Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1950, Page 8
36
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
FRIÐARVILJI RUSSA
Þeir eru að gera vígi og
kafbátahöfn í Albaníu
ÞAÐ var einn góöan veðurdag í
fyrrasumar, að til hafnarborgar-
innar Valona í Albaníu, sem er
gegnt ,.hælnum“ á Ítalíu, kom hóp-
ur af rússneskum sjóliðsforingjum
og hernaðarsjerfræðingum. — Og
rjett á eítir kom annar hópur og í
honum voru starfsmenn og þýskir
sjérfræðingar. — Heimsækjendur
þessir lögðu þegar undir sig stærsta
húsið í borginni og ráku út alla þá,
sem þar höfðu átt heima. Þessir
heimsækjendur höfðu það hlutverk
að koma i framkvæmd aldalöngum
draum Rússa um það að eignast
lierskipahöfn við Miðjarðarhaf.
í miðjum Valona-flóanum er ey,
senv Rússár höfðu fengið augastað
á. Hún heitir Sesano og er um þrír
kílómetrar að flatarmáli. Eyan er
sæbrött og í rauninni ckki annað en
gríðarmikill klettur, sem skagar
upp úr hafinu og alt um kring eru
snarbrött björg urn 300 metra á
hæð. Þcssari klettaey svipar eigi
litið til Gibraltar, þvi að þar cru
ótal hellar og *leynigöng. Setulið
þar getur haft algerlega vald á öll-
um siglingum í mynni Adriahafs,
og með flugskeytum af V2 gerð
gæti það lagt ítölsku hafnarborgina
Taranto i eyði, en þar var mesta
flotastöð ítala í striðinu. Hellarnir
í eynni eru svo miklir að þar getur
allöflugt setulið hafst við og geymt
þar nægan forða til langs tíma.
Rússar hafa sjálfir gortað af því
að ekki sje hægt að eyðileggja
þetta vígi með kjarnorkusprengju,
flugvjelar geti ekki komist að því
og af sjó sje það óvinnandi. Lands-
lagi á meginlands ströndinni þar
andspænis er svo háttað, að ekki
getur heldur verið um að ræða árás
þaðan. Sunnan og vestan við Val-
onaflóann eru Karaburun fjöllin
800 metra há og snarbrött, en sunn
ar hækka þau upp í 2000 metra. Þar
eru engir vegir, ekki annað en ein-
stigi í fjallaskörðum. Inn af flóan-
‘um og fyrir innan Valona, er um
fimtán kílómetra sljettlendi, cn það
cru fen og foræði.
ÞRÁTT fyrir sína miklu hernaðar-
þýðingu, hefur verið hljótt um
Sasano-eyna fram að þessu, svo
hljótt, að Rússar gátu byrjað á því
að víggirða hana án þess að um-
heimurinn veitti því eftirtekt.
Árið 1920 lögðu ítalir eyna undir
sig, en yfirgáfu hana snemma á ár-
inu 1945. Þá var það að flokkur
albanskra stigamanna, undir stjórn
Enver lloxha, lagði eyna undir sig.
Iloxha hafði verið kennari, en nú
var hann orðinn uppreisnarforingi
og hlýddi öllum skipunum frá
Moskva. Það má því segja að það
liafi verið eftir fyrirskipan þaðan,
að liann lagði eyna undir sig. En
þetta fór svo hljótt, að almenmng-
ur i Vestur-Evrópu frjetti ekki
neitt um það, og ríkisstjórnirnar
þar ljetu það afskiftalaust. Þeirn
fanst þá að þær ætti í öðrum stærri
vandamálum að snúast og það væri
þýðingarmeira að hefta yfirgang
Rússa á öðrum stöðum. Og þegar
fanð var að ræða um fnðarsamn-
ingana við ítali árið 1947, þá voru
aðaldeilurnar um Trieste. En urn
11. grein í 28. kafla friðarsamning-
anna urðu menn skjótt sammála.
Hún er á þessa leið:
„Ítalía viðurkemiir að Sasano
eyan sje albanskt land og afsalar
sjer öllu tilkalli til hennar.“
Á þetta var ekki minst í blöðun-
um á þeim tima, en seinna hefur
þessi grein vakið mikinn ugg og
ótta meðal Ítala. Bretar virðast og
hafa áttað sig á þessu og flotasjer-
fræðingar þeirra gefa nú nákvæm-
an gaum öllu sem þarna fer fram
og segja að þessar víggirðingar
Rússa geti haft áhrif á allar fyrir-
ætlanir um varnir Vestur-Evrópu
í íramtíðinni.
Það er þó ekki hlaupið að því að
fá nákvæmar fregnir um það sem
er að gerast á Sasano ey. Það er
álíka óhugsnadi að erlendir blaða-
menn fái að koma þangað eins og á
íund æðsta ráðs Rússa. En með
ílóttafólki hafa þó borist ýmsar
upplýsingar. Þótt Rússar hafi hin-
ar ströngustu gætur á öllu land-
svæðinu umhverfis Valona, þá
tekst samt einum og einum manm
að strjúka og segja frá.
RUSSAR byrjuðu á framkvæmd-
um þarna í fyrrasumar í þann
mund er slitnaði upp úr vináttu
þeirra og Tito. Afleiðingin af sam-
vinnuslitum þeirra varð fyrst og
fremst sú, að Rússar mistu yfirrað
flotahafnarinnar Pola, sem er imi-
arlega við Adriahafið. Og þá fengu