Lesbók Morgunblaðsins - 09.11.1941, Qupperneq 8
384
LESBÓK M0RGUNBLAÐSIN8
FJ AÐ RA FO K
UMMÆLI UM Tveir kunnir ain
ÍSLAND. erískir blaða
menn, Walter Lippmanu og Dan
ton Walker skrifuðu um ísland
skömmu eftir að Bandaríkin tóku
að sjer hervernd landsins. Lipp
mann sagði: „Við skulum ekki
gera okkur neinar tálvonir um
ísland sem „útvarðarstöð" Norður
Ameríku .... Ef Hitler tæki Bret
land, væri vonlaust fyrir okkur
að verja ísland .... Þetta sann-
ar, að til þess að varnir Vestur-
heimsálfu sjeu í lagi, er nauðsyn-
legt að Bretar sigri. Hjálpin til
Bretlands er því raunverulega
vörn Ameríku“.
Danton Walker sagði; „Það er
eins gott að við gerum okkur það
ljóst strax, að þessir piltar á
íslandi eru svo miklir nasistar,
að þeir vilja ekki einu sinni tala
við breska sjómenn
★
í Atlanta sló maður einn Oscar
Plunkett niður, tók úr munni hans
falskar tennur, sem voru 75 doll
ara virði, stakk þeim upp í sig
og flúði.
♦
Síðan Ameríka fanst, hefir eng-
inn maður þar átt jafnmikið land
og Robert Morris (1734—1806),
hinn alkunni fjesýslu og stjórn-
málamaður. Hann átti um eitt skeið
80.000 kvaðratkílómetra landflæmi
í New York, Pennsylvaníu, Vir-
giníu, Georgíu og Suður-Karólínu.
eða landflæmi, sem var hjerumbil
tvisvar sinnum stærra en Dan-
mörk.
★
í Santa Monica í Kaliforníu var
nýlega brotist inn á lögreglustöð
og stolið 5700 dollurum úr pen-
ingaskáp stöðvarinnar.
★
Tveimur dögum eftir að fangi
hafði strokið úr fangelsi í Gar
den Citjr Kansas, fjekk Richard-
son lögreglustjóri brjef frá stroku
fanganum. Brjefið var skrifað í
Texas og hljóðaði svo: „Gjörið svo
vel að senda strax skjöl mín og
eignir, sem jeg skikli eftir í faug
elsinu11.
Til þess að útrýma mýflugum
er oft helt steinolíu á yfirborð
stöðuvatna og gryfja, þar sem
krökt er af þeim. Þetta hefir
reynst prýðilega til þess að drepa
lirfurnar, en það hefir komið í
ljós, að olían hefir skaðleg áhrif 4
ýms dýr, er lifa i vatninu, eins og
t. d. fiska.
★
Nýr dans í Ameríku nefnisi
„Varnar-swing“. Dansinn hefst á
..hernaðaraðgerð“. Karlmaðurinn
gengur á móti dömu sinni með
því að bera sig að eins og hann
ætli að skjóta á hana með byssu,
stúlkan fórnar upp höndunum,
eins og í varnarskyni. Síðan hefst
dansinn.
★
Þýska blaðið Hamburger Frem
denblatt kvartar yfir því, að bresk
ir flugmenn hafi varpað niður
fölskum fatnaðarskömtunarseðlum
yfir Þýskalandi. Biaðið varar Ham
borgarbúa við að reyna að nota
þessa skömtunarseðla, því að þeir
sem það geri, verði dæmdir tii
lífláts fvrir skemdarstarfsemi.
★
Micky Normann heitir drengur
einn, sem heima á í Patterson í
Bandaríkjunum. Nýlega átti hann
10 ára afmæli. Þegar hann var
tyeggja ára, vakti hann á sjer
athygli um öll Bandaríkin fyrir
að reykja vindla. Nú, 10 ára
gamall, hefir hann fengið leið á
vindlum. Aðstandendur hans vilja
ekki leyfa honum að reykja cigar-
ettur, þar sem hann sje of ungur
til þess. Piltur reykir pípu.
★
Fjórir fulltrúar í bifreiðastjóru
Moskvaborgar lentu á kendiríi.
Þeir kveiktu í húsinu sem þeir
voru í og voru dæmdir til dauða
fyrir (1) að hafa valdið skemdúm
á eignum,, sem voru 3.500,000
rúblna virði og (2) fyrir að hafa
valdið truflun á ioftvarnamyrkv-
un Moskvaborgar.
TVÆR Adolf llitler sagði i
RÆÐUR ræðu árið 1933: —
„Hvorki mjer eða nokkrum öðrum
í þjóðernisjafnaðarmannaflokknum
dettur í hug að aðhafast neitt
nema sem byggist á löglegum að
ferðum, samkvæmt stjórnar-
skránni.
Charles A. Lindbergh fiugkappi
sagði í ræðu 1941: „Hvorki mjer
eða nokkrum öðrum í „Ameríka
fyrst nefndinui“ dettur í hug að
aðhafast neitt nema sem byggist
á löglegum aðferðum, samkvæmt
stjórnarskránni“.
★
BÆN ENSKA Enskur dreugur
DRENGSINS bað eftirfarandt
kvöldbænar eftir að hann hafði
hlustað á fyrirmæli í útvarpinu
um ráðstafanir almennings, ef til
innrásar skyldi komá: „Góði guð.
vertu svo góður að hjálpa pabba
til að hann muni eftir gasgrím-
unni sinni; honum er svo gjarnt
á að gleyma henni. Og góðu guð.
hjálpaðu mömmu með skömtun-
ina, því að hún er svo áhyggju-
full út af henni. Jeg ætla nú að
endurtaka þessar tvær bænir hægt,
svo að þú getir skrifað þær þjer
til minnis.
★
GULL Vatnsveita ein, sem
verið er að byggja í Kaliforniu,
greiðir sig sjálf í handbæru fje
um leið Og hún verður til. Nálega
650.000 króna virði í gulli hefir
komið upp við gröft vatnsveit-
unnar.
★
BÍLABARÐAR Nærri 60 milj.
bílabarðar eru seldir árlega í
Bandaríkjunum. Verðmæti þeirra
er rúmlega 450.000,000 dollarar.
Bandaríkin flytja árlega inn um
685.000 smálestir af óunnu tog
leðri og fer um 80% af því, eða
rúmlega % miljón smálestir til
framleiðslu bílbarða. Um 200.000
smálestir af notuðu togleðri er
árlega brætt upp og framleitt úr
því togleðursvörur á ný. Tog
leðursbílabarðar hafa verið til jafn
lengi og togleður hefir þekst.