Lesbók Morgunblaðsins - 22.01.1950, Page 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
39
ALDAR ÁRSTÍD
OEHLENSCHLÁGERS
um þetta. í marsmánuði síðast liðn
um var flett ofan af öllum fyrir-
ætlunum Rússa í einu blaðinu í
Júgóslavíu. Jafnframt sendi Tito
fimm skriðdrekaherfylki til landa-
mæranna. Fyrir skömmu helt hann
svo ræðu í Skoplje og skoraði á
Makedoníumenn að láta sem vind
um eyrun þjóta þær fyrirætlanir,
sem nokkrir skuggabaldrar væri
með, því að ekki mundi verða neitt
úr þeim.
RÚSSAR eru nú farnir að verða
vondaufir um að þessar fyrirætlan-
ir sínar muni takast, enda hefur
ýmislegt komið upp úr kafinu síð-
an fyrsta áætlunin var gerð. Þá
var Markos enn foringi grísku
kommúnistanna. En þegar hann
heyrði um þessar fyrirætlanir
Rússa varð hann svo reiður að
hann gætti ekki tungu sinnar. Af-
leiðingin varð sú, að hann „sýktist“
hastarlega og er nú líklega dauður.
George Dimitroff, sem þá var for-
sætisr.h. Búlgara, mótm. líka þess-
um fyrirætlunum Rússa. Skömmu
seinna varð hann að biðja auð-
mjúklega um fyrirgefningu á fram-
komu sinni. Það rjetti að vísu við
pólitíska „heilsu hans“, en samt
varð hann svo heilsulaus, að hann
var fluttur til Rússlands til þess
að deyja. En Enver Hoxha tók þess
um fyrirætlunum Rússa um Make-
doníu með glöðu geði.
Hinn 28. apríl í vor sem leið,
bar Andrej Gromyko fram í Lake
Success tillögu um þriggja velda
íhlutun í Grikklandsmálunum. Þar
var farið fram á það að Bandarík-
in hættu að styðja stjórn Grikk-
lands fjárhagslega, að kosningar
skyldu fara fram í landinu og
kommúnistar skyldu hafa kosning-
arrjett. Honum kom víst ekki til
hugar að þetta yrði samþykt, en
hann ætlaði að nota það til þess
að útvega grísku kommúnistunum
frjálst yfirráðasvæði í norðanverðu
HINN 20. þ. mán. voru liðin 100 ár
frá því að danska skáldið Adam
Oehlenschláger dó.
Hann var fæddur 1779 og átján
ára gamall hóf hann listaferil sinn
sem leikari við konunglega leikhús -
ið í Kaupmannahöfn, en leiklistin
ljet honum ekki.
Veturna 1802—1803 og 1803 —
1804 helt Henrich Steffens fyrir-
lestra við Kaupmannahafnarhá-
skóla um nýar stefnur í þýskum
skáldskap, og vöktu þeir mjög
mikla athygli. Oehlenschláger
komst þá í kynni við Steffens og
þeim áhrifum, sem hann varð fyr-
ir af þeim kunningskap, er líkt við
þá vakningu, sem Gotehe varð fyr-
ir af Herder.
Menn telja að upphaf hinnar bók
mentalegu „gullaldar“ Dana á 19.
öld, sje að rekja til þess, að Steff-
ens vakti hjá Oehlenschláger nýtt
viðhorf til skáldskaparins og hlut-
verks hans og gaf honum beinlín-
is hugmyndina að hinu fyrsta stóra
kvæði hans „Guldhornene“, sem
varð upphaf rómantísku stefnunn-
ar í skáldskap Dana.
Grikklandi. Það mistókst og nú hef-
ur gríska stjórnin unnið sigur á
kommúnistum. Nú treysta Rússar
á það að skattgreiðendur í Banda-
ríkjunum trjenist upp á því að
stýðja Grikki fjárhagslega, og þá
komi tími grísku kommúnistanna
til þess að leggja undir sig alt land-
ið frá albönsku landamærunum
austur að Saloniki. Það yrði þá
fyrsti vísirinn til stofnunar hins
makedoniska ríkis.
' *• *. 4
Oehlenschláger.
Á árunum 1805—09 ferðaðist
Oehlenschláger um Þýskaland.
Frakkland, Sviss og Ítalíu. Árið
1810 varð hann prófessor í fagur-
fræði.
Af kunnustu skáldritum hans
er „St. Hansaften Spil“, „Aladdin“.
„Hakon jarl“, „Baldur hin Gode“,
„Axel og Valborg“, „Helge“ og
„Hagbarth og Signe“.
„Helge“ er talið seinasta afreks-
verk hans (1814) enda þótt margt
gott kæmi út eftir hann síðar. —
Skáldskapur hans hafði geisimikil
áhrif um öll Norðurlönd. Við há-
tíðarhöld í dómkirkjunni í Lundi
1829 lagði sænska skáldið Esajas
Tegner lárviðarsveig um höfuð
Oehlenschlágers og kallaði hann
„konung norrænna söngvara og rík
iserfingjann í heimi skáldskapar-
ins, þar sem Goethe skipar nú há-
sætið“,
Oehlenschláger komst snemma í
kynni við forníslenskar bókmentir