Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1935, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1935, Page 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 379 Hungursneyð f Noregi á 18. öld. Eftir S. K. Steindórs. 18. öldiri var viðburðaríkur o" erfiður tími víðar en lijer í Is- landi. Nokkru fyrir miðbik aldar- innar var mikil hungursneyð og mannfellir í Noregi. Noreprur var á þeim tíma eitt af löndum Dana- konunfrs, o<r varð að sumu leyti að sætta si" við svipuð örlög og í.sland. I kornlögunum norsku, sem gengu í gildi 1735 og giltu alt til 1771, má greina nokkurn skvldleika, með einokunarlöggjöf- inni íslandi til handa, enda voru báðar þessar tilskipanir frá sömu rótum runnar. í kornlögunum var Norðmönnum bannað, að viðlögð- um refsingum, að kaupa kornmat frá öðrum löndum en Danmörku. án tillits til verðs eða vörugæða, enda ur&u kornlögin Norðmönn- um til mikils tjóns og ógæfu. Árið 1741 sögðu Svíar Rússum stríð á hendur. Höfðu Frakkar róið undir bak við tjöldin, af ótta við aukin völd Rússa í Evrópu. Samkvæmt gömlum vináttusamn- ingi, bar Kristjáui VII. konungi Danmerkur og Noregs, skylda til að veita Rússum liðsinni. Svíar báðu Danakonung einnig hjálpar en ^úldu þó ekki heita neinum skuldbindingum um fríðindi fyrir aðstoðina, og ákvað Kristján kon- ungur VII. þá að verða hlutlaus í þessari deilu. I desember 1741 komst Elísa- bet, dóttir Pjeturs mikla og Katrínar I. til valda í Rússlandi. Hún var í móðurætt af húsi og kynþætti „Gottorpanna" og því líklegt að hún myndi styðja þá. Varð Dönum því Ijóst að aflríð- ingin af því, myndi verða sú, að vinátta milli Dana og Rússa, væri vart hugsanleg eftir það. Friðrik I. konungur Svíþjóðar var barnlaus. Nokkru áður en stríðið milli Rússa og Svía braust út hafði komið til tals, að kjósa ríkiserfingja fyrir Svíþjóð. — Kristján konungur VII. lagði mikla áherslu á að Friðrik krón- prins, sonur lians, yrði kosinn. Margir Svíar voru hlyntir því, og álitu að skandinavisk sameining á þeim grundvelli, myndi styrkja aðstöðu þeirra gagnvart Rússum. En aðallinn í Svíþjóð var mótfall- inn slíku bandalagi, og var sú stefna óspart studd af sendi- mönnum Frakka, óttuðust þeir að slíkt samband mvndi veikja að- stöðu þeirra til íhlutunar um sænsk málefni. En Kristján konungur VII. vænti þess fastlega, að Frakkar myndu stuðla að kosningu Frið- riks sonar síns, til ríkise'rfða í Svíþjóð, og endurnýjaði gömul vináttusambönd við Frakka í þeim tilgangi. Samtímis voru gerðir verslunarsamningar milli landanna, og áttu Danir að njóta sömu verslunarhlunninda í Frakk- landi og Niðurlendingar höfðu liaft. Brátt kom þó að því, að Danir sáu að þéim hafði skjátlast. Sendi- menn frönsku stjóruarinnar í Svíþjóð, heldu áfram að vinna á móti kosningu danska krónprins- ins. Samt tókst sendimönnum Danakonungs að vinna þessu máli mikið fylgi, einkum meðal bænda í Suður-Svíþjóð og meðfram norsku landamærunum. En kosn- ingaundirbúningur þessi varð Dönum samt nokkuð dýr, að sögn. Stríðið við Rússa hafði orðið Svíum óhagstætt. Rússar ruddust lengra og lengra inn í Finnland. Tóku Svíar þá upp á því, til að vinna hylli Elísabetar Rússadrotn- ingar, að þeir kusu Karl Peter Ulrik. sem var af ætt „Gottorp- anna“ fyrir ríkiserfingja Svíþjóð- ar, til þefes að takast mætti að komasf að viðunandi friðarsamn- ingum, svo að þeir fengi að halda sem mestu af Finnlandi. En um svipað leyti og sænska þingið hafði kosið Karl Peter Ulrik, til ríkiserfða í Svíþjóð, hafði hann verið útnefndur rílriserfingi Rúss- lands, og urðu Svíar því að kjósa upp á ný. Lögðu Danir nú enn meira -kapp en áður á, að Friðrik krónprins vrði kosinn. Bændurn- ir fylgdu honum að málum, en af ótta við Rússa beitti aðallinn sjer fyrir því, að Adolf Friðrik, af „Holstein Gottorp“ ættinni, var kosinn. Þessi málalok vöktu mestu gremju í Kaupmannahöfn. Enda var varla við öðru að búast. Alt virtist benda til þess, að áður langt um liði. myndi ættingi ,,Gottorpanna“ setjast í liásæti Rússlands, og myiuli liann senni- lega gera tilkall og kröfu til danskra landa, og í básæti Sví- þjóðar myndi annar ,,Gottorpari“ setjast, og koma með slíkar kröfur. Kristjón VII. vildi fara með stríð á hendur Svíum, og ógilda þessa kosningu til : iKÍserfðanna. . 1 Noregi voru erfiðir tíinar, eink- um voru árin 1740—1743 tilfinnan- leg. Kornið á ökrunum náði e'kki fullum þroska, vegna óhagstæðr- ar veðráttu, og varð því almenri neyð og bjargarskortur. Haustið 1742 var ástandið hið ískyggilegasta. Þá ljet Kristján konungur VII. boð út ganga, og Ijet kalla saman norska herinn, og búast til innrásar í Svíþjóð, til að hefna vonbrigðanna í sambandi við ríkiserfingjakjörið í Svíþjóð. Herinn var um 10 þús. manna, og voru herdeildirnar á Austfold um veturinn. Ekkerf varð þó úr hinum fyrirhugaða ófriði við Svía, sökum þess að Danir treystu sjér ekki, þegar á átti að herða. Þó ekki yrði úr ófriði í þetta skifti, hefir stríðsundirbúningur þessi þó hlotið nafn í munnmælum og annálum, og kallast „Rauð- berjastríðið" sökum þess, að talið er að hérmennirnir hafi naumast haft annað sjer til matar en rauð- ber og viðarbörk, sem þeir tíndu í fjöllunum. I gömlum plöggum, seto eru geymd í norskum skjalasöfnum, er gjörla greint frá því, hversu neyðin og skorturinn hefir verið átakanlegur, bæði hjá hermönnun- um og bygðafólki á Austfold. De Seve, majór, skrifar 24. apríl 1742, eða nokkrum mánuð-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.