Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1952, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.1952, Síða 16
f 253 I-ESBÓK MORGUNBLAÐSINS HAFÍS Á SKAGASTRANDARHÖFN — Vorið 1811 teiknaði landmælinga- maðurinn Aschiund þessa mynd og segir að þannig hafi höfnin á Skagaströnd iitið út 14. maí um vorið — fuil af ís. Segir Espholin að ísinn hafi þá komið á þorra, vetur verið þungur og snjóasamur nyrðra og hörkur miklar í ein- mánuði. „Þá var bæði norðan og sunnan lands, og þó enn meir eystra, vor svo kalt og ilt, að aldrei létti kuidum og hriðum til þess 8 vikur voru af sumri. Var því furðarJegt að menn héldust við, bjarglausir og heylausir víða. Féll sums staðar sauðfé, en allsstaðar eöa víðast mikið af lömbum og urðu gripir gagnslitlir hvarvetna. Var þá svo mikil þröng, er hvorki var til mjóik né matur annar, og ei að fá hið minnsta í kaupstöðum, en skuldir kallaðar scm óðast, veiðiskapur enginn, því ís lá fyrir öllu landi og ófært að koma hrossum neitt til bjargar, að það ætluðu mern, að aldrei mundi í jafnmiklu harðæri á hinum fyrri tíðum mannfail hafa svo lengi undan dregist“. Voru þá skinn etin víða. Skip komu fyrir norðan er á leið, og var matvara dýrari en nokkrn sinni fyr, en kramvara fékkst engin og peningar ekki aðrir en ónýtir banko- seðlar, 8 eða 12 skiidinga virði. Hvar á að byggja? Síra Jón Jónsson Reykjalín var fyrst prestur að Glæsibæ í Kræklinga- hlíð við Eyafjörð frá 1817—1839; þá var honum veitt Rípur í Hegranesi og var hann þar prestur til 1857, að hann fékk veitingu fyrir Heydölum í Breið- dal. Fóir hann að flytja sig austur þang- að þetta sumar, landveg sem þá var títt. En aldrei komst hann að Hey- dölum; hann andaðist á leiðinni með þeim hætti að hann varð bráðkvaddur. Tveimur eða þremur nóttum fyrir and- lát sitt dreymdi síra Jón það, að hann þóttist hitta mann nokkurn tígulegan á svip. Þóttist hann vita að maður þessi mundi vita fleira en fólk vissi almonnt, og ávarpar hann því á þessa leið: Hvar á að byggja? Hvernig fer? Hvar á að bera að landi? Hvað á að tryggja hag minn hér? Hvað á að liggja fyrir mér? Þótti honum þá maðurinn svara: Þar um varðar þig ei grand, þér á að nægja vonin. Guð ákvarðar lif og land, lán, búgarð og auðnustand. (Sagnakver B. B.) veðrAtta hlýnar enn Seinustu 50 árin hefir veðrátta farið hlýnandi og í mörgum löndum er með- alhiti ársins nú miklu hærri en hann var um aldamót. Ýmsir vísindamenn spá því, að áframhald verði á þessu og langt hlýindatímabil sé fyrir hönd- um. Hvalrekaár. í Eyrarannál segir svo frá árinu 1693: — Fyrir Jökli voru reknir á land af 8 skipum 280 háhyrningar, hvar af lögmaður fólkinu fyrir sitt ómak gaf 20 af þeim fiskum, og fátækum nokkra. — Einnig hlupu á land á Sléttanesi út af Skaga fyrir norðan 500 háhyrningar og einn sléttbakur á Hólabiskupsrek- um. Einnig hlupu margir háhyrningar á land á Melum og víðar í Trékyllisvík. í sama máta rak marga háhyrninga og hnýðinga á Kirkjubóli í Arnarfjarðar- dölum og víða um Barðaströnd og til eya í Breiðafirði. Á Skjallandafossi rak sama ár einn sléttbak heilar. og annan í Mið- hlíð. Sama árs haust rak yfir stórt hundrað þessa sömu hvali á Bessastöð- um, af hverra spiki landfógetinn Heide- mann lét bræða mikið lýsi, og hafði þar af mikinn hagnað. í sama máta í Garðastaðarlandi á Álftanesi rak og marga af þessum háhyrningum, hverjir til lýsis bræddir voru. Svo og rak þá allvíða annars staðar kring um landið, þó hér sé ei getið, svo þetta ár má með réttu kallast Hvalrekaár.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.