Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1949, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 04.12.1949, Qupperneq 2
542 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Hallsteinn, son Atla jarls, hafi skot- ið setstokkum fyrir borð að fornum sið. Þeim sveif að landi á Stálfjöru fyrir Stokkseyri, en skipið kom í Hallsteinssund fyrir austan Stokks- eyri og braut þar. „Hann bjó að Stjörnusteinum“. í Árbók hins ís- lenska fornleifafjelags frá 1905 er þess getið til að bær Hallsteins hafi staðið á klapparhrygg nærri fram undir brimgarði austan Stokkseyrár. Getur þetta verið rjett? Þess er, eins og áður segir, minst í Lardnámu að setstokka Hallsteins haíi rekið á Stálfjöru, sem er austan Stokkseyrar, fram- undan íragerði, mikið nær landi (stórstraumsflæði), en umgetnir Stjörnusteinar. Og þótt því sje haldið fram í Árbókinni s. á., að þetta geti ekki verið sú Stálfjara, sem umgetur í Landnámu, er ekk- ert sem rjettlætir þá staðhæfingu. Stálfjaran og Stálkletturinn eru lengra frá stórstraums flæðarmáli en t. d. Höfnin á Eyrabrakka, og er þó ekki hægt að hugsa sjer minna landbrot þar, því þar er fjaran bæði skemra út og lægri en fram af Stálfjöru. í Flóamanna sögu segtr: „Svo er sagt einhverju sinni að Þórður frjetti að Rafn væri riðinn út í Einarshöfn til skips“. Þetta sannar að farið er að sigla skip- um á Einarshöín á landnámstíð, og eftir staðháttum er ekki hægt að hugsa sjer að þar sje um annað skipalægi að ræða en nú er. Flóamanna saga segir: „Hall- steinn hjet maður, hann fór úr Sogni til íslands, hann var mágur Hallsteins Atlasonar, honum gaf hann hinn ytra hluta Eyrarbakka. Hann bjó að Framnesi". Árbók hins íslenska fornleifaíjelags 1905 seg- jr: „Er sagt að bærinn Framnes hafi staðið þar sem nú eru fjöru- klappir út undir boðanum.“ Fram- nesboði skagar lengst út aí brim- garðrnum (Hraufistangar), en þar er ekkert sker upp ur a storstraums fjöru á nokkru svæði. Höfundur sögu Evrarbakka getur til að lausa- grjótið í Hraunsfjöru muni að mestu úr þessum bæ. Það hefur ekki verið neitt smákot að veggj- um ef á að trúa því. Það hefur verið bygður stór sjóvarnargarður fyrir öllu landinu, mest af lausa- grjóti úr flæðarmálinu, og er þó mikið eftir. Það er annað sem færir til grjót- ið í Hraunsfjöru. Þegar frosta- kaflar eru, kemur íshella í fjöruna og þegar svo skiftir um veður í sunnanátt, verður oft brim og brýt- ur upp allan ísinn á einu flæði. Berast þá jakarnir upp í flæðar- mál, og eru þá oft steinar sem frosið hafa í íshelluna með, og má sjá á gróðrinum á sumum þeirra að þeir eru framarlega úr fjörunni. Og enn til að sanna hvað land- brot hafi verið ört á þessum slóð- um, segir í Árbókinni sama ár, svo og Þuríðarsögu formanns og sögu Eyrarbakka að trje það, sem standi í klöppunum framan Gamla Hraunsbakka hafi á miðri 19. öld staðið á grasbakka fyrir framan bæinn, en sje nú á sama stað, um 60 faðma frá bakkabrúninni. Það vantar mikið til að trjeð sje 60 faðma frá bakkabrúninni. Og það sanna cr að það hefur aldrei staðið neitt sundtrje á Gamla Hrauns- bakka. Þetta umgetna trje settu formenn af Eyrarbakka upp þarna í klöppunum um 1890 og er hliðar- merki frá Rifsós, sem er sund fram undan austanverðum Eyrarbakka og var mikið notað í tíð áraskip- anna. En eins og segir í Árbókinni er Hraunssund austan Framnes- boða, og eru mið á því Borg (gamli bærinn) sem er austasti bærinn í Hraunshverfinu og á að bera í austuröxl Ingólfsfjalls. Sjá þá allir, sem koma á þessar slóðir, hvað það er fjærri að mið a Hraunssundi hafi staðrð í Gamla Hraunsbakka. Og í somu Árbok, svo og sogu Eyrarbakka segir: „Þar vestan við túnið“, það er á Gamla Hrauni, „var hjáleigan Salthóll, sem eydd- ist í Stóraflóði 1799“. Þetta er held- ur ekki rjett. Það er hóll vestan við túnið á Gamla Hrauni nefndur Salthóll, en hvort kotið Salthóll hefur staðið þar fyrr á öldum er engin vissa fyrir, og ekki hefur sjeð fyrir neinni hleðslu utan í hólnum. Hefði þó átt að vera notað þar grjót í veggjahleðslu, sem er þar nærtækt. Kotið Salthóll var austan við túnið á Stóra-Hrauni og skildi grjótgarður milli túnanna, og man jeg og fleiri eftir bæjartóftunum þar. Hafði farið af í Stóraflóði 1799 og ekki bygst síðan. Nú sjest ekkert sem bendir til að þar hafi bær staðið, nema bæarhóllinn og vatns- bólið. í Sögu Þuríðar formanns svo og Sögu Eyrarbakka segir að fólkinu í Salthól hafi verið bjarg- að í nefndu flóði, heim að Stóra- Hrauni, en það hefði verið með öllu ómögulegt hefði kotið verið fyrir vestan Gamla Hraun, fyrir framan tjarnirnar, þar sem sjávarhæðin hafði verið svo mikil að gekk á bæina. Um þetta geta allir sann- færst sem koma þarna og athuga staðháttu. Friðrik Sigurðsson írá Gamla Ilrauni. 5W ^ ^ HÚN Sigríður var lagleg stúlka og af góðum ættum. En það vrar hennar þunga raun í lífinu hvað hún var iöng, lengri heldur en nokkur önnur stúlka. Og það var sjálfsagt því að kenna að hún hafði ekki fengið neinn biðil, þótt liún væri orðin 27 ára gömul. Henni var því ekki meiri skapraun ger, en ef einhver mintist á hvað hún væri löng. Einu sinni fór hún niður að höfn þegar farþegaskip var að koma. En þá vúldi svo illa til, að hún datt um land- festina kylliflöt. Hún reis á fætur og for 'að dueta af sjer rvkið eu þá kaliaði emhver haðfugl ,,Ef þu dettur aftur, þa ertu konun heim.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.