Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1935, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1935, Page 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 381 , Þegar kappakstur á bílum er lialdinn erlendis, er það nú orðin venja að hafa markið brenn- andi trjágirðingu, sem bílarnir eiga að brjóta. Sá bíll, sem fyrstur ræðst á eldinn, befir sigrað. voru fæðingar 2580 e'n dauðsföll 14011.) Sóknarpresturinn í Trojstad nafngreinir 80 manns, sem dóu það ár úr bjargarskorti. Hjer verða aðeins fá dæmi tilgreind: „Andreas Svensen á Timmer- holm, dó úr hungri, hann hafði árangurslaust reynt að fá vinnu og mat. Sania dag dó barn hans af sömu orsök. og daginn eftir dó bróðir hans, Knut Svensen, einn- ig úr hungri“. „Á Kasserud dóu 2 börn, 8 ára gamall drengur og 7 ára göniul telpa. 1 7 vikur samfleytt höfðu þau ekki fengið aðra næringu en mjöl úr trjáberki". „Haakon Myraas, lifði um nokk- urt skeið á trjáberki, ásamt konu sinni og börnum, svo dó hann og börnin, en konan lifði". Sóknarpresturinn í Askim til- færir einnig allmörg dæmi: „Hans Holterhytte, hermaðiir 34 ára að aldri, sagði við mig þegar jeg þjónustaði hann, tveim dög- um áður en hann dó: „Nií hefi jeg svo lengi borðað trjábörkinn, að jeg get ekki melt liann lengur“. Fógetinn á Aremark skrifar: „Thor Iversen, húsmaður, fanst dauður úti í skógi, við hlið hans var lítill poki, sem hann var búinn að tína í þó nokkuð af fölnuðum skógarlaufum“. Þannig væri hægt að lialda á- fram, en af þeim dæmum sem þeg- ar hafa verið tilfærð. er auðsætt, að það er ekki af gamansemi eða hótfyndni, að stríðs undirbúning- urinn árið 1742, var kallaður „rauðberjastríðið“. Á safni Árna Magnússonar í Kaupmannahöfn, er lítill trjekassi, svipaður og bók í laginu. Titillinn er: „Bibliotheca realis necessitatis ultimæ Norveg no. 1742“. f kassa þessum eru 10 smápakk- ar, með sýnishornum af hinum ýmsu tegundum af barkarmjöli og þessháttar, sem fólk varð að leggja sjer til munns. á þessum hungur árum. Þar er barkarmjöl úr furuberki, hálmmjöl úr riighálmi, mjöl vir þurkuðum rótum og þurkuðum niosa o. s. frv. . Á blaði sem er límt á lok kass- ans, er vísa á dönsku, er innihald hennar á íslensku þannig: „Þii, sem þetta sjerð, ættir að forðast óhóf og misnotkun. Neyttu þess með þakklæti og í hófi sem guð gefur þjer, þá mun hann sjá um að það blessist“. Á þessum hungurárum í Nor- egi, var allmikið af kornvöru sent þangað frá Danmörku, en eins og þegar hefir verið sýnt, hrökk það þó ekki til. Og árið 1742, voru al- menn samskot í Danmörku, til þess, ef unt væri, að draga vir hörmungunum í Noregi. Konung- urinn gaf 3 þúsund ríkisdali, en drotningin 1500. Alls söfnuðust í Danmörku um 20 þúsund ríkis- dalir, og var þeim peningum út- hlutað meðal þeirra sem bágast áttu. Voru 20 þúsund ríkisdalir gífurlega mikil fjárupphæð í þá daga, og ber gjörla vott um rausn og bróðurhug Dana. gagnvart bágstöddum frændum. Hann: Það er skrítið, en menn fullyrða að heimskustu mennirn- ir fái altaf fallegustu konumar. Hún: Nei — nú slærðu mjef gullhamra,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.