Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1941, Page 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
171
mikill fengur í henni fyrir alla
þá, sem unna íslenzkum sögu-
fróðleik, minningu síra Tómasar
og anda þeirrar kynslóðar, sem
einna heitast hefur unnað landi
sínu og þjóð og unnið hvoru-
tveggja af mestri ósérplægni. Mig
langar aðeins til þess að minna
hér á tvennt af því, sem eg sakn-
aði, þegar eg las bókina, af því
að fáir pennadrættir frá samtíð-
armönnum varpa stundum meira
Ijósi á einkunn manna en langar
lýsingar annara.
Benedikt Gröndal segir svo frá
komu Tómasar að Eyvindarstöð-
um: „Þá man eg eftir Tómasi
Sæmundssyni, hann kom ríðandi
og braut túngarðinn, sagðist ekki
kalla þetta tún. Hann var á græn-
um frakka og rjóður í andliti.
Hann var þá með stóran pappírs-
vöndul undir hendinni, og var
það handrit til fimmta árs
Fjölnis. Þeir faðir minn rifust eða
disputeruðu allan daginn og fóru
báðir saman heim að Bessastöð-
um“ (Dægradvöl, 43. bls.). Það
kann að vera eitthvað ýkt í því,
0
að Tómas hafi „brotið túngarð-
inn“! Líklega hefixr hann verið
skörðóttur og gestinum fundizt
óþarfa gauf að krækja að garðs-
hliðinu. En Gröndal hefur þarna
brugðið upp augnabliksmynd með
skarpskyggni sjáandans og hag-
ieik dráttlistarmannsins, — mynd
af Tómasi ljóslifandi, mynd af ís-
lenzku þjóðlífi, þýfðum og lítt
ræktuðum reit, sem var ekki hægt
að kalla neitt tún, — innan garðs,
sem þurfti að brjóta, bæði til
þess að opna fyrir áhrifum utan
frá og færa út svið ræktunarinn-
ar.
Og þá eru það ummæli Kon-
ráðs Gíslasonar háaldraðs, þegar
Indriði Einarsson, systursonur
hans, spurði hann: „Var nú Tóm-
as Sæmundsson mikill maðurf'.
Konráð þagði um stund, og fast
kvað hann að svarinu: „Heldur
þótti okkur nú það“ (Skírnir
1908, 109. bls.). Mér fiimst, að
samhliða aðdáuninni í orðum
Konráðs kenni þar ofurlítils
hrolls, þegar hann hugsar um,
hvernig þeim (Jónasi og honum)
var stundum innan brjósts, er
þeir hugsuðu til vinar síns og fé-
laga. „Við eruin orðnir til spotts
og aðhláturs fyrir framkvæmdar-
semina“ (þ. e. framkvæmdaleys-
ið), skrifar Jónas Konráðj 1839,
— „og það, sem mér fellur verst:
Eg þori ekki að líta upp, þegar
eg sé hann gamla Tuma. Eða
hvérju ætlaðirðu nú að svara hon-
um, ef að þú værir kominn í minn
stað?“. Þó að Jónas kveði hér
gamansamlega að orði, eins og
oftast við Konráð, þá er auðfund-
ið, hversu honum vex það í aug-
um að eiga að standa frammi fyr-
ir jafnaldra sínum og æskuvini
með seinlætissjmdir þeirra Kon-
ráðs á baki.
III.
Jónas segir í hinum alkunnu
erfiljóðum um Tómas Sæmunds-
son:
Lengi mun hans lifa rödd,
hrein og djörf um hæðir, lautir,
húsin öll og víðar brautir,
þá ísafold er illa stödd.
Hann mun þar hafa orðið sann-
spár. Röddin lifir. Hitt er á valdi
íslendinga og hvers einstaklings,
hvort eða hvenær þeir vilja hlusta
y / '.
Rithönd Tómasar Sæmundssonar. Upphaf að fyrsta brjefi Tómasar,
er hann ritaði föður sín um frá Kaupmannahöfn,
Kona Tómasar:
Sigríður Þórðardóttir.
á hana. Það væri ekki óeðlilegt,
þótt ýmsir menn þessa dagana,
er rétt öld er liðin frá láti Tóm-
asar, rifjuðu upp fyrir sér og'
gerðu sér ljósari minningu hans
með því að lesa að minnsta ko^ti
bréf hans og hina nýju æfisögu.
Hvorttveggja getur gefið þeim
margt um að hugsa — um ís-
land, um hvernig það nú er statt,
um skyldur þeirra við land og
þjóð. Guðm. Finnbogason kvað
vel að orði um bréfin: „Sé ein-
hver svo -fáfróður, að hann viti
ekki, hvað ættjarðarást er, þá lesi
hann þessi bréf“. Og sama má
reyndar segja um. alla æfi og öll
störf Tómasar. „Hann var íslands
í innilegasta og algjörðasta skiln-
ingi“, eins og Jón Sigurðsson
sagði. Það verður allt af reynsla
að kynnast honum. Það má enn
deila við hann, sækja til hans yl
og eggjan, prófa sjálfan sig í eldi
hans. Og líklega eru það ekki
verstu mennirnir á meðal vor,
sem það stundum getur hvarflað
að, ef þeir, skoða í eigin barm, að
þeir þori varla að líta upp, þeg-
ar þeir hugsa til hans „gamla
Tuma“.
Mr. F. W. Waits var ekki alls
fyrir löngu vígður til prests i
St. Pauls kirkju í London, 64 ára
að aldri. Hann var búinn að vera
leynilögregluþjónn í London í 33
ár, en notaði frístundir sínar til
þess að lesa guðfræði.