Lesbók Morgunblaðsins - 20.07.1952, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 20.07.1952, Page 6
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 362 heita bráðabirgðastjórn, en nú var henni steypt af stóli með páska- uppreisninni, Nýu stjórnendurívr. Victor Paz Estenssoro hafði ver- ið landflótta í Buenos Aires í sex ár, en nú sneri hann heim til þess að taka við völdum. Var honum ákaft fagnað á flugvellinum í La Paz og báru menn hann þaðan á gullstóli heim í forsetabústaðinn. Þar hélt hann ræðu og loíaði ýms- um brevtingum, þar á meðal að þjóðnýta námurnar, koma á al- þýðutrvggingum, skifta jarðeign- um milli manna o. s. frv. Á svöl- unum þar sem hann stóð hengu þá tvær myndir, önnur af honum sjálfum, en hin af ViUaroe'. for- seta, sem þessi sama alþýða hafði tekið af h'fi á grimdarlegan hátt árið 1848. En úti í mannþrönginni héldu verkamenn uppi spjöldum, er á var letrað: „Villaroel píslar- vottur, Estenssoro frelsari". í annari ræðu, sem hinn nýi forseti hélt, tilkynnti hann að hann mundi stjórna með hörku og hlífðarleysi. ★ ★ ★ ★ Ung og falleg stúlka var gestur í sumarhóteli. Hún hafði þann sið að ganga út á hverjum morgni, ein síns liðs, til þess að dást að náttúrufegurð- inni. Einu sinni fór hún út í skóg og kom þar að ljómandi fallegri tjörn, og þar hefði nú sannarlega verið gam- an að fá sér bað. E.i á spialdi á bakk- anum stóð með stórum stbíum: Vatns- ból bæarins. Hér má ekki baðast. Freistingin var mikil og unga stúllr- an stóðst hana ekki. Hún klæddi sig úr hverri spjör og ætiaði að stevpa sér í tært vatnið. En í sama biii kom lögreglumaður undan runna og sagði: — Þetta er vatnsból bæarins og það er v'arðlega bannað að baðast hcr. — Þér — þér —, stamaði stúlkan. Hvers vegna gátuð þér ekki sagt mér þetta áður en ég afklæddist? — Það liggur ekkert bann við því að afklæða sig, sagði hann. 3 leit aö Guði í LESBÓK Morugnblaðsins, 14. október s. 1. birtist mjög athyglis- verð grein, sem heitir, í leit að Guðí. Hún segir frá víðtækri trú- arvakningu í Bandaríkjunum. Eðlilegri vakningu, sem komin er innanfrá úr hugarfylgsnum fólks- ins, í öllum stéttum og flokkum. Höfundurinn skilgreinir þetta sem „hjarta hungur“. Hann er furðu- lega orðheppinn, og má minna á orð spámahnsins Amoss: „Sjá, þeir d3gar munu koma, segir drottinn, að eg mun senda hungur inn í landið, ekki hungur eftir brauði né þorsta eftir vatni, heldur eftir því að heyra orð drottins“. Þetta er engin nýung í sögu mannkynsins. Oft er þess getið í sögu ísraelsmanna, að þeir hafi aðhafst það, sem var illt í augum drottins og gleymt guði sinum. Þá hafi þeim jafnan farnast illa og þeir verið þjáðir af öðrum þjóð- flokkum, en þá hafi þeir jafnan hrópað til drottins. Þegar eg las greinina í Lesbók Morgunblaðsins, rifjaðist, upp fyrir mér samtal er eg átti við allmarga menn síðast liðið sumar. Eg var á ferð með skipi vestur og norður um land. Veður var dásamlegt þá daga, menn voru á þiljum uppi, og nú vill svo til, að eg þekki all- marga menn á landi hér, og þeir kannast við mig. Ýmsir tóku mig tah, og urðu þá oftast til umræðu heimsviðburðirnir. Það sem mig undraði mest, var að verða var hins sama hjá flestum þessara manna. Síðasti maðurinn, sem eg átti samtal við á sídpinu var véla- rr.oistari. Eg gat ekki minnst þesí að við hefðum átt tal saman áður. Tahð barst frá innanlandsmálum að viðburðunum á alþjóðasviði, að var.damálunum stóru. Hver var lausn þeirra? og varð yfirleitt nokkuð aðgert? Eg vék nokkuð að hinni svo kölluðu siðferðisvakn- ingu, að þingum hennar, sjónleik- um bæði f Svisslandi, Ameríku og víðar. Undir lok samtals okkar sagði vélameistarinn: „Það er aug- ljóst mál, að ekkert annað getur bjargað heiminum en andleg menn- ing, guðstrú og sannur kristin- dómur, sem skapar samhyggð, ein- ingu og gott samstarf einstaklinga og þjóða. Skyldi ekki vera hægt að tengja saman svo sem 200 menn á íslandi, sem vildu ýta undir slíka siðfer ðisvakningu ?" Eftir nokkurra daga dvöl á Ak- ureyri flaug eg til Reykjavíkur og íór sama dag til Þingvallar á all- fjölmennan mannfund. Þar tók eg tali þjóðkunnan mann og hvatti hann til að lesa bókina, The World Rebuilt. Hann spyr þá: „Heldur þú, að eg sé trúhneigður maður“. Það hef eg ekki hugleitt, en fremur gæti eg trúað því, svaraði eg. Hann segir þá: „Eg kem sjaldan í kirkju og kynni mig lítt á því sviði, en hitt get eg sagt þér, að eg vinn fæst störf mín án bænalífs." Þessi maður er verkfræðingur. Skyldu þeir ekki vera æði margir • , r s a Islandi, sem hugsa eitthvað svip- að og allir þessir menn, sem eg af tilviljun átti tal við á ferðum mín- um í sumar? Og skyldi ekki vera töluvert um „hjarta hungur“ á ís- landi, þótt enn sé þar ekki risin nein áberandi trúarvakning, og þótt sum hinna sjálfréttlættu játn- ingabarna þjóðarinnar hiki ekki við að tala um þjóð sína bæði heima fyrir og erlendis, sem heiðingja? Mig grunar sterklega, að allmikil innri glóð brenni víða í brjóstum landsins sona og dætra, en við ís- le’ndingar erum dulir að eðlisfari, nokkuð sundurleitir og seinir til að samfylkja um eitt og annað, nema þá helzt er logheitt pólitískt trúboð hleypir okkur kappi í kinn. Óskandi væri þó, að þetta bezta

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.