Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1945, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1945, Qupperneq 4
516 LESBOK morgunblaðsins ar, Rúfevjar, Ólafseyjar, Flatey og' fjölda margar aðrar. Eyjarnar hjerna bera a£ eyjunum að sunnan því að þær virðast allar vallgrónar, og eru eins og grænir feldir á dökk bláum grunni. 1 norðri sjást múl- arnir milli fjarðanna í Barða- strandarsýslu. Ilagatafla og fremst Skorarhlíðar og Skor. Ólafseyjar eru: Bæjarey, HóJey og þrír hólmar. Reykhólar áttuáður þær evjar og þangað sóttu þeir fóst bræður og Grettir nautið, sem frægt er orðið. Seinna voru höfð evjaskifti, þannig að Skarð fekk Ólafseyjar, " en Reykhólar Skarðseyjar, sem eru lengra inni í firðinum. I Ólafseyj- ur er slægjuland, fuglatek.ja og egg ver og þar var fyrrum höfð vetrar- útbeit frá Skarði og fóðraður þar fjenaður. í Suðurlöndum (Langev, Fóey og 4 smáhólmum) er mikið skarfakál. Rauðseyjar eru: Bæ.jar- ey, Beitarey og smáhólmar. Rúfeyjar eru: Bæjarey, Múl ey og Snðurey auk smáhólma. Þau álog hvíldu á Rúfeyjum forðum, að þar mátti ekki hafa griðung. Iluldu fólksbygð var í eyjunum og átti huldufólkið griðung og fanst ó- þarfi að hafa þar fleiri þarfana\;t. Og ár eftir ár fengu kýr bóndans við nauti huldufólksins. En svo fluttist þangað bóndi, sem Sigurð- ur hjet. Hann trúði ekki á huldu- fólk og vildí ekki eiga neitt á hættu og flutti út naut, en það var þegar drepið. Ekki gafst Sigurður upþ að heldur og flutti íit annað naut og hið þriðja og fór á sömu leið. Voru þannig drepin fvrir honum 19 naut. En þegar hann flutli hið tuttugasta út, bar ekki neitt á neinu, og upp frá því voru höfð naut í Rúfeyjum. Skarðstöð var áður verslunar- staður þar verslaði Björn Sigurðs- son bankasf.jóri og síðar Guðmund- ur Jónasson. Var þá mikið um framkvæmdir þarna, mörg hiis bygð og hafskipabryggja, sem enn má sjá merki. Nú er þar aðeins eitt hús, kaupfjeíagið á. — Er þar geymd þungavara, ull tekin á vor- in, og fje slátrað á haustin. Skarð- stöð er yst í nesinu fram vindan Skarði og er bílvegur þangað. Fyr- ir innan nesið eru tvær eyjar, sem örfiriseyjar heita, og mjótt sund milli þeirra og lands. Vst er sundið hyldjúpt, og þar var höfnin. Er greið innsigling þangað og höfnin örugg í flestum áttum. Þarna við sjóinn eru klappaholt með votlend- um sundum á milli. Fremst á nes- inu eru miklar rústir af eldri bygg- ingum. Voru þar bæði timburhús og torfbæir þurrabúðarmanna, tún og blómagarður. Þar má sjá byrgi allmikið hlaðið úr grjóti á þrjá vggu. Þar inni eru 2 stórir lýsis- bræðslupottar á hlóðum; eru þeir nú hálffullir af rusli, sem hrunið hefir ofan í þá og er orðið vallgró- ið. Þar má ennfremur sjá gamla vindu, sem höfð liefir verið til þess að draga upp báfa. Og á klöpp fyr- ir framan kaupfjelagshúsið eru leifar af hafskipabrvggjunni. Iljer í nesinu er Tónavör, kend við Ólaf tóna eldra. Hann átti einu sinni heima á Skarði og var falinn ramgöldróttur. Var mælt að hann hefði lært þær listir af Rtraum- fjarðar.IIöllu. En sagan um vörina er sú. að Ólafur gerði samning við köiska um það, að hann skyldi ryðja vör í blágrýtisurð þarna niðri í Stöðinni og skyldi hann eiga sig, ef hann vrði fljótari að ryðja vör- ina en ólafur að ríða heiman frá Skarði niður i Stöð, en Ólafnr átfi flugskjótan hest. Þetta fór svo, að þegar Ólafur kom að kölska var hann að bisa við seinasta steininn. Varð hann þá svo reiður, að hann þevtti heljarbjargi í vörina. sem ó- nýtti hana og stóð þar lengi þang- að til það var sprengt með púðri. því að engin mannshönd s'at rogað þvi. — önnur saga um Óljif tóna er sú, að hann hafi lofað að taka (íufudalsháls og brúa með yfir Gilsfjörð og vildi hafa gjald af hverjum bónda; en bændum þótti gjaldið of mikið, svo ekki varð neitt úr neinu. — Við Ólaf er kend- ur Tónafoss í Bæjará i Króksfirði; þar druknaði hann. ★ Kirkjan á Skarði er með merki- 'legustu kirkjum þessa lands. Hiin hefir frá upþhafi verið eign stað- arins og hún á marga gamla og dýrmæta gi'ipi. Er þar fvrst að telja altaristöfluna vængjatöflu með upjihleyptum myndum, og er hún ekki ósvipuð altaristöflunni á IIól- um. Talið er að ólöf ríka hafi keypt þessa töflu og sett í kirkjuna. Og að taflan þvkir merkisgripur má marka á því að hún var fengin að láni til þess að hafa hana á sýn- ingu í París. En í því hnjaski, sem hún varð fyrir á því ferðalagi, skæmdist hún nokkuð og bíður ]>ess víst aldrei bætur. Hún stendur á skáphyllu ofan á altarinu. t baki þeirrar hyllu eru tvö útskorin spjöld, sitt til hvorrar handar. Á öðru þeirra stendur: LTKAME :TE SV :CHRISI :IIRE INSE :OSS :AF :ÖL LVM :VORVM :S INDVM :AM EN. En hjnum meginn stendur: DASS :BL VD :TESV :CIIRI STT :MACKE :II RÆN :FON :ALLE N :SVNDEN :AM 1678. Prjedikunarstólinn er einnig með vængjatöflu, og utan á hnrðum hennar eru myndir af Daða Bjarna- syni og Arnfrfði Benediktsdóttur konu hans. Ilndir myndirnar er letrað: ,,Daði Bjarnason hvílir hjer undir hvor að guðrækilega

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.