Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1935, Síða 6
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Norræna Kaupmannaráðsnefndin. Ilin standandi norræna
Kaupmannaráðsnefnd helt nýlega hátíðlegt 25 ára afmæli sitt í
Kaupmannaliöfn. \'oru þar mættir fulltrúar Kaupmannafjelag-
anna á Norðurlöndum og sjást þeir hjer á myndinni. Talið frá
vinstri: C'. B. Rostnberg, Ósló; V. Strömberg, Stokkhólmi; A. S. H.
Jeppesen, Helsingjaevri; Harald Almström, Stokkhólmi; og I. G.
Sehjær, Kaupmannahöfn.
Nobelsverðlaun.
Hinn franski prófessor F. Joliot
og kona hans, frú Irene Curie-
Joliot, dóttir Madame Curie1, hafa
fengið Nobelsverðlaunin í efna-
fræði.
Curie nafnið er alþekt um all-
an heim. Pierre Curie (f. 15. mars
1859) varð prófessor við Sor-
bonne-háskólann í París árið 1900.
Kvæntist hann þá Marie Sklodow-
ska (f. 1807) sem var stúdent \úð
háskólann. Þau fundu upp í sam-
einingu radium og polonium og
fengu fyrir þá uppgötvun sína
Nobelsverðlaunin í eðlisfræði 1903.
f\ suðurleið.
Rís í dögun, rjóð af sæng
reginfögur meyja.
Ýmsar sögur, undir væng,
af henni bögur segja.
Ver og grundu fægir fjúk,
fönn í sundin hleður.
Jeg bið undir Ystahnúk
af mjer stundar-veður.
Faðmar Skaga fögur nótt.
Flýgur saga af veiði.
Eggjar dagur æskuþrótt
út á lagarheiði.
Fýkur yrja Ránarreyks,
rjúka hyrjar glæður.
Hví skal spyrja að lokum leiks?
Líf í byrjun ræður.
Braut sjer ryður breiður knör.
Brattar iður falla,
sem í liði hetju hjör,
höggvi niður alla.
Eygló kyndir elda Hljes.
■— Unnar blindu vega
Joliot prófessor og kona hans.
Prófessor Curie dó árið 1906, en
eftir það helt kona hans áfram
vísindarannsóknum þeirra, og
fekk Nobelsverðlaunin fyrir eðl-
isfræði árið 1911. Þegar dóttir
þeirra hjóna hafði þroska til, fór
hiin að taka þátt í vísindarann-
sóknum móður sinnar, giftist svo
vísindamanninum Joilot og hefir
unnið með honum að rannsóknum
síðan.
Mamma: Nonni minn, rjettu nú
frænku höndina til kveðju —
svona. Og hvað segir maður svo
þegar frænka fer?
Nonni: Guði sje lof.
framar svndir Fagranes,
fljótt og myndarlega.
Dagur eggjar Hrannar hrafn,
liitnar beggja geði.
Arminn leggur vfir stafn,
einlæg tveggja gleði.
Hvorgi í högum sjest um síð,
sorg úr lögum hrakin.
Morgunfögur brosir blíð,
borg í dögun vakin.
Helgi Björnsson.
Versti óvinurinn.
Karolína, drotning Georgs IV.
Bretakonungs, dó sama árið og
Napóleon. Bæði lágu þau bana-
leguna á sama tíma, en hann dó
fyr.
Sagt er, að maður nokkur hafi
komið til Georgs konungs og sagt
við hann: „Sire, versti óvinur yð-
ar er látinn“. Hann átti við Napó-
leon.
Þá svaraði konungur: „Nei, er
hún nú dauð!“