Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1954, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1954, Síða 6
386 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS hann háð héraðs prestastefnu þar sem Gísli hefði verið sakborning- ur. Skjöl þessarar prestastefnu hefðu síðan hvergi komið fram, svo að vitað væri, en til þessa at- burðar væri að rekja þetta vand- ræðamál. Niðurstaða prestadómsins nú varð þessi: „Þar fyrir svo að engu því sé forskotið, sem þessari vandræða- manneskju Gísla kynni að vera eða horfa til málsbóta í svo stórri sök, þá er það prestastefnunnar sameiginleg og endileg ályktun, að Gísla skuli setjast lögdagur til næstkomandi prestastefnu hér á Þingvöllum 1725, og er hann þá skyldugur fyrir þeim rétti í eigin persónu að mæta með öll sín skjöl og málsbætur, sem hann kann að hafa í þfcssari sök, og ef hann vill ei mæta viljugur, þá sé Þorleifur prófastur Arason, sem sækjandi málsins, skyldur til að krefjast þess af sýslumanni að veita sér aðstoð til að færa Gísla hingað nauðugan, svo endilegum dómi í þessu lang- sama vandræðamáli verði ei leng- ur upp haldið“. Sumum kann nú að finnast að Gísli hafi þegar verið dæmdur og honum refsað með bannfæring- unni. En svo virðist sem bannfær- ingin hafi mælst illa fyrir. Segir Espholin að Jón biskup hafi feng- ið margra manna ámæli fyrir hana, en hafi svo ekki viljað kalla þetta bannfæringu, heldur útsetningu af söfnuðinum og auglýsing forherð- ingar Gísla. CUMARIÐ 1725 var mál Gísla tekið fyrir á allsherjar presta- stefnu á Þingvöllum. Hafði Hákon Hannesson sýslumaður komið með Gísla nauðugan til þings. Hinn 18. júlí var Gísli leiddur fram fyrir prestadóminn. Féll hann þá á bæði kné og mælti: „Ég bið bæði guð og menn að fyrirgefa mér“. Síðan segir í dómabók presta- stefnunnar: „Og sem kennidómurinn hafði fengið það innfall af téðum orðum, að drottinn væri sannarlega tekinn að hræra hjarta Gísla til iðrunar, höfðu nálægir prófastar og prestar margar góðar og guðlegar fortölur fyrir honum að hann skyldi viður- kenna sínar syndir bæði í guðs augliti og manna, einkum þessar: að hann hefði allt of lengi forsóm- að að heyra orð drottins í sinni sóknarkirkju og ekki viljað standa opinberar skriftir fyrir sín brot og misgjörninga. Hann skyldi nú ljúf- lega og með allri auðmýkt gefa sig undir kirkjunnar aga og meðtaka opinbera aflausn af herrans hálfu fyrir boðun og framsögn þess guðs orðs þénara, sem þar til kvadd- ur yrði, og meðtaka svo þar uppá líkama og blóð Jesú Christi í kvöld- máltíðar sakramentinu, með stöð- ugu og alvarlegu áformi til að bæta og betra sinn lifnað. Þegar kennidómurinn hafði nú þetta nokkrum sinnum fyrir hon- um talað með öðru fleira sem þar til hlýddi, og hann tók því ekkert óþægilega, var til miðdags burt úr Synodo vikið, og nokkrum tíma síðar þangað aftur gengið, einnig greindar áminningar og fortölur fyrir Gísla ítrekaðar, hverjum hann ennþá betur og liðuglegar gengdi, þar til hann gaf sig um síðir al- deilis fanginn og lofaði fullkomlega að ganga til hlýðni og gefa allt sitt mál guði í vald, játa og meðkenna opinberlega sínar áðurtéðar syndir og útstanda kirkjunnar disciplin eftir guðs og kóngsins lögum, vilj- andi hjartans gjarna verða aftur innlimaður kristilegri kirkju, frá hverri hann hefði með banni skil- inn verið, og betra svo sitt fram- ferði af fremsta megni, svo sem guð almáttugur vildi sér náð tii gefa. Og sem kennidómurinn nú hjart- anlega glaður af þessari umvend- an Gísla, þakkandi guði af hjarta fyrir þá iðrunar uppvakning, er hann hafði í hans brjósti verkað, varð sá endilegur úrskurður Synodi í þessu máli, að Gísli skyldi standa opinbera aflausn og leysast úr banni í dómkirkjunni í Skál- holti n. k. 9. sunnudag eftir trini- tatis, af prófastinum í Árnessýslu, séra Ólafi Gíslasyni“. F'KKI tók Gísli aflausn hinn til- tekna dag. Hefir hann ef til vill fengið frest. En um vorið 1726 er hann leystur úr banni í Skál- holti og að aflausn lokinni var hann til altaris. Komust. þannig sættir á milli hans og kirkjunnar. En þótt Gísli væri nú aftur „inn- limaður" söfnuðinum, breytti hann ekki háttum sínum hið minnsta og rak brátt að því að sóknarprestur- inn, séra Bárður færi að áminna hann og biðja fyrir honum á pré- dikunarstólnum. Fór sem fyr að slíkt hafði engin áhrif á Gísla. Leið svo það ár og hið næsta að Gísli hélt uppteknum hætti um að af- rækja kirkjuboðorðin. Hinn 20. jan. 1728 fór séra Bárður ásamt þremur vottum heim til Gísla að áminna hann og biðja hann með góðu að ganga undir opinbera aflausn fyrir það að hann hefði ekki verið til altaris síðan vorið 1726 í Skálholti. Þær fortölur báru engan árangur. Öðru sinni fór séra Bárður að Rauðalæk ásamt meðhjálpurunum til þess að áminna Gísla og í þriðja sinni á- minnti hann Gísla opinberlega fyr- ir embættisgerð á Árbæ hinn 7. marz. Skoraði hann þá á Gísla að taka aflausn, en Gísli harðneitaði. Tilkynnti prestur honum þá að hann mundi lýsa til banns yfir honum næstu þrjá sunnudaga. En

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.