Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1943, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1943, Síða 6
230 LESBOK MORGUNBLAÐSINS Fyrir 90 árum: Jón Hjaltalín landlæk nir sá notagildi nveranna Jón Hjaltalín landlæknir var einnig náttúrufræðing- ur og ferðaðist hann víða hjer um land í rannsóknar- erindum fyrir rúmum 90 árum. Ritaði hann Jóni Sig- urðssyni forseta brjef um þessar rannsóknir sínar, og er gaman að sjá hvað hann hefir verið langt á undan tímanum þar sem hann talar um þá gagnsemi, sem Is- lendingar geti haft af jarðhitanum. 0g enn í dag er ýmislegt af því, sem hann sagði þá, orð í tíma töluð, þrátt fyrir miklar breytingar. Þykir rjett að prenta hjer upp nokkra kafla úr brjefi hans, er f jalla um jarð- hitann í sambandi við Geysi. ÞAÐ ERU markverðir kraftar, sem láta sig í ljós á þessum stöðum, og eins markverð eru efnin, sem út af þeim spretta, og svo segir mjer hugur um, að eigi muni líða margir mannsaldrar hjeðan í frá, áður menn nota þá til einhvers annars en glápa á þá eins og tröll á himnaríki. Það er almennt að ferðamenn komi að Geysi til að skoða hann, sem nokkurskonar náttúruundur, og er hann þess vel verður, því að fáir staðir munu vera þeir í heimi, er fremur sje undrunarverðari nje skoðunar- verðari en hann, og enginn jarð- fræðingur ætti sá að vera til á Norðurlöndum, sem ekki hefði sjeð hann, því það sem hjer er að sjá og skoða getur enginn ímynd- að sjer, sem ekki hefir sjeð það. sem teygðist upp fyrir hana, spegl- ast í augum eldri mannsins. Svo skvettu þeir báðir korgnum úr bollunum og stóðu upp samtím- is. Við verðum nú að leggja af stað, sagði eldri maðurinn. Yngri maðurinn sneri sjer að mér: Viljir þú fá vinnu við baðm- ullartínsluna, getum við ef til vill komið því í kring. Nei, jeg verð að fara aðra leið. Þakka ykkur fyrir matinn. Eldri maðurinn bandaði hend- inni eins og til að segja: Ekkert að þakka. Jæja, það var gaman að hitta þig. Svo gengu þeir báðir burt saman. Loftið var orðið al- bjart í austrinu. — Og jeg hjelt mína leið niður þjóðveginn. Þetta er alt og sumt. Vitanlega eru mjer kunnar ýmsar þær ástæð- ur, sem eru þess valdandi, að þetta var svo notalegt. En yfir þessu litla atviki er einnig svo mikil fegurð, að það fer um mig hlýr straumur í hvert sinn, er mjer kemur það í huga. Jarðlögin og steinategundirnar, sem Geysir og hverarnir umhverfis hann hafa myndað, og mynda dags daglega á vorum dögum, eru svo markverðar og lærdómsríkar, að um þær þyrfti að rita heilá bók, og þarf enginn að ætla, að slíkt sje áhlaupaverk, því hjer er mikið að skoða og rannsaka, bæði hvað náttúrukraftana og náttúruefnin snertir. Það eru raunar margir kraftar og margir hlutir markverðari við Geysi, sem þegar við fyrsta álit sýna sig fyrir náttúrufræðingnum, og nefni jeg meðal þeirra afl guf- unnar sem veldur gosinu, ólífisloft- ið, sem gufar upp úr vatninu, — hverahrúðurinn og steingjörving- ana, með öllum þeirra óteljandi myndum, en hinir hlutirnir og kraftarnir, sem huldir eru fyrir manna sjónum, og sem eigi láta sig í ljós nema nákvæm rannsókn sje við höfð, eru þó langtum fleiri og ennþá markverðari, ef menn vilja komast niður í slíkum náttúrunn- ar furðuverkum, sem vera ber, og samkvæmt þykir vorra tíma upp- lýsingu. Það er til að mynda nú á vorum dögum býsna áríðandi að vita hvort öll hveravötn hafi í sjer „burísefni" eða „buríssýru“ eða ekki. Það væri áríðandi að vita hvort sýruefni þetta fyndist í Geys- isgufunni eða ekki, og geti menn gengið úr skugga um það að hún sje þar, sem öll líkindi eru til, þá þarf að vita, hvort nokkurt gagn má verða að sýrunni til að búa til úr henni buríssýru, svo að haldi komi fyrir þá, sem að því výina, og hvort það muni svara kostnaði. (Síðan getur hann um það, að í Toscana á Ítalíu hafi menn stórhagnað af að vinna bur- íssýru úr hveragufu, og sje þó nauðalítið af henni í gufunni, en verkið er ljett af því að lítið þarf fyrir að hafa, þar sem menn láta sýruna sjóða út úr vatninu við guf- una úr hvernum). Hafa mætti gagn af honum (Geysi) og hinum öðrum hverum, sem eru í kring um hann, til margs, af menn kynnu með að fara, og þó jeg þori eigi að full- yrða það með vissu, þá hygg jeg að þar sje svo mikil buríssýra í vatn- inu og gufunni, sem í Toscana, — enda hægt við að jafnast þar sem menn á þessum stað fá aðeins nokkur pund af hverju þúsundi punda vatns, og þó sjóða menn þar hjer um bil 2 miljónir punda af burís á hverju ári. Jeg komst að raun um það, með því prófi, er jeg gat viðhaft, að buríssýra er í Geysis-gufunni. Á Suður-Frakklandi hafa menn á einum stað hver einn, sem hafð- ur er til að hita heila borg, þegar kalt er. Þetta sama vatn er og haft til að halda við stórum jurta- görðum, svo að í þeim geti vaxið jurtir og aðrir ávextir, þó að kalt

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.