Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1947, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1947, Page 8
164 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Síðan í slríSsbyrjun Uafa Brelar lagt miklu meira kapp á landbúnað en áður. Þúsundir ekra, sem áð- ur var ófrjótt land, er nú akurlendi. Nýúsku vjclar hafa verið teknar í notkun og sjest ein þeirra hjer á myndinni. — Er það kartöflu-sáningarvjel, sem sáir í þrjár raðir samlímis. Ajtan á henni sitia þrjár konur og gœta þess að sáningin verði jöfn í hverri röð. KAPPRÓÐUR Laugardaginn 30. júlí 1927 iór fram kappróður milli Islendinga og danskra sjó- liðsmanna af „Fylla“. Leið sú, sem farin var, var frá Mýrarhúsum á Seltjarnar- nesi að örfirisey. Var knálega sóttur tóð- urinn hjá báðum, en lauk svo, að Dönum var sigurinn dæmdur, en sáralitill var munurinn, um Yt meter. Þetta þótti stór- tiðindi hjer í Reykjavik, að Islendingar gætu róið bát; svo langt er nú komið aftur á bak. (Svbj. Egilson). SILUNGURINN í SVARTÁRVATNI Árið 1883 flutti Einar bóndi Friðriks- son í Svartárkoti frjóvguð hrogn frá Mý- vatni suður i Svartárvatn og svo fleiri ár meðan hann bjó þar, eða til ársins 1893. Þóttist hann viss um að hann hefði bætt veiðina mikið þann tima, bæði að tölu og vexti. Eins hefði það átt að geta borið ávöxt annars staðar, með sömu viðleitni og alúð eins og Einar sýndi. (Bjarni Sæmunds son). ELSTU ISALDARMENJAR sem mjer eru kunnar í nágrenni Reykjavik ur, eru sennilega milli Eiðis og Korpúlfs- staða. Þar gengur belti af klöppum frá suðvestri til norðvesturs og hallar þvi til norðausturs niður að sjónum; sama kletta- beltið kemur einnig fram i bergi austan við Elliðaárvoginn, því að bæði er það sama bergtegundin og eftir stefnunni þá á framhald klettabeltisins til suðvesturs ein- mitt að koma þar. — Það er auðsjeð að alt þetta klettabelti er mikið eldra en hin- ar venjulegu grásteinshæðir í kring um Reykjavik. (Þorkell Þorkelsson dr.) ÆTTARSKRÁ Fyrir 25 árum kom dr. Guðm. Finn- bogason fram með þá hugmynd að setja á fót ættfræðistofnun. Verkefni hennar yrði tvent: Annars vegar að koma i eina heild öllu þvi, sem vitað er um ættir Islendinga til þessa dags. Ættartölumar yrðu í spjald skrárformi, þar sem hver maður, er eitt- hvað er vitað um, ætti spjald og á það skráð þau atriði, er bregða einhverju ljósi yfir eðli hans, andlegt og likamlegt. Hins vegar fengi hver maður, er hjer eftir fædd- ist á þessu landi, sitt spjald í þessari ættar- skrá þjóðarinnar. Á það væru færðar eftir settum reglum athuganir, er skylt væri að gera á tilteknum timum, um andlega og likamlega eiginleika mannsins og þau ævi- atriðd, er* verða mega til skilnings'á eðli hans og kynkostum, sömuleiðis myndir af honum, þegar því yrði við komið. 1 þessu safni ætti og að geyma ættarskjöl og ævi- sögur einstftkra manna, rithönd þeirra og raddrit. — Þar störfuðu vísindamenn, er leika andlegra og líkamlegra .. Þar mætti leika andlega og líkamlega .... Þar mætti sjá hvort kynstofninn breyttist til _ hins betra eða hins verra. Þar væri á hverjum tima skuggsjá, er sýndi hvað fjöreggi þjóð- arinnar liður. FYRSTA KY.EÐI sem birtist eftir Grim Thomsen var „Alpa- skyttan", þýðing á kvæði eflir Schiller. Þá var Grímur 19 ára.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.