Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1954, Síða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1954, Síða 10
390 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - FHÆÐA GÍSLI lið hennar er fólk, sem skilur og talar flestar tungur. Því að það eru fleiri en sænskir ferðamenn, sem fá þar inni. Þar hafa verið gestir úr öllum álfum heims. Hið eina, sem óbreytt er í skip- inu er káeta skipherra og „skot- færageymslan“. Þar er allt með þeim svip er áður var, svo að menn geti séð hvernig þar var umhorfs fyrrum og því nokkurs konar minjasafn. En uppi á þiljum eru stólar og borð og þar geta gestir fengið hressingu. Þeir sem ganga þar um beina, eru í „matrósaföt- um“. Það er regla að enginn fær að dveljast þarna lengur en fimm daga í senn. En þeir sem ..hafa dvalizt þar, eru svo hrifnir af veru sinni, að þeir vilja gjarna komast þangað aftur. Veldur þar um að vistarverur eru góðar, viðmót „áhafnarinnar“ þægilegt og aðlað- andi og svo kostar gistingin ekki nema 1.50 á sólarhring (auðvitað í sænskum peningum). Gamlir sjómenn heldu því fram að skipin hefði sál. Og ef svo er þá má „Af Chapman“ gleðjast út af því að vera komin í hornið hjá Stokkhólmsbúum, láta dekra við sig á alla lund, og fá að eyða elli- dögunum þarna í hinni fögru höfn. Það er bæarstjórninni líka sómi að hafa varðveitt þetta gamla og glæsilega skip. Ef þú kemur til Stokkhólms, ættirðu að fara út á Skeppholmen og skoða það. c_^-?>®®®s^_j Aldraður maður hafði þann ófrávíkj- anlega sið að kaupa blað á hverjum morgni af sama blaðsalanum, svo að þeir voru orðnir góðkunningjar. Einn morgun uppgötvaði hann að hann hafði gleymt peningabuddunni sinni heima. — Það gerir ekkert til, sagði blað- salinn. Hérna er blaðið og þú getur borgað mér það á morgun. — En ef ég skyldi nú deya í nótt? — Jæja, það væri þá ekki stór skaði skeður. Frh. af bls. 387. lét hann stefna Gísla fyrir næstu prestastefnu 1732. Bréf konungs kom út um vorið (dags. 21. marz 1732) og segir í því á þessa leið: „Það er Vor allra náðugastur vilji og fyrirskipan, að ef Gísli vill enn standa skriptir og afplána það hneiksli, sem hann hefir valdið í söfnuðinum, þá megi leysa hann úr banni og taka hann aftur inn í kristinn söfnuð. En vilji hann það ekki ,eða bfjóti af sér í þr)Sja sinn, þá skuli hann gerast lánd- rækur, samkvæmt Norsku lögum II., 9. kap. 15. gr.“ Nú var ekki átt undir því að Gísli kæmi sjálfviljugur til presta- stefnunnar, heldur lét Fuhrmann amtmaður flytja hann þangað. Var svo Nikulás sýslumaður Magnús- son skipaður verjandi hans, en Þórðar Þórðarson ráðsmaður dómkirkjunnar í Skálholti sak- sóknari. Hann bjó á Háfi í Holtum og hafði verið ritari Árna Magnús- sonar meðan hann ferðaðist hér um land. Rétturinn var settur 16. júlí. Var þar lesinn yfir Gísla úrskurður konungs og mun hann >þá hafa gugnað og óað við að vera rekinn 1 útlegð á gamals aldri og fluttur af landi burt og fleygt á land ein- hvers staðar í framandi landi. Segir og svo í dómabók prestastefnunn- ar: „Sem Gísli var nú kominn fyrir réttinn var hann að spurður af hálfu kennidómsins, hvort hann vildi nú iðrast allra sinna synda, standa opinbérar skriptir og inn- limast aftur í kristilega kirkju, hvar til hann svaraði ei einasta já, heldur ög einnig bað um það sjálf- ur opinberlega að hann mætti af- leystur verða í kirkjunni hér á Þingvöllum á næstkomandi sunnu- degi, af þeim guðs kennimanni, sem þar yrði til valinn, og komast svo aftur í guðs vingan og sam- félagskap kristilegrar kirkju. Þess vegna gerðist svoleiðis á- lyktun: Gísli Ólafsson skal standa opin- bera aflausn fyrir það hann svo lengi hefir haldið sig frá brúkun sakramentis, hann skal og einnig afbiðja opinberlega það hneiksli, sem hann hefir gert í söfnuðinum, og síðan leysast úr banni, og þetta skal ske í kirkjunni hér á Þing- völlum næsta sunnudag af dóm- kirkjupresti Ingimundi Gunnars- syni“. Nikulás sýslumaður fór þá fram á, að Gísli yrði dæmdur til að greiða sér 2 hndr. á landsvísu fyrir „það ómak er hann hefur haft fyi- ir Gísla í tvö ár“. Svöruðu prestar því að þetta gæti hann fengið „með þeim skilmála, að ef Gísla kynni að falla missir fémunanna svo þunglega, að honum yrði þess vegna hætt við að falla aftur í villu og þvermóðsku“, þá skylrii sýslumaður sleppa þessu tilkalli. ÍVTÆSTA sunnudag var fjölmennt ' og góðmennt í Þingvallakirkju. Voru þar amtmaður og biskup, all- ir alþingismenn og synodusprestar cg var setið eftir mannvirðingum. Gísla var fengið sæti á krókbekk og var hjá honum meðhjálparinn, til þess að gæta hans. Að lokinni prédikun byrjaði af- lausnin og hóf Ingimundur Gunn- arsson dómkirkjuprestur mál sitt á þessa leið:

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.