Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.1952, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.1952, Side 6
426 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS GÁFUR ERU AUÐUR ÞAÐ er sannmæli enn í dag sem í Hávamálum stendur: Byrði betri berrat maður brautu at, en sé mann\it mikið. Þó verður að bæta þvi við, að menn verða að kunna að nota gáfur sínar. Vísindamenn hala á undanförnum árum gert hinar víðtækustu rannsóknir á gáf- um manna, og vér skulum nú líta á nokkrar niðurstöður þeirra. IIVAÐ ER GÁFUR? í raun og veru þá eru gáfurnar sá hæfileiki, er gerir mönnunum íært að færa sér reynslu fortíðar- innar í nyt og búa sig undir það, sem að höndum kann að bera í framtiðinni. Það er reginmunur *á þekkingu og gáfum. Þekking er að vita glögg skil á einhverju. En gáf- ur eru það að geta notað þá þekk- að upp fyrir hann en að fá kálf úr akveðinni kvigu og skyldi Þorleif- ur ala kálfinn 3 vetur. Þá kvaðst maðurinn mundu vitja hans, en líf Þorleifs iægi við ef. út af væri brugðið. Þorleifi þótti þetta góð kaup og tók við katlinum. Kvígan eignaðist bolakálf, en þegar hann var á annan vetur var hann orðinn svo illur og mannýgur, að Þorleif- ur sá ekki annað ráð en drepa hann. Þremur árum eftir að kaupm voru gerð, var barið að dvrum í Hitardal. Gekk Þorleifur þá út, en kom ekki inn aftur. Morguninn eftir mátti rekja blóðferil frá bæn- um að hól, sem þar er nálægt, og hingað og þangað um dalinn sáust tætlur úr líkama Þorleifs og fötum hans, og er sagt að mörg örnefni í dalnum sé af því dregin. En hver þau eru kann eg ekki að segja. (Meira). Á. Ó. ingu sér til gagns, hæfileikinn til að velja og hafna. BF,R GOTT MINNI VOTT UM MIKLAR GÁFUR? Nei. Heimskur maður getur haft stálminni, en stórgáfaður maður getur verið gleyminn. Yfirleitt benda athuganir til þess að miður gáfaðir menn hafi gott minni. En þetta getur stafað af því, að lær- dómi verður að troða í þá þangað til þeir hafa lært eitthvað utanbók- ar, án þess að um skilning sé að ræða. En þetta getur orðið til þess að í þeim tolli það, sem í þá hefir verið barið. ERU LÆRÐIR MENN GÁFAÐRI EN ADRIR * Fjarri fer því. í stríðinu seinasta urðu 10 milljónir manna í Banda- rikjunum að ganga undir gáfnapróf hjá hernum. Einn af sálfræðingum hersins, dr. Walther V. Bingham, hetir skýrt svo frá að 75'/i ai' gáf- uðustu mönnunum hafi ekki verið skólagengnir. ÞURFA ÞEIR, SEM VINNA MED HÖFÐINU, MINNI SVEFN EN ÞEIR SEM VINNA ERFIÐISVINNU? Þessu hefir verið haldið fram, en það er hin mesta fjarstæða. Þeir sem vinna með höfðinu þuría meiri hvíld en erfiðismenn. Rannsókmr hafa sýnt að vöðvar eru yfirleitt hvíldir eftir fjögurra stunda svefn, en heilinn þarf helmingi lengri hvild, ef maður hefir hugsað mikið. Rannsóknir hafa sýnt, að ef maður sem vinnur með höfðiriu, missir tveggja stunda svefn þá er hann ekki jafn hæfur til vinnu næsta dag og þreytist mörgum sinnum fyrr en ella. ERU LOGFRÆÐINGAR OG KAUPSÝSLUMENN GÁFAÐRI EN IÐNAÐARMENN? Við gáfnapróf það, sem fram fór hjá bandaríska hernum, og áður er getið, kom i ljós að lögfræðingar voru yfirleitt í fyrsta gáfnaflokk’. En 9f/c af ketilsmiðum stóðp þeim þar fyllilega á sporði. Og 25' 7 af bílstjórum voru gáfaðri en 23r< af kaupsýslumönnum. Hið sama kotn í ljós á mörgum öðrum sviðum. Og það sýnir hve langt er frá því að menn lendi alltaf á réttri hillu, að þeir komist í þann verkahring, sem er gáfum þeirra samboðinn. Þetta er oft sjálfum þeim að kenna. Þeir vanmeta gáfur sínar. En oft er það lika vegna þess, að þeir hafa ekki fengið hina réttu menntun eða fag- þekkingu. GETA MENN ÞROSKAD GÁFUR SÍNAR? Flestum vísindamönnum bcr sam an um að vér getum trauðla bætt hársbreidd við meðfæddar gáfur vorar. En annað getum vér gerí. Vér.getum þroskað hjá oss hæfi- lcika fil þess að færa oss þessar gáfur sem bezt í nyt. Rannsóknir vísindamanna hafa sýnt, að lang- fæstir menn nota til fulls þær gáf- ur, sem þeim eru gefnar. Þeir hata alltaf afgangs orku, sem hægt væri að nota. En sá sem kann að beita öllum gáfunr sínum, skarar oit langt fram úr þeim, sem miklu meiri gáfum eru gæddir. En hvernig á maður þá að beita öllum gáfum sínum? Fyrst . og fremst með því að fá þeim cins mikið viðfangsefni og unnt er — það er menntandi. Og góð sjálfs- menntun er mikils virði, ekki vegna þess að hún auki gáfur manns, heldur vegna þess að hún gerir menn hæíari til að beita gáfum sin- um. Og svo verða menn að venju sig á að hugsa, ekki endrum og eins, heldur alltaf. Menn geta lært að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.