Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1954, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1954, Blaðsíða 9
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 389 Áður skreið það fyrir þöndum seglum um úthöfin. ræðum með að koma fyrir her- skyldum sjóliðum. Kom mönnum þá það ráð í hug að þeir gæti feng- ið samastað í „Af Chapman“. Voru þá leystar festar skipsins og það flutt til Skeppsholmen í Stokk- hólmi og lagt þar við bryggju. Og nú var það orðið að „sjóiiðabragga“. Þá var rifin upp úr því kjalfestan og kom þá í ljós að hún var mest- megnis fallbyssukúlur, — þessar gömlu, hnöttóttu járnkúlur, sem notaðar voru í elztu fallbyssur. Reiðinn var að mestu tekinn nið ur, og hin miklu segl voru rist nið- ur í ábreiöur. Neðan þilja voru þó gerðar mestar breytingar, því að bætt var við ótal mörgum vistar- verum þar. Þegar stríðinu lauk 1945 þóttist sænski flotinn ekki þurfa á skip- inu að halda lengur og auglýsti það til kaups. En nú var Stokk- hólmsbúum farið að þykja svo vænt um skipið að þeir vildu ekki missa það. Fannst þeim sem það hefði sett sinn svip á borgina þessi árih, sem það hafði verið þar, og sjónaísviftir mundi að því verða ef það hyrfi. Hin stóru seglskip voru nú orðin fátíð og þetta var seinasta stóra seglskipið, sem Svíar hðfðu átt Fannst naörgum því sú tilhugsun óþolandi, að skipið yrði höggvið upp. Bæarstjórnin í Stokkhólmi ákvað því að kaupa skipið og bjarga því frá glötun. Og bæarstjórninni hugkvæmdist það snjallræði að hafa skipið eigi að- eins til sýnis sem forngrip, heldur og að nota það í þágu borgarinnar. Hún bauð því Ferðafélaginu þar a staðnum umráð skipsins og haia það fyrir gististað handa ferða- mönnum. Tók félagið því með þökkum, og nú var hafizt handa um að breyta skipinu svo neðan þilja, að ferðamenn hefði þar sæmi- lega aðbúð. Sá íélagið um breyt- ingarnar, en bæarstjórn studdi það allríflega með fjárframlögum. Nokkur félög lögðu og skerf til þessa, til þess að hugmyndin kæm- ist í framkvæmd og skipið fehgi að vera á sínum stað. Og þarna liggur nú hið fljótandi hótel, hvítmálað og fagurt á að líta, en einkum þó glæsilegt í aug- um gamalla sjómanna, og minmr það á hina fornu frægð seglskip- anna. Allt er þar snyrtilegt innan borðs og þar eru svefnklefar fyrir 130 ferðamenn, karla og konur, unga og gamla. Þar stjórnar ung- frú Ruth Johansson, en þjónustu- Veitingar á þilfari

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.