Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1941, Side 1
20. tölublað.
ffilorðunbhiibstns
Sunnudagur 18. maí 1941.
XVI. árgangur.
íaafoldarpreoUn^ðJ* h.r.
SIGURÐUR NORDAL:
Tómas Sæmundsson
31. mai 1807 ~ 17. mai 1841.
i.
TT^g œtlast ekki til, að nafn
mitt lifi lengi, eftir að eg
er fráfallinn, en vil um fram allt
fara með þá meðvitund í gröfina,
að eg hafi látið mér mest annt um
af öllu að vera til nytsemi“. Svo
segir síra Tómas í bréfi til Kon-
ráðs Gíslasonar, sem ritað er 4.
febr. 1841. í raun réttri hefði það
ekki verið óeðlilegt, þótt nafn og
störf Tómasar hefðu verið lítt
kunn íslendingum eftir hans dag.
Sveitaprestur, sem situr aðeins
sex ár í embætti og deyr tæpra
34 ára að aldri, virðist ekki hafa
mikil skilyrði til þess að vinna
afrek, sem haldi hróðri hans á
lofti um langan tíma. Og ef at-
huguð eru ritstörf Tómásar, sem
að vísu eru furðu mikil að vöxt-
um á svo skammri æfi, þá eru þau
af því tagi, að þau voru ólíkleg
til þess að verða mikið lesin eftir
hans dag; fréttapistlar og hug-
leíðingar um landsins gagn og
nauðsynjar á líðandi stundu,
ádeilugreinar, ferðasögubrot og
stólræður. Mikið af þeim var ein-
mitt sama eðlis og blaðagreinar
nú á dögum, sem að vísu geta haft
sín áhrif á rás viðburðanna og
hugsunarhátt almennings, en fyrn-
ast fljótt. Allt þetta skildi síra
Tómas sjálfur og dæmdi af ein-
lægni og skynsemd.
Frá sjnóarmiði nútíðarmanna
lítur þetta allt öðru vísi út. Þeim
finnst það sjálfsagt, að nafn Tóm-
asar Sæmundssonar sé kunnugt
hverju mannsbarni á íslandi og í
heiðri haft. En ef skyggnzt er
nokkuð aftur í tímann, má sjá
þess ljós merki, að minning Tóm-
asar var ekki líkt því eins lifandi
fyrir 50—60 árum og hún er nú.
Þetta mætti sýna með ýmsum
dæmum, en hér verður aðeins eitt
nefnt. Árið 1880 kom út Ágrip af
sögu íslands eftir síra Þorkel
Bjarnason á Reynivöllum, lítið
kver að vísu, en greinagott yfirlit,
enda hélt það velli sem kennslu-
bók í lærða skólanum og síðan
menntaskólanum í Reykjavík
fram um 1925. Síra Þorkell segir