Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1936, Blaðsíða 6
* __________ LESBÓK MORGUNBLAÐSINS_
Erfiðleikar alðaskiftanna.
Eftir ör. Helga Pjeturss
Hinn frægi læknir dr. Skvili
Guðjónsson sendi mjer um dag-
inn bók sem mjer þótti mikill
fengur í. En það er bók dr. Alexis
Carrels, sem þegar er lieimskunn
orðin, Man the Unknown, Maður-
inn, hin óþekta vera. Er þarna
um sannnefnda aldaskiftabók að
ræða, einsog fyrirsögn 8. þáttar-
ins, The Remakiug of Man, End-
ursköpun mannkynsins, nálega
nægir til að sýna. Dr. Carrel hefir
lengi haft á sjer mikið orð sem
iæknir og líffræðingur og aðstaða
hans um þau efni verið í besta
lagi, enda er þessi bók hans mjög
mikilsverð, og margt sem jeg
mundi óska að geta ritað um og í
sambandi við hana. Hefi jeg þeg-
ar nokkuð að þessu gert, eftir
greinum, sem jeg bafði um hana
lesið. En bókin er þó miklu merki-
legri en af þeim greinum mátti
ráða. Þó hygg jeg að enn betur
hefði orðið í þeim efnum, ef kenn-
ingin um liinar tvær stefnur, dvs-
exelixis og diexelixis, helstefnu og
lífstefnu, hefði verið orðin nægi-
lega kunn, því að þá má nákvæm-
lega átta sig á því hvar mannkyn-
ið er nú statt á verðandibraut-
inni. En hjer er um að ræða þann
þátt heimsfræðinnar, sem er eink
um nærtækur jarðfræðingi að
fást við. Jarðfræðin sýnir oss
hvernig lífið hefir hjer á jörðu
sótt fram um miljónir alda, við
svo mikla erfiðleika, að framsókn-
in varð aldrei hrein framför. Og
er þó sjerstaklega íliugunarvert,
að jafnvel þó að tækist að vaxa
fram til mannkvns, þá gat ekki
um þúsundir alda skapast viðun-
andi mannlíf eða mannfjelag.
Jarðfræðingnum hlýtur að verða
það mikið umhugsunarefni, hvort
ekki sje eitthvart takmark sem
leitast sje við að ná, þótt ekki
hafi tekist á svo löngum tíma, og
hvort viðburðarásin geti ekki orð-
ið á þá leið, að viðleitnin takist.
Og það getur enginn vafi á því
leikið, að svo er. Lífið hjer á jörð-
inni leitast við að ná þeim þroska
sem þarf til þess að samband tak-
ist við lífið á öðrum jörðum. Og
þegar það verður, þá er horfið frá
helstefnu til lífstefnu. Þá verður
fyrst í sannleika farið að lifa. Og
hinum fyrsta veika vísi til þeirrar
stefnubreytingar, verður að gefa
góðan gaum, því að öðrum kosti
fara jelin í mannkynssögunni stór-
um stækkandi, einsog jeg hefi
reynt að vekja athygli á fyrir
löngu. Hefir gangur sögunnar síð-
an, verið mjög í samræmi við það
sem jeg hafði sagt, einsog hægt
er að sannfæra sig um með því
að lesa ritgerðir mínar. Sú skoðun
er eigi allsjaldan í ljós látin, að
hin örsmáa íslenska þjóð geti ekki
á neinn hátt haft nokkur áhrif á
gang heimsmálanna. En þetta er
hinn mesti misskilningur. Sumar
þær þjóðir, sem mesta þýðingu
hafa haft fyrir þróun inannkyns-
ins, voru smáþjóðir, og íslenska
þjóðin getur fengið jafnvel enn-
þá meiri þýðingu í þá átt, en
nokkur smáþjóð hefir áður haft.
Því að einmitt í þessu úrslitamáli
sem á var vikið, getur íslenska
þjóðin átt upptökin. Og þegar á
þá leið verður snúið mun ísland
fljótt verða í sannleika Farsælda
Frón. En ekki þarf að vera í efa
um, að verði þessu máli ekki sint,
mun illa fara. Hjer á jörðu hefir
verið að verða sífelt ógurlegra um
að litast, einmitt eftir að hinn
fyrsti skilningur á möguleika full-
kominnar stefnubreytingar eða
aldaskifta, sem kalla mætti, var
orðinn til. Erfiðleikar aldaskift-
anna eiga mest rót sína í því,
hversu sljóir menn eru gagnvart
sannleikanum. Gegen die Dumm-
heit kampfen die Götter selbst
vergebens, sagði Schiller. Og jeg
vil þýða þetta þannig: Þegar
mennirnir þiggja ekki þann sann-
leika, sem mest ríður á að vita, þá
verða sjálfir guðirnir að gefast
upp við að hjálpa þeim.
15. sept.
Helgi Pjeturss.
Leiðrjetting.
Orð hafði fallið úr greininni
„Lærið að tala“ í Lesbók 6. sept.
Á að vera: „Þeir sem virðast ekki
geta borið fram „s“,“ o. s. frv.
H. P.
) _ _ „__________________
— Veistu það, karl minn, að ef
maður giftir sig núna, þá verður
það að vera skynsemishjónaband?
— Hvað mikla skynsemi hafði
konan þín?
— 200.000.
Skólabörn í kynnisför.
Færeysk skólaböm fóru í kynnisför til Danmerkur í sumar.
Voru þau öll í færeyskum þjóðbúningum, og er mynd þessi tekin
af hópnum á skipsfjöl.