Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1942, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.1942, Blaðsíða 6
334 LB8BÓK líORGUNBLAÐSINS gefið þann 16. janúar 1493. — HreptU bæði skipin mikinn storm og höfðu langa og stranga úti- vist. Kólumbus bjóst þá og þeg- ar við að skip hans mundi farast. Hann ritaði því á bókfell stuttan útdrátt úr skipsbókinni og bað finnanda, að koma því í hendur Spánarkonungs. Ljet hann bókfell ið síðan í vatnsþjettan trjekút og fleygði fyrir borð. En til hans hefir ekki spurst síðan. Svo illa tókst þó ekki til, sem Kólumbus þótti á horfast, og náðu bæði skipin til Evrópu heilu og höldnu. Þau höfðu orðið viðskila hvort við annað á hafi úti af völdum ó- veðursins og sigldu eftir það hvort sína leið. Kólumbus skildi, að Pinzón vildi verða á undan hon- um til Spánar, og vildi hann fyrir hvern mun hindra það. Ilafði hann af þessu miklar áhyggjur. Nú hafði hann minna skip og lak- ara, svo að úrslit kappsiglingar, ef í það færi, voru fyrirfram viss. Pinzon náði fyr til Spánar og tók höfn í Bayona í G'alisíu á vesturströnd skagans. Þar frjetti hann, að konungshjónin væru stödd í Barcelona, og hugðist hann að halda ferðinni tafarlaust áfram þangað og segja þeim alt af Ijetta um ferðir þeirra Kólum- busar og landafundi vestanhafs. Og þótt hann sjálfur lægi rúm- fastur sökum ofþreytu og sjúk- dóms, er hann hafði fengjð á hrakningunum um hafið, hjelt hann ferðinni áfram til Palos, og þangað kom hann 15. mars 1493 eða hálfum áttunda mánuði eftir að þeir fjelagar höfðu lagt af stað þaðan í leiðangur sinn vestur. Sama dag, aðeins nokkrum klukku stundum síðar, sigldi Kólumbus þar inn á höfnina, eftir að hafa orðið að leita hafnar bæði í Azór- eyjum og í Portúgal og lent þar í ýmsum mannraunum. Hafði hon- um verið gefið að sök að hafa farið í óleyfi konungsins þar í landi til portúgalskra nýlendna og að hafa haft þaðan mikið fje í gulli og verðmætum afurðum. Leiðangursmönnum var tekið for- kunnarvel í Palos og þóttust allir hafa heimt þá úr helju. Pinzón gat ekki notið sigurgleðinnar með fjelögum sínum, því að honum eln- aði sóttin og var hann fluttur dauðveikur til Le Rábida-klaust- ursins. Þar andaðist hann hálfum mánuði síðar (31. mars 1493). Kólumbus losnaði þannig ó- vænt og hentuglega við skæðasta keppinaut sinn. Eins og vænta mátti hraðaði hann sjer á fund konungshjónanna í Barcelona, og er þar skemst frá að segja, að um það leyti sem Pinzón andaðist í La Rábida-klaustrinu, var fje- laga hans fagnað með eindæma viðhöfn í höfuðborg Katalóníu. Ljet konungur hann setjast and- spænis sjer í viðurvist allra stór- menna hirðarinnar og skýra frá því, sem hann hafði heyrt og sjeð. Mælska hans og eldmóður nutu sín vel, þegar frá svo nýstár- legum atburðum var að segja, og hafði ræða hans hin dýpstu áhrif á alla viðstadda, æðri sem lægri. Til stuðnings frásögn sinni sýndi hann þarna hina sex tattó- veruðu Indíána, sem hann hafði hafði haft með sjer frá Vestur- heimi. Þeir voru leiddir fram fyrir konung og látnir taka skím sam- kvæmt boði hans. Einnig hafði Kólumbus ýmsar gjafir meðferðis til konungshjónanna, lifandi páfa- gauka, hami af óþektum fuglum og dýrum, þurkaðar kynjaplöntur og allskonar skartgripi úr skíru gulli. Áhorfendurnir voru orð- lausir af undrun. Þegar Kólumbus hafði lokið ræðu sinni, stóð öll hirðin á fætur og söng Te Deum- lofsönginn. Kolumbus reyndi þarna að færa sönnur fyrir þeirri skoðun sinni, sem hann kvikaði síðan aldrei frá, þótt hann ætti eftir að fara þrjár ferðir enn vest- ur um hafa, að hann hefði nú kom- ist til Indlands og Cipango eða Japans og þar með fundið stystu sjóleiðina þangað. Hann segir svo sjálfur frá í dagbók sinni, að hann hafi fengið skipshöfn sína til að undirskrifa þessa röngu staðhæfingu og vinna eið að, og hann bætir við: „Fyrir hvert það skifti, sem einhver kann að halda öðru fram um þetta, en hann nú viðurbennir, ákvað jeg að hann skyldi sæta 10 þúsund maravedísa sekt, sje hann yfirmaður, og auk þess skal tungan skorin úr hon- um, en sje hann háseti eða hjálp- arsveinn skal hann fá hundrað vandarhögg og missa tunguna". Hversvegna Kólumbus hefir verið þetta svona mikið kappsmál, og hví honum þótti svo grimmileg hegning þurfa við að liggja, ef út af var brugðið, er ekki vel ljóst. En þar, sem víðar, virðist gæta þeirra eiginleika hans, sem hann átti mest að þakka alla sína sigra og jafnframt voru undirrót allrar óhamingju hans undir lok æfinnar. Trú á óskeikulleik sinn, fastheldni, sem nálgaðist þrá- hyggju, við fyrirfram sannfær- ingar, metnaður og geðríki hins mikla athafnamanns. Þetta voru kostirnir, sem ljetu rætast alla drauma hans um uphefð og auð, og um leið þeir skaplestir, sem sviftu hann þessu aftur og fjar- lægðu vini hans og stuðnings- með frá honum. Á hátindi frægð- ar sinnar stóð Kólumbus einmitt eftir heimkomuna úr fyrstu för sinni til Vesturheims. Hann var sæmdur aðmírálsnafnbót, veitt landstjóra- og undirkonungstign „yfir öllum þeim eyjum og lönd- um, sem hann hafði fundið eða kynni að finna“. Ennfremur fjekk hann leyfi til að draga á skjöld sinn mynd af kastala og ljóni, en það eru skjaldartákn tveggja höf- uðríkjanna á Spáni, Kastinu og León. Kólumbus ljest í maí 1506, og var niðurlæging hans þá orðin slíb, að engum sagnritara samtíð- arinnar hefir þótt vert að geta þess atburðar einu orði. Var þá þegar orðið kunnugt, og enda ýmsir, þ. á. m. Pinzón-bræður, aldrei efast um það frá upphafi, að lönd þau, sem þeir Kólumbus fundu, voru hvorki Indland nje Japan, heldur lönd, sem menn hafði ekki grunað áður, að væru til. Heitin „Indíánar“ og „Vestur- Indíur“ eru einu menjarnar, sem þráhyggja hins mikla aðmíráls hefir skilið eftir sig. En ættmenn Kólumbusar fengu leyfi til að grafa á skjöld sinn þessi einkunn arorð: „A Castilla y a León Nuevo mundo dió Colón“. Kastilíu og León gaf Kólumbus nýjan heim. Vicente, hinn yngri Pinzón-bræðra, tók einnig upp Framh. á bls. 336.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.