Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1935, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1935, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLABG:::" 383 Laugardaginn 19. og snnnudaginn 20. október, geisaði ofveSur í Norðursjónum. Fórust mðrg skip og sum með allri áhöfn. Óveður þetta er eitt það mesta, sem komið hefir í mörg ár. Á myndi-nni sjest gufuskip sem strandaði á strönd Suður-Englands. Ferstjörðin í eldi? í bók eftir enskan stjörnufræð- ing, dr. Spencer Jones („Worlds Without End“) er talað um hin- ar nýju stjörnur, sem blossa skyndilega upp og springa. Er nokkur hætta á því að þannig fari um sólina ? Það er ekki loku fyrir það skotið, segir dr. Spence'r Jones, og þá mun jörðin farast í eldi, og máske gleypir sólin hana. Það getur vel verið að nokkrar miljónir ára verði þangað til, en það er ekki nema stuttur tími í sögu stjarnanna. Líf á öðrum stjörnum. Á öðrum stað í bókinni segir hann að allar líkur sje til þess að bygð sje1 á öðrum stjörnum en jörðunni. Þó hyggur hann að engin bygð sje á Mars, og hinir merkilegu „skurðir“ þar geti ekki verið handaverk lifandi vera. Á Mars er 50 stiga frost á Fahren- heit á kvöldin og 130 stiga frost á nóttunni og við þau skilyrði muni lifandi verum erfitt að búa. Trygpgaríje frarabjnöenda. Árið 1918 var það lögtekið í Englandi, að enginn mætti bjóða sig fram til þings, nema hann setti 150 Sterlingspunda (rúm- lega 3300 kr.) tryggingarfje í bankaseðlum, eða ávísun, ef hún er tekin gild. Þetta var gert til þess, að hinir og aðrir „skarfar“ væri ekki að bjóða sig fram. Auk þess verður hver frambjóðandi að hafa 8 þingmenn, sem meðmælend- ur. Sá frambjóðandi, sem ekki fær áttunda hluta greiddra atkvæða í kjördæminu, missir tryggingarfje sitt. Þeir, sem hafa meira fylgi, en ná þó ekki kosningu, fá trygging- arfjeð endurgre'itt þegar að kosn- ingu lokinni, en kosnir þingmenn fá það ekki endurgreitt fyr en þeir hafa unnið eið að stjórnar- skránni. Við næst seinustu kosn- ingar töpuðust 12,600 Sterlings- pund af tryggingarfje, eða um 300 þús. kr. Við seinustu kosningar voru frambjóðendur um 1300, og alt tryggingarfjeð um 200 þús. Ster- lingspunda. Ófriðarminningar um jafnaðarmenn. í kosningabaráttunni í Eng- landi um daginn, var Mr. Winston Churchill að halda ræðu í Ching- ford í Essex. Var hann að tala um það, að hinum megin við Norð- ursjó væri 65 miljóna þjóð, sem vígbyggist í óða önn. Þá greip einhver fram í: — Verðið þjer nú ekki hrædd- ur aftur, Mr. Churchill. Hann svaraði: — Það er betra að óttast nú, heldur en þegar hættan er skollin á. Nú koma socialistar og segja: „Verið ekki að hræða okkur“. Vinur minn hefir sagt mjer frá því, að þegar Þjóðverjar gerðu loftárásir á England í stríðinu, þá var ekki hægt að komast í skjól fyrir socialistum, sem þyrptust þangað eins og rottur. Og er þeir komu út næsta morgun, þá spurðu þeir: „Hvar er nú flugher Breta?“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.