Lesbók Morgunblaðsins - 09.11.1941, Qupperneq 5
lkSBÓK morgunblaðsins
881
engar blóðsúthellingar. Þessi nýjn
stjórnarskrá gerði Vargas að raun
verulegum einvaldi, þó gert sje
ráð fyrir kosningum einhverntíma
i óákveðnri framtíð.
★
Árið 1938 átti hann í stímabraki
við fasistaflokk Brasilíu. Integral-
ista, sem klæddust grænum skyrt-
um. Þeir gerðu tilraun til að ná
stjórninni í sínar hendur. Það sem
skeði var undarlegt sambland af
Hollywood-leik, flónsku og skrípa
leik. Dulbúnum Integralista for-
ingjum tókst að komast inn í hall-
argarðinn, en þeir hikuðu við að
ráðast til inngöngu í höllina. Var
gas og Alzarina dóttir hans, ásamt
fjórum lífvörðum, földu sig bak
við gluggatjöld og tókst að stöðva
framgang Intergalista með riffil <
skotum, þar til hermenn komu *
loks á vettvang.
Undirbúningur uppreisnarinnar
hafði verið í besta lagi. Uppreisu
in mistókst aðallega vegna þess
að Brasilíumenn eru svo miklir
Brasilíumenn. Alt, sem gera þurftl
til að byltingin tækist, var að
gera innrás í höllina, þegar þeir
voru komnir inn í hallargarðinn.
En Brasilíumenn hafa óbeit á dráp
um, eða að láta drepa sig, og
jafnvel að hlýða fyrirskipunum.
Síðan þessi misheppnaða til-
raun var gerð, hefir verið rólegt
atjórnmálalega sjeð í Brasilíu.
Getulio hefir mýkst og stjórnin
hefir náð til allra króka og kima.
★
Forsetinu vinnur venjulega í
höll sinni í Rio, Guanaberahöll-
inni, þar til eftir hádegisverð.
Hann eyðir fyrri hluta dags í að
lesa brjef, sem honum hafa bor-
ist, og blöðin, og til að taka á
móti nánustu ráðgjöfum sínum
Að þvf loknu lætur hann aka sjer
til rokokohallarinnar Catette, þar
sem hann vinnur sín opinberu
verk. Hann tekur á móti ráð
herrum sínum, tveimur og tveim
ur, einu sinni á dag. Forsetinn
hlustar með athygli, en talar lftið
sjálfur. Hann fer aftur til Guana
barahallar til að borða kvöldverð
með fjölskyldu sinni, en vinnur
síðan fram yfir miðnætti við lest-
ur og undirskriftir skjala.
Vargas er heilsuhraustur. Hann
Vargas forseti.
skemtir sjer við lestur áður en hann
gengur til hvílu og sefur svo eins
og steinn — venjulega ekki lengui'
en fjórar klukkustundir. Hann
snertir aldrei sterka drykki, en
drekkur ljett vín með mat. Til
skemtunar fer hann á hestbak, leik
ur golf og lætur sýna fyrir sig
amerískar kvikmyndir á einkasýn-
ingum. Besta afrek hans í
golfleik er 122. Þegar hann er
sýndur á frjettakvikmyndum í Rio
hristast kvikmyndahiisin af hlátri
áhorfenda.
Vargas á engar eignir, þegar
frá er skilið ættaróðal hans. Laun
hans eru 20 contos (kr. 6,500) á
mánuði. Fjárhagsáætlun forseta
skrifstofunnar, ekki forsetans
sjálfs, er 1.995:000$000 milreis
(Brasilíumynt er skrifuð á sinu
eigin einkennilega hátt), sem er
heldur minna en 650,000 krónur.
Af þessu verður að greiða liðs
foringjum, skrifurum og þjónum
kaup og einnig kostnað við ferða
lög og viðhaldskostnað á báðum
forsetahöllunum í Rio. Enginn hef
ir nokkru sinni hvíslað um óheið-
arleik eða óreiðu í sambandi við
Vargas. Ekkert hneyksli, hvorki
fjármálalegt nje annars eðlis hefir
nokkru sinni komið fyrir hann,
nje neinn af fjölskyldu hans.
Portugiska er töluð i Brasilíu, en
Vargas mælir þolanlega á frönsku
og spænsku, og les þau amerísk
tímarit, sem Alzarína dóttir hans
telur að hann hafi gaman af. Hann
hefir aldrei ferðast út fyrir Bras
ilíu, að undanteknum stuttum
ferðalögum til Argentínu og Uru-
guay. Sá þjóðhöfðingi, sem hann
metur mest, er Franklin D. Roose
velt.
★
Fjölskyldulíf Vargas er afar
hamingjusamt. Kona hans er fríð
kona. 45 ára að aldri, sem helgar
líf sitt líknarstörfum. Hún hefir
stofnað heimili fyrir einstæðings
drengi og foreldralausar telpur,
stofnanir, sem eru sjaldgæfar í
Brasilíu.
Forsetahjónin eiga fimm börn,
eitt þeirra, hin 24 ára Alzarina,
stendur nær forsetanum er nokk
ar önnur manneskja í Brasilíu.
Alzarina, sem er full af lífs-
fjöri og áhuga, hefir ánægju af
ferðalögum, dansi, vinnu, og af að
ráðleggja föður sínum. Hún var
ágæt námsmær í skóla og er nú
fullgildur starfsmaður á skrif-
stofu föður síns. Hún er gift
Interventor (landstjóra) í Rio de
Janeiro, og hún var nýlega á
ferðalagi í Bandaríkjunum —
þriðja ferð hennar hingað. Hún
dáir þetta land og hefir mikil
áhrif á föður sinn með alt, sem
amerískt er.
Vargas er eini brosandi ein
valdurinn i heiminum. Jafnvel
þegar maður sjer hann einan sjer.
er hann nærri ávalt brosandi.
Hann er einn af fáum einvöldum.
sem er kallaður gælunöfnum af
þjóð sinni. Eitt gælunafnið er
Gigi. Annað er Xuxu. Vargas er
vingjarnlegur, búlduleitur, frekar
blíður og á svo að segja enga
óvini, að undanteknum fáeinúm
öfgamönnum, sjálfur ber hann
ekki hatnr til neins. Þó ekki sje
hann sjerstakur afreksmaður, þá
er hann án efa hugrakkur. Hann
gengur óhindrað um götur Rio
borgar og er sennilega einasti
einræðisherrann, sem aldrei notar
brynvarða bifreið.
★
Regla hans í stjórnmálnm er
að kynna sjer alla málavexti, fá
umsögn sjerfræðings, gera sínar
ályktanir og tilkynna úrslitin.
Framkvæmdir hans í f jelagsmálum
hafa verið áhrifamiklar. Eitt stór