Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.1946, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.1946, Side 5
LESBÓK MORUUNBLAÐSINS 337 okkur, að hann hefði þá fyrir skemstu sjeð einhvers konar skepnu s.vnda í vatnsborðinu. Að lögun og lit líktist hún skötu, en var geisileg fyrirferðar. Ollum bar saman um, að kvikindin í Kleifarvatni sje stórvaxnari en í Grænavatni (sem líka er í Krýsuvík) og sjáist lengur í einu. Þegar við vor- um á þessuin slóðum 1750, var okk- ur sagt margt um Kleifarvatn, aðal- lega þó það, að þótt menn vissu að vatnið væri fult af fiski, sem vakir þar sífelt í yfirborðinu, þyrðu menn ekki að veiða í því fyrir ormi eða slöngu, sem væri í vatninu. Ormur þessi væri svartur á lit og á stærð við meðal stórhveli, eða 30—40 álna lang- ur. Fylgdarmaður okkar sagði okkur, að hann hefði oftsinnis horft á orm þenna, bæði þegar hann hefði verið þar einn á ferð og í hópi annara manna, því að oftast þegar ormurinn sjest, er hann nálægt tveimur mínút- um uppi. Ilann sagði okkur einnig, að í ágústmánuði 1749 hefði allmargt fólk, bæði karlar og konur, sem var að heyskap við vatnið í kyrru veðri og sólskini, sjeð orm þenna miklu bet- ur en nokkur maður hafði áður gert, því að hann héfði þá skriðið upp úr vatninu upp á lágan og mjóan tanga eða rif, sem gengur út í það, og þar hefði hann legið í hartnær tvær klukkustundir, áður en hann skreidd- ist út í vatnið á ný. Fólkið var svo skelft allan þennan tírna, að það þorði ekki fyrir sitt líf að nálgast orminn, en af því að hann lá hrevfingarlaus allan tímann, flýði það ekki brott, en samt gat það ekki skýrt frá því hvern- ig ormurinn komst upp á land eða hvernig hann fór aftur út í vatnið. En mergurinn málsins er þetta, að ormurinn kom upp úr vatninu, óx eða hækkaði og skreið áfram, án þess á því bæri, og hvarf síðan á meðan fólkið sá til“. — Það er leiðinlegt að ekki skuli lengur vera hægt að bjóða fólki upp á að kynnast þessari furðu- skepnu. En í Krýsuvík er nú samt ýmislegt nýstárlegt að sjá, og annað náttúruundur, sem ekki er minna um vert en ormrnn, goskraftana, sem ver- ið er að leysa úr læðingi. Hefir verið borað þar eftir jarðhita á nokkrum stöðum og á einum stað kemur upp gufa með geysimiklum krafti. Hvín svo mikið í þegar hún þeytist upp um pípuna, að ekki heyrist mannsins mál þar umhverfis. Borholan er 3 þuml- ungar í þvermál og 85 metra djúp. Gufan er svo að segja þur og um 130 stiga heit. Virðist nóg af henni þarna, því að svona hefir hún látið síðan um nýár. Annars er fróðlegt að geta þess, að í Krýsuvík voru gerðar jarð- boranir fyrir rjettum 190 árum. Voru það þeir Eggert og Bjarni, sem stóðu fyrir því. Boruðu þeir þar fyrst eina holu 32 feta djúpa og þóttust þá komnir niður úr hitanum. Daginn eft- ir boruðu þeir á öðrum stað, og „í 7 feta dýpi heyrðum við óvanalegt hljóð eða hávaða. líkt og þegar sýður ákaf- lega. Samt heldum við áfram að bora niður í 9 feta dýpi. En þá fór að koma hreyfing á jarðveginn og þótt holan kring um nafarinn væri harla þröng, tók þunnur grautur að spýtast þar upp með ógnakrafti. Við neyddumst þá til að hætta og drógum nafarinn upp. En þá fekk hitinn fulla útrás og þeytti sjóðandi, leirblöndnu vatni 6—8 fet í loft upp. Eftir skamma stund linti þó óróa þessum og held- um við að þá hefði hitinn stilst. En það leið ekki á löngu áður en hónuni' jukust kraftar á ný og þá tdk hann til muna að gjósa og sjóða án afláts. Við sáum þá, að við höfðum méð þessum r.ðgerðum okkar búið tjl ný- an hver“. Jarðnafarinn sem þeir höfðu mun hafa verið lítilfjörlegur í saman- burði við þau tæki sem menn hafa nú. Og þeir voru ekki að bora eftir hita. heldur til þess að kanna jarðlög á hverasvæðum. Nú eftir tæpar tvær aldir hefir hitinn verið sóttur niður í skaut jarðar og í ráði að nota hann sem orkugjafa. Heilinn í stórum górillaapa vegur ekki nema um 650 grömm, en heilinn í karlmanni 1300—1500 grömm. Talið er að heilinn í frumstæðasta stein- aldarmanni hafi ekki vegið nema tæp 1000 grömm, en heilinn í Neand- erthals-manninum um 1700 grömm.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.