Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.1952, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.1952, Page 1
MEÐ FERDAFÉLAGE 8SLAIMDS Þ A Ð er dálítið einkennilegt, að vilji maður fara skemmstu landle ð frá Reykjavík vestur í Hítardal, þá verður að byrja á J5ví að aka 30 km til austurs. Skemmsta leiðin liggur um Þingvelli, Uxahryggi og Lundarreykjadal, vegna þess að leiðin um Svínadal og Geldinga- draga er ófær. Væri sú leið fær bílum, þá væri skemmra að aka fyrir Hvalfjörð, en samt er leiðin furðulega krókótt. Bein loftlína frá Reykjavík að Staðarhrauni, sem er» yzt í Hítardal, er ekki nema um 70 km, eða álíka og' bílvcgurinn að Þyrli. En hjá Þyrli er ekki nema þriðjungur leiðarinnar að baki. — — I skínandi sóJskini og léttum blæ skreppum viö vestur í Hitardal með Ferðafélaginu. Þetta er fræg- ur staður af stóraíburðum, er þar liaía gerzt og merkum mönnum, sem þar hafa átt heima. Hann er einnig merkur fyrir það að fuli- komin óvissa ríkir um hvað nafn hans þýðir. Þjóðtrúin hefur þó þeg- ar fyrir 600—700 árum komið með skýringu á nafninu, og hana er að finna í Bárðar sögu Snæfellsáss: „í þann líma var Hít tröllkona uppi og byggði Ilundahelli í þcim dal, er siðan var kallaður Hítardalur.“ F’ræðimönnum heíur velgt við að kyngja þessari skýringu. Mun Jón Sigurðsson fyrstur hafa komið með þá tilgátu, að 'dalurinn drægi nafn af ánni, er um hann fellur, en hún hafi upphaflega heitið Hitá og verið kennd við jarðhita, og nafn hennar verið andstæða við naín næstu ár þar lyrir vestan, en hún licitir Ivaldá og liefur borið það nafn frá landnámstið. — Margir hafa síðan fallizt á þessa skýringu og talið hana fullgilda. Voru ekki bornar brigður á þetta fyr en í III. bindi íslenzkra fornrita, sem þeir Guðni Jónsson og dr. Sigurður Nordal gáíu út. Eru þar færð sterk rök að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.