Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1941, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1941, Page 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 421 -m~r-sr Loftards d Dýskaland í björtu Ein af stœrstu loftárásum. sem Bretar hafa gert á Þýska- land í björtu, var árásin á Knapsack-rafmagnsstöðina hjá Köln þann 12. ágúst s. 1. Knapsack-stöðin veitir rafmagni til margra helstu iönaðarborganna í Ruhr-hjeraði. 54 Blenheim sprengjuflugvjelar tóku þátt í árásinni. 42 komu heim aftur. Höfundur þessarar greinar er ungur, írskur flugsveitarforingi. Samkvœmt reglum í breska flughernum er nafn hans ekki birt. — *«• -O Knapsack rafmagnsstöðin hjá Köln. Myndin tekin úr breskri flug- vjel. Dökku deplarnir í loftinu eru loftvarnaskot. Eldar hafa kvikn að í verksmiðjum. VIÐ vissum að eitthvað mikið var á seiði, vegna þess, að við höfðum ekki verið sendir í leiðangra í nokkra daga, en það er jafnan merki þess, að eitthvað sje í uppsiglingu. Yfirmennirnir töluðu einnig um þetta. Við bjuggumst einna helst við að það vœri loftárás í björtu á einhverja borg langt inni í Þýskalandi. Það reyndist rjett vera, en þó jafnvei verra en við höfðum búist við — það var ein af þessum sjálfsmorðs ferðum, sem engum er neitt sjer- staklega um. Við komum saman í fundasaln- um á þriðjudagsmorgni til að taka við fyrirskipunum. Foring- inn sagði að hlutverk okkar væri að eyðileggja Knapsack-rafmagns- stöðina, fyrir norðan Köln, og sem er 150 mílur innan óvina land- svæðis. Við áttum að fljúga lágt alla leiðina og eins lágt og mögu- legt væri, þegar við kæmum yfi;- áfangastaðinn. Sprengjur okkar vorn þannig útbúnar, að þær sprungu ekki alveg strax og þær komu niður. Að fljúga lágt, þýddi það, að við áttum að vera í 10 til 20 feta hæð og tímasprengjurn ar eru vanalega þannig útbúnar. að þær springa rjett á eftir að þær koma niður, svo að aðeins gefst tími til að forða sjer. Ef flogið er í hóp, er mjög líklegt að seinni flugvjelarnar í hópnum verði fyrir loftþrýstingnum frá sprengjum þeirra flugvjela. er á undan eru. Þetta var ekki neitt skemtiverkefni, en það sýnir best, að það eru ekki flugmennirnir sjálfir, sem ráða því, hvert þeir fara. Flugmaðurinn verður að hlýða. ★ „Þrjátíu og sex flugvjelar fara hjeðan“, sagði foringinn, „og sum ar ættu altaf að hafa það af“. Hann varaði okkur við að merkja leiðina, sem fara átti, á landa- brjefin okkar, því ef einhver okk- ar yrði skotinn niður yfir Hol- landi, myndi alt vera komið upp um árásina áður en við væruni komnir á áfangastaðinu. Við lögðum af stað kl. 9,15 og flugum þrír og þrír hlið við hlið. Jeg stjórnaði sveit 24 flugvjela. Þetta var heiðskír dagur og ekki skýhnoðri á lofti. Þegar við lögð- um út yfir Ermarsund, bættust „Whirlwind“-orustuflugvjelar í hópinn. Þær áttu að fylgja okkur }Tir sundið og inn yfir Holland. Við flugum áfram nokkur fer yfir sjávarmáli — rjett strukumst við öldutoppana. Það er erfitt fyrir verði á jörðu niðri að sjá flugvjelar, sem rjett strjúkast með sjónum. Við sögðum hver öðrum skrítlur í einkasímum flugvjei- anna. Skygnismaðurinn minn var altaf að kalla til míu: „Þú bleytir á þjer vængina, laxi“. Og annar flugmaður stóð á því fastar en fótunum, að hann hefði veitt fisk með spaða flugvjelar sinnar. Jeg skal bæta því við, að þegar við komuni heim, kom í ljós, að tveir máfar höfðu fests í vjel einnar flugvjelarinnar. Hollendingar hafa vafalaust sagt: „Tveir af máfum okkar eru ekki komnir aftur til bækistöðva sinna“. Við flugum inn vfir Holland fyrir norðan Antverpen og flug- um svo lágt, að við nærri snertum símastaura og hús. .Einn náungi lenti á rafmagns háspennulínu og fjell til jarðar. Fjárans óham- ingja. En þegar frá er skilin

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.