Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1947, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1947, Qupperneq 1
Guðrún Jónsdóttir írá Prestbakka: PÍLAGRÍMSFÖR Á ÖLD Þann 27. apríl 1947 lagði pílagrímur af stað frá Fribourg 1 Sviss áleiðis til Rómaborgar. Hið undarlega við þennan pílagrím var, að hann var ekki svissneskur, og að „hann“ var kona. S jálf pílagríms- förin var líka með öðrum hætti en gerðist fyrr á öldum, því í stað 0 þess að fara fótgangandi, fór þessi pílagrímur með hraölest, og í stað þess að vera allslaus og biðjast beininga á leiðinni, átti þessi pílagrímur næga peninga til þess að ferðast á fyrsta farrými. En þrátt fyrir þetta var það þó pílagrímsför — og pílagrímurinn minnt- ist þess oftar en einu sinni, að forfeður hans höfðu farið þessa leið á undan honum og þó lengra, — alla leið tjl borgarinnar helgu, Jerú- salem. Og þegar hraðlestin rann áfram eftir brautarteinunum, flaug hugur pílagrímsins margar aldir aftur í tímann og fylgdist með forfeðrunum á göngu þeirra. Þann 15. maí á að taka hinn bless- aða Nikulás Fliie í helgra manna tölu. I því tilefni fara 600 pílagrímar frá Sviss til Rómaborgar. Jeg hafði á- kveðið að slást í förina, en sá var hængur á, að jeg gat ekki orðið hin- um samferða, nema því að eins að jeg færi með þeim heim til SviSs aftur, en það vildi jeg ekki. Jeg ákvað því að leggja af stað hálfum mánuði á undan og vera þá búin að heimsækja pílagrímakirkjurnar 7 í Róm, þegar hinir kæmu. Svo jeg lagði af stað frá Fribourg með hraðlestinni til Bern þ. 27. apríl. Tvær íslenskar stúlkur og ein frönsk fylgdu mjer á brautar- stöðina. íslensku stúlkurnar ætluðu að fara með hinum pílagrímunum, svo við kvöddumst ekki hátíðlega, en veifuðum og sögðum: „Bless, við sjá- umst í Róm“. — Lestin rann af stað og hrautarstöðin hvarf sýnum. Lagt á stað. Jeg horfði út um gluggann og hugs aði margt. Landið var alt iðjagrænt og grasi vafið. Trjen voru í fegursta laufskrúði , og heitt eins og um há- sumar. Það fór prýðilega um mig í bólstruðu sætinu. Satt að segja fanst mjer það næstum því hlálegt að fara í pílagrímsför akandi í hraðlest með bólstruðum sætum, þegar jeg mintist þess, hvernig pílagrímar miðaldanna gengu á berum fótum land úr landi og áttu ekki eyrisvirði í vasa sínum. En nú er komin öldin hin tuttugasta, og hver veit nema næsta pílagrímsför verði farin í flugvjel! , Ferðamannaskriístofan í Fribourg hafði keypt fyrir mig farmiða og sjeð um að herbergi væri til fyrir mig á hóteli í Bern. Jeg þurfti;því ekki ann-' að en stíga út úr lestinni og elta burð- arkarlinn yfir að hótelinu. Jeg fór með lyftunni upp á 3. hæð og kom dótinu mínu fyrir í nýtísku hótelher- bergi, sem sneri út að brautarstöð- inni. Jeg bað um að fá mðrgunkaffi kl. 6, því lestin átti að fara 6,35 — og var því lofað. Jeg fór svo snemma að hátta, en umferðin hjelt fyrir mjer vöku fram eftir allri nóttu, svo jeg var næstum því ósofin þegar vekjara- klukkan mín hringdi kl. 5. Kaffið var ekki tilbúið kl. 6. Jeg varð að fara niður og reka á eftir því. Syfjulegur náungi, á milliskyrtunni og með úfið hár sat í dyravarðarbyrginu og skrif- aði reikninga. Franskan hans var svo kyndug, að jeg botnaði ekkert í henni enda var hann þýsk-svissneskur, svo jeg varð að rífast áf þýsku til þess að fá kaffið, reikninginn minn og burð- arkarl með dótið mitt. Loksins komst jeg svo af stað yíir á brautarstöðina og fann sætið mitt, sem jeg hafði tryggt mjer til Milano. Mjer var sagt, að vagninn myndi verða festur aftan í hraðlest er til Brig kæmi og hjeldi síðan áfram til Milano, en þar yrði jeg að skifta um klefa. Síðan rann lestin af stað áleiðis til Brig. Yfir Alpafjöll. Alpafjöllin blöstu við mjer í skini morgunsólarinnar. Jómfrúin fræga gnæfði við himin þakin snjó. Greni- skógurinn óx upp í hlíðarnar og fyrir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.