Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1954, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1954, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 387 Gísli kvað sig það engu skifta. Var prestur þá orðinn langþreyttur og eftir prédikun þennan sama dag lýsti hann í fyrsta skifti til banns yfir Gísla og síðan næstu tvo sunnudaga þar á eftir. Á annan í páskum var messað á Árbæ og kom Gísli þangað. Þá talaði séra Bárður enn við hann fyrir messu, og bauð honum af- lausn og að vera til altaris. Það vildi Gísli ekki. Þá hótaði prestur því að hann mundi bannfæra Gísla næsta sunnudag, en Gísli svaraði því, að hann hefði bannfæringuna að engu. Var Gísli svo bannfærður öðru sinni og „afhentur djöflinum“ 1. sunnudag eftir páska, sem var 4. apríl 1728. Var það gert í viður- vist héraðsprófastsins, sem þá var séra Ólafur Gíslason. Hafði hann fengið Odda 1725 og orðið prófast- ur í Rangárþingi eftir að séra Þor- leifur Arason drukknaði í Markar- fljóti (12. jan. 1727). Að undirlagi Ólafs prófasts stefndu svo biskup og amtmaður Gísla fyrir prestastefnu á Þingvöll- um 1729. Var þangað og stefnt Ólafi prófasti sem saksóknara og séra Bárði til þess að réttlæta sínar gerðir. En enginn þeirra kom á prestastefnuna. Var því ekkert hægt að gera í málinu, nema hvað þeir Ólafur prófastur og séra Bárð- ur voru sektaðir um eina mörk hvor til fátækra fyrir að koma ekki, og Gísli sektaður um mörk til Klausturhólaspítala. Málinu var svo slegið á frest til næstu presta- stefnu. IjEIR amtmaður og biskup gáfu nú út nýa stefnu 2. janúar 1730 og birti Ólafur prófastur Gísla hana heima á Rauðalæk hinn 6. maí. Var honum þar boðið að koma til næstu prestastefnu, og einnig var séra Bárði stefnt þang- að. Og til þess að það væri öruggt að Gísli kæmi, skrifaði Fuhrmann amtmaður sýslumanninum í Rang- árvallasýslu, Nikulási Magnússyni og skipaði honum að hafa Gísla til prestastefnunnar hvort sem hann vildi eða ekki. , Málið var svo tekið fyrir á prestastefnunni 15. júlí, en ekki var Gísli þar. Var Nikulás sýslu- maður í vanda staddur út af þessu, en reyndi þó að afsaka sig. Kvaðst hann hafa skilið skipun amtmanns þannig, að hann ætti ekki að beita valdi við Gísla fyr en útséð væri um að hann færi sjálfviljugur til prestastefnunnar. Hann gat þess einnig að Gísla hefði kalið illilega á fótum um veturinn og hefði hann legið rúmfastur öðru hvoru allt vorið vegna þess. Og í saklausri ein- feldni sinni kvaðst sýslumaður hafa litið svo á, að þess vegna væri hann „sjálfsettur“ heima hjá sér, og því ætlað að taka hann þar, er hann færi til þings. En er hann kom að Rauðalæk var Gísli farinn að heiman fyrir viku, og hefði sér verið sagt að hann mundi hafa ætlað til Alþingis. Séra Bárður kom ekki til presta- stefnunnar, en sendi bréf og kvaðst ekki geta komið „vegna ýmislegra báginda og forverksmannsleysis“. En jafnframt sendi hann skýrslu á 9 blöðum um viðskifti þeirra Gísla. Ólafur prófastur krafðist þess að Gísli yrði dæmdur samkvæmt lög- um, þótt fjarverandi væri. En það leizt biskupi og dómprestum ekki ráðlegt, þar sem enginn væri til að halda uppi vörnum fyrir hann, og stefndi því Gísla til næstu prestastefnu, svo fremi að hann hafi ekki betrað sig fyrir þann tíma. Auk þess skyldi hann greiða markarsekt til næsta spítala fyrir að koma ekki. Þá fór Ólafur pró- fastur fram á það að sér yrði dæmd af fé Gísla 2 hndr. á landsvísu „fyr- ir þá mæðu og ómak, sem hann hefir haft fyrir þessu máli“. Fellust dómendur á það og dæmdu Gísla skyldan að greiða prófasti þetta fyrir næstu veturnætur. CUMARIÐ 1731 var mál Gísla tek- ið fyrir á prestastefnu á Þing- völlum hinn 14. júlí. Og nú var Gísli þangað kominn, hvort sem hann hefir verið fluttur með vaidi eða komið sjálfkrafa. Hófu þá amtmaður, biskup, pró- fastur og dómprófastur þegar for- tölur yfir honum. Bentu þeir hon- um á að hann væ'ri nú háaldraður maður kominn á grafarbakkann og gæti átt von á dauða sínum þá og þegar, og væri honum það háska- legt ef hann iðraðist ekki og leysti sig úr banni áður en dauðinn berði að dyrum. Var Gísli þá hinn mýksti í öllum viðræðum og lauk með því, að hann lofaði- að koma í Skálholt, „standa þar opinberar skriftir fynr sín afbrot, svo hann úr banni leyst- ur verði, meðtaka og síðan sakra- ment til að styrkja sína trú um syndafyrirgefning og að öðlast ogsvo þar með aðrar þær gagn- semdir sem kvöldmáltíðin færir“. Varð það svo endanlegur dómur prestanna, að Gísli skyldi standa opinberar skriptir og leysr.st úr banni í dómkirkjunni í Skr.lholti 11. sunnudag eftir þrenningarhátíð af séra Ingimundi Gunnarssyni kirkjupresti. Þessum málalokum urðu allir fegnir þá í bili. Gísli kom í Skálholt að ákveðn- um degi og vildi leysast úr banni, en þverneitaði nú að ganga undir opinberar skriptir. Var hann því ekki leystur og varð að fara heim við svo búið. JjEGAR svo illa var komið, skrif- aði biskup konungi, skýrði hon- um frá málavöxtum og spurði hvað ætti að gera við Gísla. Jafnframt Frh- á bls. 390

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.