Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1938, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
311
FJAÐRAFOK
Anæstunni er í ráði að halda
frumsýningu á nýrri þýskri
kvikmynd, sem Paula Wesley leik-
ur aðalhlutverkið í. Kvikmynd
þessi heitir „Spegill lífsins“. Frum
sýningin fer fram um borð í far-
þegaskipinu Milwaukee, sem marg-
ir hjér kaunast við af ferðum
skipsins hingað með ferðamenn að
sumrinu til.
★
ömul hjón í Belgíu hjeldu
gullbrúðkaup sitt á dögun-
um og komu ættingjar og vinir
þeirra í -Jieimsókn með gjafir eins
og ,yenja 'er til við slík tækifæri.
Gömlu hjónin hjeldu gestum sín-
um veislu og skemtu menn sjer
hið besta. — En daginn eftir sóttu
hjónin um skilnað til yfirvaldanna.
Þau höfðu orðið ósátt út af gull-
brúðkaupsgjöfunum.
★
Þetta er hinn nýi sendiherra
Dana og íslendinga í London,
Edv. Reventlow greifi. Mynd-
in var tekin af greifanum er
hann fór í heimsókn til Georgs
konungs fyrir skömmu.
★
Stærsta gullsending, sem nokkru
sinn hefir farið yfir Atlantshaf,
var á dögunum send með risa-
skipinu „Queen Mary“. Gullið var
9 miljón sterlingspunda virði.
Þolsundkonan fræga, Jenny
Kammersgaard, opinberaði ný-
lega trúlofun sína. Kærasti
hennar heitir Poul Engmann
og er starfsmaður hjá Zone-
björgunarfjelaginu. Myndin er
af hjónaefnunum.
★
Skólayfirvöldin í Rússlandi hafa
nýlega gefið út kenslubók í landa-
fræði, sem kenna á í rússneskum
barnaskólum. Landafræði þessi
myndi þykja ófullkomin í flestum
öðrum löndum en Rússlandi, því
ekki er minst þar á önnur lönd
en, Rússland sjálft, England,
Frakkland, Þýskaland, Ítalíu,
Spán, Lettland, Eistland, Lithau-
en, Pólland, Rúmeníu og Finnland.
★
Hægt er að nota gamlar sardínu-
dósir til ýmsra hluta. Yerkfræð-
ingur einn í Ameríku safnaði sam-
an miljónum af gömlum sardínu-
dósum, pressaði þær saman og
gerði úr þeim 15 km. langan bíl-
veg. Sagt er að það sje sjerstak-
lega gott að aka á þessum sardínu-
dósavegi.
★
í Englandi hafa menn komist
að þeirri niðurstöðu, að í næsta
stríði verði nauðsynlegt, að láta
bæði hunda og hesta hafa gas-
grímur, en að kettir þurfi aftur á
móti ekki á slíku að halda. Það
sýndi sig í heimsstyrjöldinni, að
kettir höfðu vit á að bjarga sjer
á óhulta staði í loftárásum.
Uppgjafasjómaður í Hamborg
hjelt nýlega upp á 100 ára afmæli
sitt með því að róa aleinn á smá-
kænu út á haf.
★
Ein af sjerkennilegustu kirkj-
um, heimsins er í bænum Taranoki
í Astralíu. Kirkjan er öll máluð
að utan með auglýsingum frá mat-
vörukaupmanni einum, vefnaðar-
vörukaupmanni og málara. Það
voru þessir menn, sem bygðu kirkj
una á sinn kostnað, gegn því að
þeir fengju að- mála auglýsingar
sínar utau á kirkjuvéggina.
★
— Drekkið þjer brennivín?
— Jeg er góðteinplari.
— Jæja. En getið þjer ekki
svarar spurningu minni afdráttar-
laust fvrir því.
★
— Afsakíð, en vilduð þjer ekki
fryggja yður gegn þjófnaði?
— Nei, þakka yður fyrir, það
kemur mjög sjaldan fyrir að jeg
steli.
★
Grænlandsstytta myndhöggv-
arans Svend Rathsauk hefir
verið sett upp á Kristjáns-
hafnartorgi í Kaupmanna-
höfn. Á myndinni sjest stytt-
an, sem sýnir Grænlendinga
að fiskverkun.