Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1947, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1947, Qupperneq 2
158 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS illa. — Sleðaferðir höfðu því ekki ver- ið farnar úr framfirðinum, þó marga væri farið að vanhaga um ýmislegt, því þá þutu ekki bílar daglega „um götur og torg“, eins og nú gerist. — Á Góunni brá þó til nokkurra frosta, og í Góulokin, eða rjett í byrjun Ein- mánaðar kom sú frjett að allgott sleðafæri niundi komið. — Ilugðu nú margir sjer til hreyfings. enda voru þetta síðustu forviið. — Vetur svona áliðinn, og ísar brátt srikulir og ó- traustir. — Var jeg einn þeirra, er hugði til farar. — Vahtaði mig dálítið af borðvið. kornvöru o. fl. — Raunar hálfkveið jeg samt fvrir ferðinni, því að aldrei áður hafði jeg farið ækis- ferð til Akure\Tar. Varð jeg þvi mjög feginn er föðurbróðir minn, Jóhannes Jóhannesson, er var kallaður hinn sterkij) kom til mín, og mæltist til að fá að verða með mjer í ferðinni, en hann var alvanur sleðaferðum og afrendur að afli og karlmennsku. Bauðst hann til að hafa með í ferðina hest sterkan og stiltan. er hann átti, en sleðann skyldi jeg leggja til. — Á- kváðum við nú að leggja á stað árla næsta morgun. Morguninu eftir var veður gott. — Dálítil sunnangola og nær frostlaust. Þótti okkur ekki ólíklegt að þíða mundi koma um daginn, og ráðgerð- um við því að hraða ferðinni sem mest. — Settum við hestinn fyrir, og Jóhannes steig á bak, en jeg settist á heypoka og annað dót, er við höfð- um meðferðis, og svo var haldið af stað. — Jóhannes valdi veginn eftir ánni, og veitti nákvæma athygli hvernig ísar lágu. — Ætluðum við að reyna að komast heim um kvöldið, en viss- um að við myndum lenda í myrkri, og því nauðsyn að vita leiðina sem best. — Gekk ferðin hið besta, voru viðast glærir ísar, með litlum sand- rákum, en þær eru stundum illur far- artálmi ef miklar eru. — Er við'kom- 1) I þjóðsagnasafninu Grímu er þáttur af honum. • um út að hinum svokallaða Merki- gilshyl, en hann er framan, eða rjett- ara sagt austan við Stórhólsleitið, en það er hæð milli Espihóls og Stokka- hlaða, hægðum við ferðina, og athug- uðum ísinn, því hylur þessi er afar / djúpur, og illræmdur fyrir ótrvgga ísa, enda búinn að gera margan mann- inn kollvotan. — Sýndist okkur ísarn- ir allgóðir, enda lágu gamlar slcða- slóðir við austurlandið, sem við fylgd- um nákvæmlega. — Þó sáum við . sprungur hjer og þaf í svellinu, en töldum þær ekki hættulegar, — enda gekk alt vel. — Hröðuðum við ferð- inni, sem mest við máttum, því að nú var augljóst að marahláka var að koma. — Á Akureyri flýttum við störfum eft- ir því, sém við gátum. — Bundum varning okkar á sleðann og heldum heimleiðis. — Var þá tekið mjög að kvölda, og skamt til myrkurs. — Vild-’ um við reyna að komast fram fyrir Merkigilshyl áður en aldimipt yrði, því hann óttuðumst við mest. Marg- ir Framfirðingar höfðu komið til Ak- ureyrar á eftir okkur um daginn, en höfðu ekki rekið erindi sín, og gátu því ekki orðið samferða, og þótti okk- ur það leitt, en eins og nú var komið, asahláka og allhvasst á sunnan, tjó- aði ekki að bíða. — Á sleðanum var ekki mjög þungt, dálítið af borðvið, kornvara, sem líklega hefir ekki náð tunnuþyngslum, og svo smádót eins og gerist. — Gátum við því farið allgreitt, enda notuðum við það. Skil- aði okkur drjúgum suður ísana. — Fórum við eins að og um morguninn, að Jóhannes reið dráttarhestinum, en jeg sat á sleðanum. — Ekki höfðum við lengi farið, er mjög tók að hvessa af suðri, og vatn fór að koma á ísana, en það ljetum við ekki á okkur fá. — Brátt sáum við, að maður með hest og sleða var nokkuð á undan okkur og fór mikinn eins og við. — Þótti okkur þetta gott, því líklegt þótti okkur að við kæm- umst það sem hann kæmist., og fór- um því altaf slóð hans. — Vorum við nú þá og þegar komnir fram að hyln- um, en nú var líka myrkrið að skella á. Samt sáum við, að maðurinn á undan helt hiklaust áfram suður yfir hylinn, og töldum því að öllu væri óhætt, og þræddum slóðina, en þá skall ógæfan yfir. — Alt í einu seig ísinn niður undan sleðanum, ég sá hvað verða vildi, og snaraðist á fæt- ur, og stökk sem kólfi væri skotið út á skörina. Mjer varð ekki fótaskort- ur þó hált væri, því jeg hafði mann- brodda bundna á fótum. — Nú skifti engum togum, — ísflekinn, sem seig niður, hvarf út undir ísinn, en aftur- endi sleðans stakkst niður. — Til allr- ar hamingju var hesturinn kominn yfir sprunguna, og á traustan ís, en vitanlega komst hann ekki áfram og nam staðar. Stóð sleðinn hálfgert upp á endann við skörina, því að ekki var dýpið þar meira en svo, að borðaend- arnir, er stóðu aftur af sleðanum, námu við botn. og þar með stóð alt fast. — Nú voru góð ráð dýr. — Jó- hannes sagði mjer að taka við hest- iunm og hvetja hann sem mest jeg mætti til átaka, en sjálfur mundi hann ljetta undir með honum. það hann gæti. — Svo gerðum við tilraunina — og hún heppnaðist. — Með átökum hestsins og heljarafli gamla mannsins, en þá var hann mefr en sexlugur, seig sleðinn hægt og hægt upp á skörina — og öllu var borgið. — En sagan er ekki öll sögð enn. — Maður sá, er var á undan okkur, og áður er getið, helt ferð sinni áfram suður að Grund. — Þá stóð verslun Magnúsar Sigurðssonar kaupmanns þar í miklum blóma. Maður þessi, sem var úr Framfirði, kom þar inn í sölu- búðina, og gat þess þegar, að í eng- um vafa væri hann um að sá eða þeir, er næstir sjer kæmu, mundu hleypa ofan í hvlinn, því viss væri hann um að sprungið hefði undan sleða hans, þó hann slyppi. — Hann sagði enn- fremur, að menn á ferð hefði hann sjeð úti á ísnum á eftir sjer, — en

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.