Lesbók Morgunblaðsins - 11.12.1949, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 11.12.1949, Blaðsíða 7
LES iölI MORGUNBLAÐSINS 563 ur lítið hlýrri en sjórinn umhverf- is. En ef hann nú samt sem áður ætti að gera hinum nyrstu löndum gagn, þá ætti hann að renna þaðan til norðausturs, en það gerir hann okki, heldur rennur hann til aust- urs. Það virðist því vera falskenn- ing að Golfstraumurinn hafi bæt- andi áhrif á veðráttu í vestanverðri Evrópu. Talið er að Golfstraumurinn sje um 60 mílur á breidd og nái niður í 600 feta dýpi og fari með 20 mílna hraða á sólarhring. Þetta er bví aðeins örmjótt band í úthafinu, þar sem sjórinn er örlítið hlýrri en alt um kring. Ef vjer ættum að fallast á kenn- inguna um áhrif Golfstraumsins á veðráttu norðlægra landa, þá yrð- um vjer jafnframt að viðurkenna að þúsundasti hlutinn úr hafinu, og þó líklega miklu minna brot, geti valdið því, vegna þess að hann er örlítið hlýrri en úthafið sjálft, að svo mikill mismunur er á Noregi og Labrador, að í Norður-Noregi eru allar hafnir íslausar árið um kring en frjósa á hverjum vetri í Labrador. Önnur skýring er á þessu og hún er sú að í yfirborði sjávar í norð- anverðu Atlantshafi er straumur, sem stefnir norðaustur. Niðri í djúpi Atlantshafsins er hitinn við frostmark, eða lægri, en á yfirborð- inu er hiti sjávarins um 14 stig C. eða meiri. — Neðri sjávarlögin streyma stöðugt suður að miðjarð- arlínu að norðan, en yfirborðs- straumur fer norður. Þessi hreyf- ing á hafinu er stöðug. Suður við miðjarðarlínu tekur yfirborðsstraumurinn þegar stefnu til norðausturs og heldur henni síðan. Kúlulögun jarðar. Lengi heldu menn að jörðin væri flöt, og margir halda það enn. Það var von, að menn, sem áttu heima langt inni í landi og sáu ekki annað en fjöll og dali, heldu að jörðin væri flöt. En sjómennina, sem höfðu hinn víða sjóndeildarhring, mátti gruna annað, og stjörnuspek- ingarnir, sem sáu að jörðin kast- aði íbognum skugga á tunglið, urðu fyrstir til að sjá að jörðin muni vera hnöttótt. Mishæðin á yfirborðinu, sem kemur fram vegna kúlulögunarinn ar, er ekki nema 2 þumlungar á mílu vegarlengd. Það er því svo sem ekkert undarlegt þótt menn heldu lengi að jörðin væri flöt. í þessu sambandi er rjett að taka eitt dæmi til að skýra betur bungu- lag jarðar. Setjum svo, að grafin hafi verið 20 mílna löng járnbraut- argöng og verkfræðingarnir hafi ]agt alt kapp á að þau væri lárjett. Það hefði verið ljóta yfirsjónin. Með því móti hefði göngin í miðju verið 66 fetum nær miðju jarðar heldur en opin, eða með öðrum orðum, miðgöngin hefði verið 66 fet um lægri heldur en opin. Vatn hefði því hlotið að renna inn í þau báð- um megin og safnast saman í miðju. Á þessu sjest líka þótt ein- kennilegt sje, að í alveg lárjettum göngum hefði lestin fyrst ekið of- an í móti og síðan upp brekku. Til þess að jarðgöngin fyltust ekki af vatni, varð gólfið í þeim að hafa rama bungulag og jörðin, eða vera 66 fetum hærra í miðju heldur en til endanna. Stærsta fljótið. Amazon er langstærsta fljót heimsins. Missouri-Mississippi er að vísu lengra, en um vatnsmagn ber Amazon langt af. Regnflötur þess er talinn vera um 2V2 miljón fermílur, eða álíka og þriðjungur- inn af Evrópu. Á þessu svæði eru binar geisilegu hitabeltis úrkom- ur, og vatnið, sem þar kemur úr ]ofti árlega er um 2400 tenings- mílur. Nú er það víða svo að ekki Jæmur fram í fljóti nema svo sem fjórði hluti þeirrar úrkomu, sem talin er vera á regnfleti þess. En þótt svo væri að Amazon bæri ekki fram nema fjórða hluta þess rign- ingavatns, sem fellur á regnsvæði þess, þá er það samt um 600 ten- ingsmílur á ári. Ef þessu vatni væri dreift jafnt yfir England, sem er talið vera 50.000 fermílur að flatarmáli, þá yrði dýpið um 250 fet. Stærsta vatn í heimi er Lake Superior. Það er 390 mílur á lengd og 80 mílur á breidd að meðaltali og dýpið er um 900 fet að meðal- tali. Alt vatnsmegin þess er því um 5320 teningsmílur eða rúmlega helmingi meira en það úrkomu- vatn ,sem fellur árlega á regnflöt Amazon-fljótsins. En þó er vatnið í Lake Superior svo mikið, að Niagarafossarnir bera ekki meira fram á 124 árum. Tönn tímans. Það er talið að sjórinn brjóti um eitt fet að meðaltali á ári af allri strandlengju Englands. Þetta virð- ist ekki mikið og menn taka varla eftir því, nema þeir komi á ein- hvern stað eftir margra ára fjar- veru. En samt er þetta mikið þeg- ar menn athuga það að þannig bryður tönn tímans landið ár og síð. Það er ekki auðvelt að ákveða nákvæmlega strandlengju Eng- lands, en ekki mun fjarri sanni að telja hana 1800 mílur. Eitt fet á allri þessari lengd samsvarar 220 ekrum, eða svona meðaljörð. Þetta brýtur sjórinn af Englandi á hverju ári. En þá er spurningin: Mun Eng- land ekki einhvern tíma hverfa með öllu? Ef þessu heldur áfram iafnt og þjett, þá verður England ekki annað en hólmar og sker árið 700.000. En jafnhliða þessu fer fram önn-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.