Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.1946, Síða 5
LESBOK MORGUNBLAÐSINS
257
Helgi Pjeturss. dr.
FRAMFARIE, SEM ORÐIÐ GETA
EF ÞEKKINGAR NYTI VIÐ
I.
FYRIR ekki allfáum árum sá jeg
þess gétið, að breskir læknar væru
farnir að hafa áhyggjur af því hve
mjög trúin á hina svonefndu anda-
lækna og andalækningar færi í
vöxt þar í landi. ,Mun þó sú trú
hafa ágerst eigi alllítið síðan, og
nú er nýkomin út á íslensku bók
um þann sem talinn er vera fræg-
astur allra slíkra lækna. Bókin heit
ir „Undralæknirinn Parish, frásagn
ir um kraftaverk nútíma andalækn
is“, og er eftir hinn kunna spiri-
tistarithöfund M. Barbanell, en Sig-
urður Haraldz (sonur sjera Harald-
ar heitins Nielssonar) hefir þýtt, og
á hann að vísu þökk skilið fyrir
það verk, því að bókin er fróðleg.
Segir þar frá mörgum furðulegum
lækningum, og mun það erfitt
reynast að halda því fram, að þetta
sje altsaman skáldskapur, eða jafn-
vel að mestu leyti. En hinsvegar
er ekkert getið um þá mörgu, sem
gera má ráð fyrir, að leitað hafi
til undralæknisins árangurslaust.
Margir hafa haldið, að ekki sje trú-
andi neinu af því, sem sagt hefir
verið af undralækningum í krafta-
verkabænum Lourdes á Frakk-
landi. Munu þó vera fyrir hendi
vottorð lækna um mörg þessi
„kraftaverk“, en einnig áreiðanleg-
ar upplýsingar um það, að einung-
is örfáir af þeim mikla fjölda sjúkl-
inga, sem til kraftaverkaborgar-
innar hafa leitað í von um að fá
þar bót meina sinna, hafa læknað-
ir verið.
Vantar því mikið á, að svo vel
sje, sem vera þyrfti, enda ekki við
öðru að búast, þar sem er í þessum
efnum meir um trú að ræða en
þekkingu. Menn hafa ennþá hvergi
nærri gert sjer Ijóst hvernig á
undralækningunum stendur, og þá
heldur ekki á orsökum þess, að
þær bregðast svona oft.
II.
FRAMFARIR í læknisfræði hafa
verið mjög miklar, einkum síðustu
100—150 árin, og þær framfarir
hafa verið svo þýðingarmiklar, að
án þeirra myndu mennirnir sem
byggja jörðu vora, óefað vera nokkr
um hundruðum miljóna færri en.
er. En þessar framfarir er að mjög
miklu leyti að þakka aukinni þekk-
ingu á náttúrunni. Er sá þekking-
arauki að nokkru leyti til orðinn
fyrir starf manna sem sjálfir voru
læknar, en þó einnig að mjög miklu
leyti náttúrufræðingum sem ekki
voru læknar. Er þar frægasta dæm-
ið Pasteur, og uppgötvun hans á
þessum smáverum, sem margar
hverjar valda hinum háskalegustu
veikindum. Er óhætt að segja, að
læknarnir hafa verið fljótir að færa
læknisfræðinni í nyt þær uppgötv-
anir í náttúrufræði sem að liði
gátu orðið. En þó er nú svo ennþá,
að þrátt fyrir allar framfarir, og
þrátt fjmir allan þann fjölda, sem á
endurfengna heilsu sína, eða þá
það, að þeir hafa ekki sýkst, hinni
vísindalegu læknisfræði að þakka,
þá er þó ennþá ekki betur komið
en svo, að mjög margir, og það ein-
mitt þeir sem helst þyrftu hjálp-
arinnar með, fá enga bót meina
sinna og verða að deyja kvalafull-
um dauða.
Örugglega má þó segja þao fyrir,
að þær framfarir geta orðið í lækn-
isfræði, að enginn þurfi árangurs-
laust að leita hjálpar. Og það er sá
möguleiki sem leynist undir- hin-
um svonefndu andalækningum. En
áður en jeg sný mjer að því að
skýra þetta nokkru nánar, ætla
jeg að minnast á sumt stórfróðlegt
og eftirtektarvert í þessari bók sem
Sigurður Haralz hefir þýtt.
III.
„Hinn andlega lækningakraftur
Parish“ — segir í bókinni, s. 16 —
„hefir náð heimsálfanna á milli“.
Sjúklingar þeir, sem bót fengu
meina sinna fyrir áhríf frá undra-
lækninum, voru oft í öðrum heims-
álfum.
Virðist ekki unnt að skýra þetta
öðruvísi en svo, að einhver tegund
orku geisli frá lækninum til sjúkl-
inganna ,svo að rjett sje að tala
um lífgeislunarlækningar, Bioradi-
oþerapí. Parish hefir, að því er í
bókinni segir, oft getað „lýst ná-
kvæmlega herbergjum sem hann'
hefir aldrei sjeð í sínum jarðneska
líkama. Og fjölmargir sjúklingar
(fjarri lækninum) hafa orðið fyrir
því, að sálrænn skygnihæfileiki
þeirra hefir opnast, og þeir hafa
sjeð heilsugjafa sinn“.
í sambandi við slíka hæfileika
hafa menn taláð um „astral“ferða-
lög og „travelling clairvoyance“,
og má sýna fram á, að það er mis-