Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.1946, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
339
Jnirfti ekki ti'l. Þá var stríðið hafið.
í heilt ár var barist og 40.000 manna
fellu. Og alt var þetta út af einu litlu
frímerki.
Svipaður atburður gerðist í Mið-
Ameríku, ])ótt afleiðingarnar yrði
ekki slæmar. Moskitoströndin hafði
um langan aldur verið talin eign
Honduras og engum hafði dottið í
hug að draga það í efa. En svo skeð-
ur það einn góðan veðurdag að
Nicaragua gefur út frímerki mcð
landabrjefi, og þar sást að Moskito-
ströndin var eign þess rikis.
Honduras mótmælti þegar. Því var
ekki svarað. Þá dró Honduras saman
herlið á landamærunum. Það var ekki
annað sýnna en að alt færi í bál og
brand. Þá skárust Bandaríkin í ieik-
inn og Niearagua lofaði að hætta að
nota frímerkin og ónýta það sem til
væri af þeim. Honduras krafðist þess
að fá myndamótin, en þá var sagt
að þau hefði verið seld til bræðslu.
Seinna kom í ljós, að prentsmiðjan,
sem hafði keypt þau, var á bandi
stjórnarinnar í Nicaragua. Og svo
voru hinir og aðrir látnir gefa út frí-
merkin og selja þau í slumpum, og
græddist þannig á þeim stórfje.
ÞEGAR í upphafi byrjuðu menn
á því að safna frímerkjum, og líma
þau inn í bækur. Þessi dægrastytting
hefir síðan orðið að sjálfstæðri vís-
indagrein og atvinnugrein ,sem menn
af öllum þjóðum stunda. Georg Breta-
konungur og Farouk Egyptakonung-
ur safna frímerkjum af kappi. Á því
sjest, að frímerkjasöfnun er bæði
unglinga og kónga gaman.
STJÓRNIN í Bandaríkjunum læt-
ur frímerkjaverslun til sín taka. Hún
hefir t. d. bannað alla verslun með
frímerki öxulveldanna, sem eru vngri
en frá árinu 1940. Og í stríðinu var
haft mjög nákvæmt eftirlit með ö!l-
um frímerkjum. Það kom sem sje í
ljós að þau voru notuð við njósnir.
Aftan á þau voru skrifaðar ýmsar
upplýsingar.
Áður en Bandaríkin hófu herferð-
ina inn í Evrópu höfðu þau látið
prenta kynstrin öll af nýum frímerkj-
um, til þess að nota þar. Þetta eru
kölluð Amgot-frímerki. Á þeim var
ofuriítill auður reitur fyrir nafn þess
lands, þar sem þau áttu að gilda. Og
fjórum klukkustundum eftir að
Bandaríkjaherinn hafði náð fótfestu
á Sikiley, var búið að prenta nafn
Italíu á þessi merki.
EINKENNILEGT er það, að elsta
frímerki hehnsins er hvorki það sjald-
gæfasta nje hið dýrasta. Dýrasta frí-
merkið er cents-frímerki, sem gefið
var út í British Guvana 1856. 1 frí-
merkja-leiðarvísi Scotts, er þetta frí-
merki metið á 50.000 sterlingspund.
Sá, sem ætti þennan litla og ósjelega
mioa, gæti því bvgt sjer stórhýsi fyr-
ir hann.
Annað dýrt frímerki er sænskt
þriggja skildinga frímerki. Þegar það
var boðið fyrst til sölu, vildi kaup-
andinn ekki gefa meira fyrir það en
14% af andvirðinu, vegna þess að lit-
urinn á því væri rangur, gulur í stað-
inn fyrir það að hann átti að vera
grænn. En þessi litamistök prent-
smiðjunnar urðu til þess, að nú er
þetta frímerki metið á 150 þús. kr.
m
S'
umau
Sumarleyfi — sól og blœr,
svanavötn og lœkjarniður,
slcógarilmur — grundin grœr,
grösin, blómin fögur, kœr.
Fósturjörð mín, nú þjer nœr
nýt jeg, elska — djúpi friður.
Sumaryndi. sólarbhrr,
silungsvötn og lœkjamiður.
Ó, hve gott að una hjer
öllum borgarglaumi f jarri,
lifa frjáls og leika sjer.
Litla veröld, gleymdu mjer.
Uppheimsveldi augað sjer.
Andinn skynjar Guð sjer na’rri.
Aleinn má jeg una hjer
öllum borgarglaumi fjarri.
Endurminning — œðri sýn?
A jeg hjer á jörðu heima?
Kœrleiks gyðja, kom til mín.
II var er himnesk veröld þin?
Eilíf birta aldrei dvin.
Er mig Jakobsstiga að dreynui?
Endurminning — innri sýn.
Á jeg hjer á jórðu heima?
Sumaryndi, sólarblœr,
svanavötn og lœkjamiðuT,
skógarilmur, grund, sem■ grœr,
grösin, blómin fögur, kœr.
Fósturjörð mín, nú þjer nær
nýt jeg, elska — djúpi friður.
Sumarleyfi, sólskinsblcer,
svanir, vötn og lcekjarniður ...
Gleymmjerei, hví grœtur þú?
geisli þínar varir kyssti,
honum vertu trygg og tni,
tárast ekki máttu nú,
milli hnatta byggð er brú,
blómaengill hjá þjer gisti.
Gleymmjerei, hvi grœtur þú?
Guð á þinar varir kyssti. ..
Jarðnesk, himnesk júlínótt,
jeg vil blunda i örmuvi þinum,
signi mig og sofna fljótt,
sóley, fífill, kyrt og rótt
alt er nú — svo heilagt, hljótt,
hnigin sól í dalnum mínum.
Jarðnesk, himnesk júlínótt,
jeg vil sofa í örmum þínum ...
Sólarhiminssvanur kœr,
svífðu nú á vamgjum þínttm!
Gyðja, þií. svo Guði kœr,
getur dvalið jörðu nœr?
Tak mig, lyft mjer foldu fjær,
fagna þjer í draumi mínum .
IIiminsólarsvanur kær,
svífðu hátt á vængjum þínnm!
SIGFÚS ELÍASSON.