Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1954, Page 4

Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1954, Page 4
r 384 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS um hafi verið svo útþrykkilega banni hótað, eða fyrir honum skil- lega útlagt hvað undir því í allan máta falið væri og eftir fylgir, sem lögin ráð fyrir gera, þykir oss nauðsynlegt að hann enn einu sinni opinberlega áminntur sé, honum banni hótað, alvarlega og greinilega útlistað hvað það inni- bindi og á eftir komi, við hvort ef hann ei leiðréttist og til hlýðni gengur, virðist oss eiga yfir hann að ganga executio disciplinæ Ecc- lesiastica þeirra er konunglegt lög- mál til tekur að gerast skuli því- líkum harðhnökkuðum manneskj- um“. Dómsúrskurð þenna las pró- fastur yfir Gísla á heimili hans hinn 30. júní og hvatti hann með mörgum góðum for- tölum að iðrast. En er Gísli var ósveigjanlegur, hótaði prófastur honum bannfæringu og útskýrði fyrir honum hverjar afleiðingar hún hefði. Þá svaraði Gísli: „Ég er nú sextugur karl og tann- laus, kvelji þeir og drepi mig sem þeir vilja. Eður hvers vegna hafið þið dregið það svo lengi, úr því' að þetta er hvort sem er allt rang- lega upp tekið?“ Sat hann þannig fastur við sinn keip og lét engan bilbug á sér finna. JJÉTTUM tveimur mánuðum eftir að Gísla var birtur þessi dóm- ur, andaðist Jón biskup Vídalín á ferð um Kaldadal. Séra Jóni Halldórssyni í Hítardal var þá falið að gegna biskups- embætli. þangað til nýr biskup væri vígður. Og þá um haustið skrifar hann Bjarna prófasti Hall- grímssyni í Odda og segir honum að skipa séra Bárði Jónssyni að áminna Gísla enn og útskýra fyrir honum þýðingu bannfæringar. Og ef Gísli skipist ekki við það, skuli séra Bárður lýsa opinberlega tii banns yfir honum af prédikunar- stóli í þrjá sunnudaga í röð. En síðan skyldi „sjálfri bannfæring- unni frestað verða á meðan leitað væri ráða til æðra yfirvalda góðr- ar tilhlutunar í téðu vandamáli“. Séra Bárður áminnti svo Gísla þrisvar sinnum opinberlega vetur- inn 1721, og er það bar engan á- rangur, þá lýsti hann þrisvar til banns yfir honum af prédikun&r- stóli. En er Gísli tók ekkert mark á þessu framar venju og séra Jón Halldórsson hafði fengið að vita það, skrifaði hann Niels Fuhrmann amtmanni og spurði „hvort ei mundi sýnast ráðlegt, svo Gísla yrði allra ráða leitað til betrunar", að amtmaður fæli Hákoni Hannes- syni sýslumanni að refsa Gísla sam- kvæmt bréfi Friðriks III. og „að einn skikkanlegur prestur væri settur til að vera nálægur á með- an straffið væri á lagt, ef ske kynni að Gísli mætti fyrir hans geistlegar fortölur leiðréttast“. Amtmaður skrifaði sýslumanni 27. september og skipaði honum að setjá upp gapastokk í kirkju- garðinum á Árbæ og setja Gísla í hann nokkra sunnudaga í röð og vita hvort hann mýktist ekki við það. Hákon sýslumaður hummaði þetta fram af sér og aldrei var Gísli í gapastokk settur. Fór nú svo fram um hríð að ekki var rek- izt meira í þessu máli. QUMARIÐ 1722 tók Jón Árnason við biskupsembætti í Skálholti. Hann var ágætlega að sér, en strangur mjög og siðavandur. Er svo talið að hann hafi verið einn hinn stjórnsamasti biskup, sem Is- land hefir átt. Undir þennan ó- sveigjanlega mann bar nú mál Gísla. Þá var Þorleifur Arason prestur að Breiðabólstað í Fljótshlíð orð- inn prófastur í Rangárþingi. Hann skrifaði nú biskupi samsumars, rakti þar allt mál Gísla og skýrði frá hvernig því væri þá komið og spurði hvað gera skyldi. Biskup fór hóglega í sakirnar í fyrstu. Hann svaraði prófasti um haustið og sagði, „að með því að bannfæringunni sjálfri yfir Gísla hefði svo lengi frestað verið frá því lýsingar voru úti, svo sýnast mætti að ógnun þess viðurlags væri honum nokkurn part úr minni lið- in, þá sýndist ráðlegt, að Gísli skyldi að nýu þrisvar sinnum á- minntur vera, og síðan þrisvar sinnum lýst til banns yfir honum að undangenginni aðvörun í hvert sinn í viðurvist ærlegra manna. Vildi hann þá ekki við það skipast, skyldi hann undandráttarlaust bannfærast, eftir kóngsins lög- um“. Séra Bárður varð nú enn að fara á stúfana. Þrisvar sinnum fór hann heim til Gísla og áminnti hann í votta viðurvist og skoraði á hann að koma til kirkju að hlusta á bannlýsingar. En Gísli var hinn óþægasti undir þessum lestri, hljóp stundum burtu, eða svaraði annar- legum orðum, eins og í seinasta skiftið: „Látið mig fá alla seðlana, og látið það koma sem þið hafið gert um mig“. Eftir hverja áminn- ingu lýsti séra Bárður svo til banns yfir honum á prédikunarstólnum, en aldrei kom Gísli til kirkjunnar. A NNAN sunnudag eftir þrettánda 1723 kom prestur heim að Rauðalæk og tilkynnti Gísla að nú yrði hann bannfærður í kirkjunni þann dag. Gaf Gísli sig ekki að því. Prestur hélt svo áfram til Árbæ- arkirkju og hóf messu. Að lokinni prédikun las hann svo bannfær- inguna, og var hún á þessa leið:

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.