Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1938, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1938, Blaðsíða 8
312 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Þessi mynd er frá Borginni Eger í Sudetalandi og sýnir hópfund Þjóðverja, sem heimta að samein- ast Þýskalandi. í Eger búa alt að 100% Þjóðverja og er í því hjeraði, sem Hitler tekur einna fvrst á sitt vald samkvæmt fjórveldasáttmálanum í Múnchen. Orðin standa á höfði. FRAMH AF BLS. 307. vandamál lífsins eru líka enn bin sömu. Alt veltur á því, hverju maðurinn tilheyrir, en ekki á því, hvað tilheyrir honum. Eitthvað gott og mikilvægt málefni þarf að 'eiga hann óskíftan, og því há- leitara, þeim mun betur er mann- inum borgið. I orðið: Guð, hafa menn lagt alt hið æðsta, sannasta og besta. Er það þá ekki rökrjett hugsun, að þá sje manninum best borgið, ef hann er fullkomlega höndlaður af Guði. Evðið minni tíma í það, að taka hjegóma frá æskumönnum, en meiri í hitt, að leiða þá inn í helgi- dóma lífsins, að þeir geti orðið ástafangnir af heilladísunum fögru — áhugamálunum miklu — hinum mikilvægustu sannindum, og þeim er borgið á hvaða vandræðatímum sem er. Og má jeg segja það skýrt út. — Leitið þá til guðs, og heim- inum er borgið. Pjetur Sigurðggon. Ásta (sem kemur í annað sinn á sömu málverkasýninguna): Jeg er svo alveg hissa hvað menn geta verið gamaldags — hjer eru enn sömu myndirnar, sem voru hjer fyrir viku síðan. ★ — Drekkið þjer áfengi að stað- aldri eða við og við? — Við og við. — Hve oft 1 — Á hálftíma fresti. ★ Faðiriiin: Jæja, Pjetur, nú er jeg búinn að sýna þjer hvernig þú átt að kyssa barnfóstruna þína þegar þii býður henni góða nótt, og það er í síðasta sinn sem jeg sýni þjer það. ★ — Talið þjer frönsku? — Helst ekki, ef jeg get komist hjá því, vegna þess að jeg verð altaf að hugsa mig urn áður en jeg tala. ★

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.