Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1952, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1952, Qupperneq 10
246 LESBÓK M0RGUNBLAÐ9INS Hvab gerbist i apríl MERKTJSTU TÍÐINDIN • HINN 25. apríl var hafin bygging Áburðarverksmiðju rikisins að Gufu- nesi í Mosfellssveit. Er gert ráð fvrir að hún geti framleitt um 18 þús. lestir af áburðarefnum á ári og að ardvirði þeirrar framleiðslu muni verða um 34 millj. króna. — Hráefnin eru heimafengin, því að þau eru loft cg vatn, en orku fær verksmiðjan hjá Sogsvirkjuninri nýu. Fyrst í stað verða reist þarna þrjú verksmiðju- hús og er fiatarmál þeirra allra um 2 dagsláttur, en rúmmál þeirra rúm- lega helmingi meira en rúmmál Há- skólans, sem er einhver stærsta bygg- ing hér á landi. Við þessa verksmiðju eru bundnar miklar vonir um það, að hún verði Ivftistöng fyrir islenzkan landbúnað. Fuiltrúar Albýðusambands íslands komu saman á fund í Reykjavík og var samþykkt að segja ekki upp samn- ingum á þessu vori og er þar með tryggður vinnufriður í landinu til hausts. VEÐRÁTTA var fremur rysjótt framan af mán- uðinum, eða fram undir páska (13. apríl) en síðan gerði einmuna tið, er helzt til mánaðarloka, nema hvað hret gerði á útnesjum r.orðan lands. koman er afar lítil, því að fugiinn verpir ekki nema einu eggi og ungarnir eru svo viðkvæmir að mikil vanhöld verða á þeim. Tel- ur dr. Orbell að vart muni kom- ast upp nema svo sem þriðji hver ungi. Vegna þessa fjölgar fuglun- um sáralítið, enda þótt þeir sé ekki veiddir. Nú hefir stjórnin friðað þetta landsvæði og er engum manni leyfilegt að fara þangað nema vís- indamönnum þeim, sem líta eftir fuglunum og athuga háttu þeirra, og eiga að gæta þess að stofninn deyi ekki út. Snjó leysti fljótt og kom jörðin svo að segja græn undan honum víðast, því að mjög lítill klaki var í jörð. Nokkrir vatnavcxtir urðu í sumum héruðum vegna bráðra ieysinga og vegir máttu heita ófærir víða vegna aurbleytu fram yfir mánaðamót. AFLABRÖGÐ Samkvæmt skýrslum nam ísfisksala íslenzkra togara í Englandi á fyrsta fjórðungi ársins rúmlega 40 miljónum króna. En í þessum mánuði veiddu ekki nema þrír eða fjórir togarar fyrir Englandsmarkað. Allir aðrir lögðu upp afla sinn hér og var hann saltað- ur, settur í hraðfrystihús eða hagnýtt- ur á annan hátt. Skapaðist við þetta mikil atvinna alls staðar þar sem tog- ararnir lögðu afla sinn á land. í marzlok var heildaraflinn orðinn nær þriðjungi meiri en á sama tima í fyrra. Alls var talið að hann hefði numið rúmlega 41.000 lestum, þar af togarafiskur 19.392 lestir og bátafiskur 21.716 lestir. í þessum mánuði barst mikill afli á land, því að uppgripaafli mátti heita hjá bátum í ýmsum veiði- stöðvum, bæði syðra og nyrðra. Tog- arar tóku í notkun nýtt veiðarfæri, svonefnda flotvörpu, og reyndist hún hin mesta veiðikló. Er fiskurinn nú tekinn í miðjum sjó og verður veiðarfæraslit við það miklu minna. Sumir bátar hafa einnig fengið sér litl- ar vörpur af sömu gerð og virtust þær duga vel. í lok fyrra mánaðar og fram undir miðjari april veiddist mikið af ioðnu í Keflavík, eða 7—8000 tunnur. Bætti það úr tilfinnanlegum bcituskorti, sem orðinn var. SLYSFARIR Pálmar Þorsteinsson háseti ó botn- vörpungnum Keflvíkingi, lenti með fót í vírlykkju, sem ó strengdist svo að fótinn tók af fyrir neðan hné. Ferdinand Bertelsen frá Árbæ í Ölfusi fanst örendur 3. april i bíl sín- um í bílskúr í Reykjavík. Hafði hann kafnað af kolsýrulofti frá hreyfli bílsins. Hinn 8. apríl fórst lítil flugvél í dimmviðri á Mosfellsheiði. Flugmaður- inn, Pétur Símonarson frá Vatnskoti í Þingvallasveit, var einn í henni og fótbrotnaði. Sótti fiugbjörgunarsveitin hann og flutti í sjúkrahús. Flugvélin mölbrotnaði. í öndverðum mánuðinum gerði af- takaveður norðan við land og hurfu þó 5 norsk selveiðiskip, sem voru norð- ur í ísnum. Á þeim voru samtals 79 menn. Skipanna og mannanna var leit- að af íslenzkum flugvélum og norskum skipum fram til mánaðamóta, en sú leit bar engan árangur. 12. apríl fórst vélbáturinn Veiga frá Vestmanneyjum, er hann var að koma Vinna hafin við áburðarvcrksmiðjuna

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.