Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1954, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1954, Blaðsíða 2
382 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS efni, því að varla mun hann hafa fengið fræða-nafnið vegna þess að hann hafi stundað forn fræði, því að þá hefði hann verið talinn galdramaður. En að því er hvergi sveigt í málastappi hans, að hann hafi við galdur fengizt. Til hins er bent víðar en á einum stað, að hann hafi verið greindur maður, og þó stundum nokkuð einkenni- legur í tali. Þegar Jarðabókin var gerð, býr Gísli á Rauðalæk syðra. Jörðin er talin 20 hndr. að dýrleika og voru eigendur margir. Gísli bjó á þriðj- ungi jarðarinnar, sem hann átti ásamt systrum sínum þremur, Margrétu, Kristínu og Guðrúnu. Var Margrét bústýra hans og virð- ist svo sem Gísli hafi aldrei kvænzt. Ekki var búskapurinn mikill. Hann átti 2 kýr, 1 kvígu tvævetra, 1 kálf, 6 ær, 3 gimbrar, 1 sauð tvævetran, 3 lömb og 2 hesta. En vegna þess hve bústofninn var lítill mun það hafa verið, að Gísli stundaði löng- um sjóróðra á vetrarvertíð suður á Miðnesi til þess að draga björg í bú. Um þessar mundir var Jón Vída- lín biskup í Skálholti, en séra Bjarni Hallgrímsson í Odda var prófastur í Rangárþingi. Hafði hann fyrrum verið sveinn og sknf- ari Þórðar biskups Þorlákssonar og hafði biskup miklar mætur á hon- um fyrir gáfur og kennimanns hæfileika. Sóknarprestur Gísla var séra Einar Magnússon í Guttorms- haga. Hann var holdsveikur og dró sú sýki hann til dauða 1716. TVÚ ER að segja frá því, að seint 1 á árinu 1705 kærir séra Einar Magnússon fyrir prófasti, að Gísli hafi ekki komið til kirkju að Árbæ né verið til altaris um tveggj§. $xa skeið, eða síðan 1703. En með því að Gísli hafði verið suður á Mjð- * nesi þessa vetur, skrifaði prófast- ur séra Gísla Jónssyni á Útskálum og skýrði honum frá þessa og bað hann að reyna að koma vitinu fyr- ir Gísla þá um veturinn. Þessu bréfi svaraði séra Gísli 20. marz 1706. Kveðst hann hafa skýrt Gísla frá kæru séra Einars og ráðlagt honum að sækja kirkju eins oft og hann gæti komið því við. Hafi Gísli tekið þessu ágætlega og farið að ráðum sínum. Hann hafi og alla jafna „sýnt á sér kristilegt fram- ferði í þessari sókn, með sakra- mentis meðtekning og kirkjunnar vitjun“. Af þessu virðist mega ráða að Gísli hafi upphaflega farið að van- rækja kirkjugöngur vegna þess að þonum hafi ekki líkað við séra Einar. Varð svo ekki meira ur þessu máli að sinni, en Gísli helt uppteknum hætti þegar hann var heima að sækja ekki kirkju. Leið svo fram á árið 1709. Þá um haust- ið skrifar séra Gísli á Útskálum prófasti í Rangárþingi og skýrir honum frá því, að nú sé liðið rúmt ár síðan Gísli á Rauðalæk hafi verið til altaris hjá sér. Skömmu eftir að prófastur fékk þetta bréf, fór hann að heimsækja Árbæar- kirkju og grenslaðist þá um leið eftir framferði Gísla. Skýrði þá séra Einar honum svo frá „að hvorki hafi Gísli viljað sakrament- is leita, kirkjuna sækja, né sín kristileg fræði lesa“. Prófastur skipaði þá presti að áminna Gísla rækilega og reyna að koma honum á rétta braut og veita honum síðan aflausn. Þetta gerði prestur þrisvar í votta viðurvist, fyrst á heimili Gísla, síðan að Marteinstungukirkju og seinast að Árbæarkirkju. Af þvj virðist mega ráða að Gísli hafi þó til kirkju komjð þau tvö skiftj. Jki ekkj vildx hann þýða^t fortölur prept^. Að vísu kvaðst hann vilja vera til altans ejna og öjiqur gyðs böm, en það væri ekki við það komandi að hann gengi undir aflausn sem sakamaður í Árbæarkirkju. Annan sunnudag eftir þrenning- arhátíð 1710 var prófastur við messu að Árbæ og skýrði séra Ein- ar honum þá frá því, að nú yæri liðin sjö ár síðan Gísli hefði verið til altaris hjá sér, en það var þá skylda að vera til altaris að minnsta kosti einu sinni á ári. Út af þessu fór prófastur að spyrja sóknar- menn um háttu og framferði Gísla. Var það sameiginlegur vitnisburð- ur þeirra, að þeir töldu hann „að rænu og vitsmunum óskertan, en mótvilji, þverúð og harðúðugt hjarta hans“ mundi því valda að hann hafði afrækt kirkjuna. Hafi hann þó verið alvarlega áminntur, bæði af klerkum og sýslumanni að láta af uppteknum hætti, en Gísli hafi þá svarað því „að aldrei hafi hann til sannleikans viðurkenn- ingar komist í kirkjunni alla sína ævi, eða mestalla“. Og ennfremur hafi hann tekið það fram skýrt og skilmerkilega, að hann gengi aldrei undir sakamanna aflausn. PJARNI prófastur tilkynnti nú ** biskupi hvemig komið væri, og kvaddi biskup þá saman prestafund til þess að ræða um málið. Var sá fundur haldinn að Árbæ og Gísli boðaður þangað, en kom ekki. Dómur prestanna varð sá, að Gísli skyldi ganga undir opinbera af- lausn fyrir það að hafa vanrækt að vera til altaris. Var honum síð- an birtur dómurinn, en hann hafði hann að engu. Næsta ár (1711) kvaddi biskup aftur saman prestafund og lét boða Gísla þangað. En það fór sem fyrr, að hann kom ekki. Þóttu nú sakir hans mejri vegna mótþróans, og varð sa dómur prestanna, að ef Qísli vildi ekki goðfúslega beygja Sig undir aga kirkjunnar, skyidi skorað á sýslumann að refsa hon- um, samkvæmt bréfi Friðriks III.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.