Lesbók Morgunblaðsins - 18.07.1943, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 18.07.1943, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 215 nafnkenndir fastakaupmenn, svo sem N. Chr. Gram á Þingeyri í Dýrafirði, Stykkishólmi, Ólafs- vík og víðar, byrjuðu fyrst verzl- un hérlendis sem lausakaupmenn. Oft þóttu lausakaupmenn gefa „betri prísa“ en fastakaupmenn og voru vel séðir af almenningi en miður af fastakaupmönnum, sem eðlilegt var. Til lausakaupmanna mátti og telja Norðmenn sem fluttu hing- að ti'mburfarma á smærri og stærri skipum, sem svo oft fóru til þorsk- eða síldveiða um sum- arið, og héldu heim aftur að haustinu með afla sinn. Gott þótti að eiga viðarkaup við Norð- mennina, enda voru þeir auð- fengnir til þess að flytja viðinn til afskekktari staða, ef um við- skifti til muna var að ræða. Ekki var það ótítt, að fasta- kaupmenn voru jafnframt speku- lantar eða lausakaupmenn. Stund um voru vöruskipin notuð til þessara ferða; var þá nokkuð af lestinni notað sem krambúð, en oftast voru smærri skip notuð til spekulantsferðanna. Kaupmenn hér á Isafirði fóru spekulantstúra bæði um allt Djúpið, vestur á fjörðu og norð- ur í Strandasýslu. Kaupmenn á vestari fjörðunum komu iðulega í spekulantsferðir hingað að Djúpi, Einnig komu Reykjavík- urkaupmenn í spekulantsferðir hingað, má meðal annars nefna Þorlák Ó." Johnsen. Samkeppni í verzlun á þessum tíma var því meiri en almennt hefir verið lát- ið yfir og komið hefir fram í rit- gerðum um verzlunarmál. Við þetta innskot má og því bæta, til frekari upplýsinga, að hér vestra var það altítt, að stærstu við- skiftamennirnir (þ. e. þeir sem höfðu mest „innlegg"), fengu nokkru hærra verð en aðrir. Mikið fór að draga úr speku- lantsferðum hér vestra um og eft- ir 1907; þó héldust þær við fram í byrjun fyrri heimsstyrjaldar. Síðan hafa þær ekki verið tekn- ar upp aftur. Það var siðvenja í spekulants- ferðum, að bjóða öllum betri við- skiftavinum til káetu og bjóða þar „hressingu". Hressingin var almennt: Brennivín, rúsínur og hagldabrauð (kringlur) og stund um einnig hvítasykur. Þóttu þetta herramanns-kræsingar og upphefð mikil að vera boðið í ká- etuna. Ef um gamla viðskiftavini var að ræða, voru þeir oft leiddir út með gjöfum. Voru það aðal- lega rósaklútar og léreft fyrir kvenfólkið, en vín fyrir karl- mennina. Vöruskipin gömlu voru mis- jöfn að gerð og stærð, en þeim var það sameiginlegt að vera traust. Fyrri hluta þess tímabils, sem greipin um ræðir, munu hvorki vörur né skip hafa verið vátryggt. Átti „reiðarinn“ því mikið undir, að allt kæmist slysa- lítið á ákvörðunarstað og bjó sem bezt um, þar sem hann bar sjálf- ur ábyrgðina. Eftir að leið fram á fyrgreint tímabil ruddu vá- tryggingar sér til rúms; áhættan varð of mikil til þess að menn fengjust til að láta kylfu ráða kasti hvernig til tækist um vöru- flutningana. Islenzkir skipstjórar voru næsta fáir í förum á fyrrgreindu tímabili; þó bar slíkt við eins og dæmin sýna um þá skipherrana Ásgeir Ásgeirsson og Hinrik Sig- urðsson, sem skýrt er frá hér að framan, og síðan skipstjórn Árna Riis Aðalbjörnssonar, sem mun hafa verið fyrsti íslenzki skip- stjórinn á íslenzku gufuskipi. Fjöldi hinna dönsku skipstjóra voru djarfir fardrengir og unnu mörg afrek, sem efni væru 1 hetjusögur. Hefir sumt af því skráð verið, en hitt þó miklu meira, sem hvergi er skráð og gleymt og grafið í tímans önn. Baráttan við stormana og myrkr- ið í vitalausu landi var ægileg, en baráttan við hafísinn var þó enn ægilegri og leiksejgari. Þar var iðulega strítt og barist eins og þeir einir gera, sem hugsa um það eitt að gera skyldu sína með- an nokkur máttur er í limum lík- amans. Bundnir við stýrið stóðu menn stundum í frosti og stór- hríðum 2—3 sólarhringa til þess að freista þess að halda skipi sínu ofansjávar og koma því til á- kvörðunarstaðar. Fólkið, sem svangt og von- svikið beið, komu vorskipanna, skildi þessa baráttu. Það fagnaði utlendingunum sem færðu þeim nauðsynlega björg og hafði afrek þeirra í heiðri. Hér hefir nokkuð verið drepið á erfiðleika, sem „siglingin" í gamla daga átti við að stríða, er því sjálfsagt að minnast þess einnig að mörg förin varð happa- sæl og stundum óskaleiði. Eru til órækar heimildir fyrir því, að hin þungfæru seglskip fóru stund um á tæpum 7 sólarhringum frá íslandi til Kaupmannahafnar. T. d. má nefna eina ferð á Þykkva- bænum, skipstjóri Lambertsen (faðir A. C. Lambertsens verzl- unarmanns, og er hann heimild- armaður frásögunnar). Hann lagði út frá Islandi eftir að hafa hlýtt messu á sunnudegi og var við messu í Kaupmannahöfn næsta sunnudag á eftir. Var Þykkvibærinn skonnert-galeas, afar-gangtregur, en stöðugur sem sker. Heyrt hefi ég, að dæmi séu til að seglskip hafi farið héðan frá Islandi til Kaupmannahafnar á rúmum 6 sólarhringum, og tel enga ástæðu til þess að rengja þá sögusögn. ★ J Einn þáttur „siglinganna“ á þessu tímabili voru póstskipin. Þau komu fyrst tvær til þrjár ferðir á ári, en smámsaman fjölg- aði ferðum þeirra, einkum að sumrinu. Miðsvetrarferð var að- eins ein, þar til nokkuð fram yfir aldamótin síðustu. Úr því má telja að samfelldar siglingar hefj- ist hingað til lands. Undirrót þeirra umbóta var sérstaklega samkeppni milli gufuskipafélaga, einkum Thore- og Sameinaða- gufuskipafélagsins, svo komu síð- ar til norsk gufuskipafélög, bæði Eergenska- og Nordenfjeld-gufu- skipafélögin. Langt fram yfir aldamót var komu póstskipsins almennt fagn- að. Menn þyrptust að höfninni og lendingarstaðnum til þess að glápa á þá, sem komu, líkt og naut á nývirki eða til þess að heilsa kunningjunum. Enn helzt þröngin á bryggjunum og við

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.