Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1947, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 08.06.1947, Síða 6
178 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Sigurður Björnsson: . VÍSUR UM GÖNGUSKÖRÐ I’að var einhvern tíma sem oftar heima á Veðramóti að við Júlíus ís- leifsson á Illugastöðum í Laxárdal sátum kvöldstund og röbbuðum um daginn og veginn um bæði það sem ort var og gjört og gera þyrfti. Júlíus þessi var uppgjafabóndi austan úr Breiðdal, er. fiuttist að Illugastöðum í Laxárdal til fóstursonar síns, Lúð- víks Kemps, eins athafnasamasta bónda sinnar samtíðar, þegar hann byrjaði að búa. Júlíus var greindar- maður hinn mesti, gætinn og árvakur um alt rjettlæti, traustur í skapi og hinn mesti manndómsmaður á alla grein. Hann átti stundum leið um Skörðin og gisti þá oft hjá mjer, og þótti þá báðum vel, ef timi gafst til samræðna um ýmsa hluti. Þetta áminsta kvöld kom þar niður tali oh.kar Jújíusar, að okkur fanst báðum að ómaklega nefði Báldvin kveðið um Skörðin, þegar hann orti þessa landfleygu vísu: Dal í þröngum drífa stíf dynur á svöngum hjörðum. Það er öngvum ofgott líf úti á Gönguskörðum. Var sú ákvörðun svo tekin, að Júl- íus skyldi yrkja nokkrar vísur um Skörðin og vera rjettdæmari um þau og Iífið þar en Baldvin er í sinni vísu. Af því nú, að jeg veit ekki til að neinn kunni þfessar vísur Júlíusar nema jeg, vildi jeg forTía þeim frá glöturi með því að fá þær birtar í Lesbók Morgunblaðsins. Sú er önnur ástæðan fyrir því, að jeg vil birta þessar vísur, að mjer er ekki ósárt um þessa sveit, þar sem jeg stóð við í 50 ár af æfinni, og get unt henni annars en illmælisins eins. Vísur Júliusar eru þessar: Upp .til fjalla ein er sveit ei sem brestur fóður heyjaföng og hagabeit og hollan sumargróður. Vestandalir hæð og hóll hrikamyndum tjalda traustur að austan Tindastóll teygir arma kalda. Þar hafa unað bændur best bjartan ævidaginn og til nytja föngin flest fært sjer vel í haginn. Þar 'eru fæddir frægir mer.n aí fróðleiksmentun ríkir, 'getur skeð að gefist enn góðir drengir slíkir. Þar hafa haldið vaskan vörð vættir elstu tíða, þetta eru gömlu Gönguskörð, sem góðir bændur prýða. Þá sakar ekki að setja hjer 3 vísur eítir langaía minn, Sigurð Guðmunds son á Heiði, sem jeg hef ekki sjeð á prenti. Klökugum á kinnunum kuldinn sárt þó neyði aldrei skal jeg atyrðum illum kasta að Heiði. Þó að tíðum þokuloft þar sig yfir breiði, veðurbliðan er þó oft unaðsleg á Heiði. Þegar jeg skil við þennan heim að þrotnu lífsins skeiði, blessi guð og bjargi þeim, sem búa þá að Heiði. Þó að af nógu sje að taka af lof- lega kveðnum vísum um Gönguskörð, læt jeg nægja að bæta hjer einni við, en sem jeg veit þó ekki með vissu um höfund að. Veðramót er mæta jörð miður Kálfárdalur, » lasta aldrei skal jeg Skörð, þó skensi mig margur halur. 26. mai 1947. Sig. Á. Björnsson frá Veðramóti. ^ ^ • i’ledal margrn nýunga, sem eru á bresku iðnsýningunni, er nú stendur yf- ir, er þessi kvenskór. Hann er með málm sóla og hællinn livílir á tveimur fjaður- bogum. Er sagt að skór þessir sje mjög þægilegir og sterkir, en nú er það undir dutlungum kvenfólksins komið, hvort þeir geta ruit sjer til rúms. V V Vinátta Ástæðan til þess að kvenfólk met- ur vináttu yfirleitt lítils, er sú, að því þykir hún bragðdauf eftir það að hafa reynt hvað ástin er. ★ Vinátta er það, að mega segja beiskan sannleikann. Vinátta milli kvenna er aðeins vopnahlje.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.