Lesbók Morgunblaðsins - 09.11.1941, Side 7
LESBÓK MORGtJNBLAÐSíNS
883
Mentciskölinn í Eton
Framh. af bls. 379.
og eru nú hans eign. Er þetta hið
verðmætasta safn.
★
? j AÐ virðist svo, sem óvinir
‘ Breta álíti Eton-skóla hern-
aðarlegan mikilvægan stað, því
flugvjelar hafa gert sprengjuárás
á uðalskólahúsið og tekist að valda
á því nokkrum spjöllum.
Ef til vill hafa þeir menn, seni
fvrirskipuðu loftárásina á Etou
haft í huga orð Wellingtons um
orustuna við Waterloo og óttast
að sagan endurtæki sig. Skal jeg
ekki frekar um það fjalla, en
jeg verð að segja, að jeg sá staði
í Englandi, sem höfðu minni hern-
aðarlega þýðingu en Eton og
höfðu samt ekki sloppið við eyði-
leggingu í loftárásum.
Þótt mjer detti ekki í hug að
halda því fram, að neinn skóla
piltur í Eton hafi glaðst í hjarta
sínu yfir sprengjunni, sem fjell á
skólann, þá þykir mjer ekki ólík-
legt, að margur Eton-nemandinu
hafi hugsað sem svo, að sprengjan
hefði getað lent á óhagstæðari stað,
úr því hún endilega þurfti að hitta
skólann. Sprengjan lenti sem sagt
á þeirri álmu skólans, sem skóla-
meistari hafði' skrifstofur sínar —
en þar voru brotlegir nemendur
hýddir með hrísvendinum fræga.
Við íslendingarnir fengum ekki
tækifæri til að sjá heimavist í
Eton-skóla, sennilega vegna þess,
að enginn hafði orð á því, en
við gengum um alla aðal skóla-
bygginguna og fengum við skóla
pilt sem fylgdarmann.
Skólinn er mjög forn. Innviðir
allir gamlir og hurðarlokur flest-
ar margra alda gamlar. Stoðir eru
slitnar, þar sem piltar hafa hallað
sjer upp að þeim öldum saman,
eða nuddað sjer utan í þær.
Á einn stað komum við þar sem
nemendur voru í kenslustond. Nú
tlma uppeldisfræðingar myndu
vafalaust hafa hríst höfuð sín
vandlætingu og látið sjer detta í
hug hrýggskekkja eða eitthvað því
Um líkt, ef þeir hefðu sjeð að-
búnaðinn í skólastofunum.
Pyigdarmaður okkar benti okk
ur á einum stað á borð. Borð
þetta hefir vafalaust á sínum
tíma verið smíðað iir kjörviði og
verið hinn mesti kostagripur, eu
eins og það leit út, er við
sáum það, er jeg sannfærður um,
að euginn fornsali hjer í Reykja-
vík hefði viljað gefa fyrir það
fimm krónur í peningum. Fylgd-
armaður okkar sagði, að auðugur
Ameríkumaður, sem sá borðið.
hefði boðið í það 500 dollara.
En borðið var ekki falt.
Á siglingu inn
til Reykjavíkur
Hjer við þjóðar höfuðból
hrynur glóð um sæinn,
er að bjóða ylrík sól
öllu góðan daginn.
Rís af blundi bygðin öll
björtum undir loga,
stuðlum bundin stórlát fjöll
stafa sund og voga.
Dýrð er mest við dagsins barm
drottins bestu smíðar.
Bjóða gestum breiðan arm
bláar vestur hlíðar
Stilt við drafnar-strengi best
staðarnafnið hljómar.
Frónskra hafna fegurð mest
fyrir stafni ljómar.
I
Báðu megin borði næst
bindur eyjakögur,
vorsins degi vermd og glæst
víkin spegilfögur.
Heilsar bænum hrifin sál
— hingað mæna sveitir. —
Fella að sænum foldarmál
fagurgrænir reitir,
Meðan rís frá rótum blað,
rödd á vísdóm kallar,
hylli fslands höfuðstað
himnadísir allar.
Karl Halldórsaon.
Ameríska Arna-
flugsveitin
| heimsstyrjöldinn var fræg flug
* vjeiasveit Bandarikjamanni
með franska hernum, sem nefnci
var „Lafayette“-flug8veitin. í
flugsveit þessari voru flugmenn.
sem gátn sjer mikinn orðstír, nöfu
eins og Lufberry Thaw og fleiri
munu seint glevmast í itandaríkj-
unum.
Nú er amerísk arnaflugsvei
með breska flughernum í Eng-
landi. 2. júlí s. 1. gerðu Banda-
ríkjaflugmenn árás á Norður-
__Frakkland í fyrsta skifti. Onnur
árás fylgdi þann 4. júlí. Það hef-
ir ekki staðið mikill stvr um þá
ungu amerísku flugmenn, sem
fóru til Englands til að berjast
með Bretum í loftinu. Sumir þeirra
ætluðu á sínum tíma til Finn
lands. Yfirvöldin í Bretlandi gefa
ekki upp néin nöfn — fyr en
flugmaðurinn er „farinn“. Nokk-
ur nöfn hafa þó verið kunngerð.
Flugmennirnir eru ættaðir hing
að og þangað vir Bandaríkjunum.
\ í Arnaflugsveitinni eru 90 af
hverjum 100 Bandaríkjamenn. Það
var Charles Svveeney ofursti, sem
stofnaði flugsveitina á síðastliðnu
ári. Ritskoðunin hefir ekki leyft,
að sagt sjer frá, hve margir eru
í sveitinni, en vitað er, að þeir
eru nógu margir til að stofna
heila orustuflugsveit, og margir
eru til vara. Arnarflugsveitin hef
ir skotið niður nokkrar þýskar
flugvjelar og fáir hafa fallið úr
sveitinni, enn sem komið er.
Lous Harris, slátrari í Chicago,
fór þess á leit við yfirvöldin, að
hann fengi að breyta nafni sínu
í Elías Haralampopoulas. Hann
sagði að viðskiftavinir sínir gætu
ekki munað nafnið Harris. Við-
skiftavinir hans ertt grískir.
★
í Grand Rapids I Bandaríkjun-
um sló niður eldingu í verksmiðja
byggingu og kom upp éldur 1 hús-
inu. Skömmu síðar sló niður ann-
ari eldingu í brunasíma skamt frá
verksmiðjunni og kom slökkví-
liðið þé á vettvang