Lesbók Morgunblaðsins - 27.07.1952, Síða 2
366
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Frá byggingasafni dr. Antons Raabe. Húsið til vinstri er stafbúr frá 1280.
sauðfjárbú sér til ánægju, og til
þess að þarna sé allt með svipuð-
um ummerkjum innan húss og
utan eins og var á horfnum öldum,
þegar húsin voru í notkun hvert
á sínu bóndabýli.
Húsiun þessum hefur dr. Raabe
safnað í Sætersdal, á Þelamörk, í
Guðbrandsdal, Austurdal og
Raumaríki.
Norska ríkið hefur sett á lagg-
irnar sérstaka stjórnarnefnd til að
stjórna þessu merkilega safni og
sjá um viðhald þess, og að það komi
að sem fylístum notum fyrir norsku
þjóðina. Er dr. Raabe að sjálfsögðu
í þessari stjórnarnefnd. Mikil
áherzla er lögð á að námsfólk og
ferðafólk komi, til að virða fyrir
sér þessar stórmerku þjóðminjar.
í þessum húsakynnum eru líka
oft haldnir fundir fornfræðinga og
annarra vísindamanna. En til þess
að hafa þar allt útlit og umbúnað
með sama svip og áður, er þess
vandlega gætt, að enginn nýtízku
tækniáhöld séu þar sýnileg.
670 ÁRA GAMALT HÚS
Meðan dr. Raabe dvaldist hér í
Reykjavík, ræddi ég eitt sinn við
hann um þetta safn hans og förn-
minjaverndun yfirleitt bæði hér
og annars staðar. Hann fór hvað
eftir annað á Þjóðminjasafnið hér
og kynnti sér það, eins og hann
frekast hafði tækifæri til. Er hann
að sjáKsögðu mjög fróður forn-
fræðingur eftir að hann hefur lagt
stund á söfnun forngripa allt frá
því hann var ungur stúdent.
Á meðfylgjandi mynd sést elzta
bygging í safninu. Er þetta svo-
nefnt „stafbúr“ 10 m á hæð og 10
m á hlið, efri hæðin. Er og full vissa
fyrir því, að það var byggt kringum
árið 1280. Hefur stafbúr þetta verið
notað sem vígi. Þar eru skotraufir
á efri hæðinni. í útveggjunum hafa
fundist leifar af örvaroddum, svo
sýnilegt er að bogaskyttur hafa gert
þar árásir á þá menn, sem vörð-
ust þarna.
Neðri hæð stafbúrsins hefur ver-
ið notuð sém forðabúr og fyrir
ýmsiskonar geymslu. í efri hæðinni
hefur verið svefnskáli.
Viðirnir í þessu merkilega húsi
eru gersamlega ófúnir, segir dr.
Raabe og virðast geta staðist tím-
ans tönn öldum saman, ef húsinu
verður vel við haldið, þakið óbilað
svo það lekur ekki.
Formaður fyrir „Norsk Bruks-
kunst“, Knut Greve, hefur ritað
greinargerð um þetta merka safn
þar sem hann m. a. segir frá, að
hann hafi spurt dr. Raabe hvað
hafði vakið hugmynd hans að þessu
safni. Læknirinn hafi sagt að ást
sín á norskri bændamenningu
hafi vakið sig til meðvitundar
um, að hefjast þyrfti handa til að
bjarga gömlum byggingum í sveit-
unum, sem menn hefðu hætt að