskaparsýslu. Þau eru svo oft — „að leikum með liðnum og ljósálfum muna“. Þess vegna líka eins og úti á þekju í jarðneskum efnum. „Altjend ertu skáld“! segir mál- tækið — og mig minnir jeg heyrði móður mína segja það stundum við pabba. Stuttu eftir andlát hans fekk hún mörg hluttekningarskeyti og brjef frá vinum víðsve'gar að. En þar á meðal var eitt brjef, sem henni þótti vænst um og við börnin geymum það enn. — Það var frá síra Magnúsi Helga- syni, þáverandi kennaraskóla- stjóra, gömlum virktarvini frá Odda-árunum. Hann segir þar eftir nokkur ástúðleg minningar- orð um föður minn: — „En nti langar mig, að þakka yður frú Guðrún, alt, sem þjer hafið verið honum, skáldinu og prestinum, um samvistardagana. Þar hafið þjer sí og æ verið að greiða hon- um þakkarskuld allra okkar ís- lendinga, og fyrir það stöndum við allir í skuld við yður. — Hjart- ans þökk fyrir hvað þjer gjörðuð það vel!“ — Ef þið góðir áheyrendur vilj- ið hugsa líkt og síra Magnús í þessu máli vil jeg biðja ykkur gjöra svo vel, að heiðra minningu móður minnar með því að standa upp. Svo langar mig enn að segja þetta: Um leið og við minnumst móður minnar — vil jeg biðja ykkur, að minnast sameiginlegrar móður okkar allra, fósturjarðarinnar. Mjer finst faðir minn hvísla að mjer, að gera það fyrir sína hönd með þessum orðum Breiðafjarðar- skáldsins, fyrirrennara hans, — Eggerts Ólafssoar, sem sagði: ísland ögrum skorið jeg vil nefna þig, sem á brjóstum borifð og blessað hefir mig, fyrir skikkan skaparans blessað vertu blessað sje blessað nafnið hans“. Lifi fósturjörðin. Góður reki. Fyrir nokkru geisuðu óhemju stormar hjá New Foundlandi og skolaði þá sjórinn þar víðsvegar á land, fjölda mörgum tunnum og kössum af whisky. Bændur kept- ust við að ganga rekana og ná í þennan dýrmæta feng. Þetta whisky er frá banndög- unum, þegar smyglarar kusu held- ur að fleygja áfenginu fyrir borð heldur en láta varðskip stjórnar- innar taka það af sjer, og sæta sektum að auki. Yfiiwöldin hafa boðið bænduin og fiskimönnum stórfje fyrir að afhenda drykkinn, en þeir hafa verið tregir til þess.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.