Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1947, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1947, Side 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 163 Meistari tálbragðanna Mantacinnie Ijet menn færa sjer stórfje og múta sjer til þess aS gera ekki kraftaverk. í BRESKA útvarpinu var nýlega haldinn fyrirlestur um þann mann, sem kallaður hefur verið „meistari tálbragðanna" og hvernig hann ljek á auðtrúa fólk með því að þykjast vera kraftaverkamaður. Maður þessi var ítali og hjet Mantacinnie. Þóttist hann hafa fundið upp ráð til þess að vekja menn upp frá dauðum. Kom hann svo eitt sinn til Lyons í Frakklandi og kvaðst ætla að sýna ágæti upp- götvunar sinnar með því að vekja upp á ákveðnum degi alla þá, sem nýlega voru dánir og grafnir þar í kirkjugarðinum. „Við munum fá nóg að gera“, sagði Mantacinnie við aðstoðarmann sinn, „Fólkið mun þyrpast til okk- ar“. Það varð orð að sönnu. — Fólkið streymdi til hans og allir vildu fá að tala við hann einslega um einka- mál sín. „Faðir minn dó i fyrra“, sagði sá fyrsti. „Hann var stórríkur svíðing- ur og jeg veit ekki hvernig fer fyrir mjer þegar hann ris upp og sjer hvernig jeg hefi sólundað eigum hans. Jeg skal borga þjer 1000 gíne- ur til þess að láta hann hvíla í friði“. Næst kom ung og fögur kona, full örvæntingar. „Jeg skal horga yður hvað sem þjer setjið upp, ef þjer vekið ekki upp manninn minn sáluga“, sagði hún. „Hann var sannkallaður djöfull og nú er jeg nýskeð gift manni, sem jeg elska og jeg má ekki hugsa til þess að skilja við hann“. Sumir voru hræddir um að sínir kæru framliðnu vinir og ættingjar mundu fara að gera rekistefnu út af því á hvern hátt dauða þeirra hafði að höndum borið. Buðu þeir allir töframanninum stórfje til þess að láta þá sofa í friði. En best af öllu var þó þegar bæj- arstjórnin kom með borgarstjórann í broddi fylkingar og í fullum ein- kennisskrúða. „Hálærði herra“, sagði borgar- stjórinn. „Ef þjer vekið upp hina dauðu þá mun það færa örbirgð og öngþveiti yfir borgina. Takið við þessari upphæð hjerna sem viður- kenningu fyrir valdi yðar og lofið oss svo að vera í friði“. Mantacinnie var ekki ánægður með það. „Þetta er vel boðið“, sagði hann, „en ef' jeg hverf frá við svo búið þá mun fólk efast um að jeg geti vakið menn upp frá dauðum“. „Við kunnum ráð við þvi“, sagði borgarstjórinn. „Jeg skal gefa yður skriflegan vitnisburð um það, að vjer höfum sjálfir sjeð að þjer getið gert þetta kraftaverk, höfum sjálfir horft á yður vekja menn frá dauð- um“. Með það var Mantacinnie ánægð- ur og tók við fjenu. ^ ^ ^ ^ ^ «-----------------------------o Barnahjal Skólaeftirlitsmaður kom í heimsókn í smábarnaskóla. Honum fanst börnin þar sýna litla athygli. Hann gekk að töflunni og sagði: Nefnið ein- hverja tölu. — 15. Hann skrifaði 51. — Nefnið aðra tölu, sagði hann. ---47. Hann skrifaði 74. — Eina tölu enn, sagði hann. Þá stóð upp lítill drengur og sagði: — 99, og snúðu því við ef þú getur. Sigga, ellefu ára, kom af barnaskemtun og sagði frá: — Það var gaman, en mömm urnar voru svo vitlausar að láta alls staðar sitja saman strák og stelpu við borðið. — Var það svo vitlaust? — Já, því að þá þurftum við að tala framhjá strákun- urn og þeir framhjá okkur. Góður maður mætti Jónsa litla á götu og Jónsi var há- skælandi. — Hvað gengur að þjer, góði minn? — Jeg he-hefi mi-ist pen- inginn, sem ken-ennarinn gaf í verðlaun fyrir að vera hæ- hæstur í bekknum, hikstaði Jónsi. — Vertu ekki að gráta af því, sagði maðurinn. Hjerna hefurðu pening í staðinn. Hvernig fórstu að því að missa hann? — Jeg varð ekki efstur í bekknum, sagði Jónsi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.