Lesbók Morgunblaðsins - 23.11.1941, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 23.11.1941, Blaðsíða 8
400 L39BÓK MORÖUNBLAÐSINS með inismunandi spilareglum egar minst var á Orðaspilið hjer á dögunum, var því aðallega lýst sem góðri og hent- ugri dægradvöl fyrir börn og ung- linga. Nú er Orðaspilið komið notkun um land alt, og reynist .jafnt fvrir fullorðna sem börn. Þegar spilinu var lýst, var á það minst. að spilamenn gætu breytt reglum spilsins eftir því sem mönnum þætti henta. Hefi.* það sýnt sig, að þegar fullorðið fólk st.vttir sjer stundir með Orða spilinu, þá getur það þótt hent- ugra, að hafa reglurnar þannig, að spilið verði erfiðara en upphaf- lega var um talað. Fvrir börn er það hentugast, a; þátttakendur geti notað hvaða nafnorð, sem vera skal, til að setja saman með stöfum sínum. En vilji menn gera spilið erfið- ara, þá er t. d. hægt að takmarka það allavega, hvaða orð megi nota. T. d. að ákveða að ekki megi nota nema eiginnöfn, eða ekki nema nafnorð úr einhverri sjer- grein, svo sem dýranöfn o. s. frv. Þá er hægt að breyta reglunum þannig, að í staðinn fvrir að hver spilamaður leggi orðin sem hann setur saman, fyrir framan sig A spilaborðinu. þá setji sá sem e- í forhönd eitt orð í borð og sá næsti hafi þá tækifæri til þess að setja annað orð í borð, sem hefir einn staf sameiginlegan við orð það, sem fyrir er, og setji þá fram sitt orð, án þess að leggja fram hinn sameiginlega staf orðanna, enda þarf hann þá ekki að hafa þann staf á hendinni. T. d. ef fyrsti spilamaður legg ur fram orðið Lesbók. Raðar hann stöfunum hverjum vfir annan, L inu efst og hinum stöfunum i rjettri röð niður eftir. Þá getur sá næsti sett A framan við L-ið og ftR aftan við, svo fram komi orðið ALUR, eða myndað orð sein á sama hátt má tengja við orðið Lesbók,, svo sem orðið SEF með E-inu, ef S og F er á hendi, o. s. frv. Ennfremur geta spilamenn, er röðin kemur að þeim, bætt í þau orð, sem í borði eru, gert „salur1, úrM,alur“, „stef“ úr sef o. s. frv. Þegar spilamenn hafa tengt orð við hvern staf í „Lesbók“ á þenna hátt, þá leggur næsti spilamaður, sem á leik, annað stofnorð í stað hins fyrsta, og þannig koll af kolli, uns einhver hefir unnið spil- ið. En þegar Orðaspilið er þyngt á þenna hátt eða annan, þá má búast við að stafastokkurinn sem upprunalega er í borði, gangi upp áður en einhver spilamanna hefir losað sig við öll spilin og unnið. En. þá er stafaspilunum sem safn ast hafa í þann stokk, er spila- menn hafa lagt frá sjer, snúið við og sá stokkur notaður. Þessi dæmi eru tekiu um til- brigði sem hægt er að gera í regi um Orðaspilsins. En þau geta ver- ið ótal fleiri, og hafa spilamenn vafalaust fundið margar síðan Orðaspilið kom í notkun. „Má jeg spyrja vður um leynd- ardóm velgengni vðar?“ sagði ung ur maður við revndan og auðugan kaupmann. „Það er ekkert leyndarmál“, svaraði kaupmaðurinn. „Þú verð- ur bara að stökkva, þegar t.æki- færið býðst“. „En hvernig á jeg að vita, hve- nær tækifærið býðst?“ „Það er ekki hægt að sjá það; þú verður *fetöðugt að vera á hlaupum“. ★ Drukkinn maður gekk eftir göt unni með annan fótinn á gang- stjettinni en hinn í rennusteinin um. Lögregluþjónn gekk á eftir honum góðan spöl, greip síðan í öxlina á honum og sagði: „Komdsi hjerna, lagsi, jeg skal fylgja þjer heim. Þú ert blindfullur“. „Guði sje lof“, sagði drukni maðurinn. „Jeg, hjelt jeg vseri svona draghaltur“. Smælki. Dýrt tóbak í Nýlega barst hing- Danmörku. að til lands eintak af danska blaðinu „Politiken“ frá 15. júní í ár. Það var nærri 5 mánuði á leiðiuni fri Höfn. í blaðinu eru tvær grein ar, sem benda til þess, að tóbaks- skortur sje mikill í Danmörku í annari greininni er sagt frá því. að í Esbjerg hafi hálfur pakki (10 cigarettur) af „North State“ verið seldur fyrir krónur 12.50, og í sömu grein er sagt að dæmi sjen til þess að í sömu borg hafi ei:i „græn cecil“ cigaretta verið látin í skiftum fyrir heilan humar. „North State“ og „Cecil“ cigar- ettur voru fyrir stríð ódýrustu cigaretturnar í Danmörku, kost- uðti innan við eina krónu 20 stvkk in. Hin greinin segir frá því að í Horsens hafi verið ákveðið að hafa tvo „tóbakslausa daga í viku“. Það er að tóbaksbúðum verður lokað á mánudögum og fimtudögum. Aðra daga er öllum tóbaksbúðum lokað klukk- an 6 e. h. ★ Þegar lokið var við töku kvik- myndarinnar „Bill of diverce ment“ snjeri Katharine Hepurri sjer að meðleikara sínum, John Barrymore. og sagði: „Guði sje lof að jeg þarf ekki að leika oftar með yður“. „Hvað hevri jeg“, sagði Barrjr more. „Jeg vissi ekki, að þjer hefðuð nokkru sinni gert það‘. ★ Negri nokkur var að útskýra fyrir vini sínum hvað ræðumenska væri, og sagði: „Ef þú segir að svart sje hvíft, þá er það slúður. En ef þú segir svart er hvítt, öskrar eins og naut og berð í borðið, þá cr það ræðumenska“. ★ Lítill drengur útskýrði óþolin mæði á þenna hátt: „Það er mað ur, sem er að flýta sjer að bíða‘ . * . ★ Galdurinn við kurteist samtal er að opna aldrei munninn nema þegar maður hefir ekkert að segja

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.