Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1954, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1954, Side 3
EESBÖK MORGUNBLAÐSINS 599 má þó sjá, að aðalerfinginn hefur verið föðursystir hans, Elín Gísla- dóttir, sem þá átti heima á Stóra Núpi, aldurhnigin og farin að heilsu. Er þess sérstaklega getið í skiftagerð, að hún hafi gert sig á- nægða með ráðstöfun á sérstakri eign búsins, en aðrir erfingjar ekki til nefndir þar. En að sýslumanni látnum, sett- ist ráðsmaður hans, Gísli Gíslason í búið. Taldi hann sig erfingja sýslumanns, eða að minnsta kosti umboðsmann erfingja. Lét hann gera útför sýslumanns virðulega og með miklum kostnaði og er ekki að sjá að nein fyrirstaða hafi verið á því að hann fengi kirkjuleg, því Jóhann prófastur sagði seinna að Gísli hefði afhent sér silfurbikar og tvo ríkisdali, sem hann hafi tal- ið vera fyrir legkaup og líkprédik- un. Ýmislegt annað hafði Gísli einnig greitt úr búinu, svo sem kaup þjónustufólks og fleira. Hef- ur hann sýnilega ætlað sér að jafna alla reikninga búsins sjálfur. En þá kom stryk í reikninginn hjá hon- um. NIELS KJÆR varalögmaður var nú settur sýslumaður í Árnes- sýslu og á Alþingi þetta sumar gaf Niels Fuhrmann amtmaður hon- um fyrirskipan um að hefja rann- sókn út af dauðdaga Gríms sýslu- manns, yfirheyra heimafólk hans og þá gesti er hjá honum höfðu verið er fráfall hans bar að hönd- um og fá að vita hvað hæft væri í því að hann hefði af ásettu ráði steypt sér í brunninn. Jafnframt var Þórði Þórðarsyni Skálholts- ráðsmanni falið að stefna vitnum og koma fram fyrir hönd hins op- inbera. Var svo ákveðið að þingað skyldi í málinu á Langholti hinn 18. ágúst. Þá var versta veður, stórrigning og hvassviðri, og komu þeir Niels Kjær og fylgdarmenn hans svo hraktir þangað og illa til reika, að ekki treystist lögmaður til þess að halda þingið, heldur frestaði því til næsta dags. Þá lagði Þórður Þórðarson fram stefnu til Gísla Gíslasonar, til þess „að auglýsa undir þinn svarinn eið, hvað þú veizt burtfengið og fargað var af sterfbúinu, hvort heldur það sjálfur gert hefur, eða aðrir, og hverjum það fengið hefur verið, og með hvaða heimild þú hefur tekið að þér að afhenda nokkuð eða farga fyrir utan yfir- valdanna tilhlutan.“ Rúmri viku áður hafði hinn setti sýslumaður skrifað upp búið í Langholti. Þá var Gísli veikur og svaraði engu þó á hann væri yrt og fengust því engar upplýsingar hjá honum um hvað hann hefði af hendi látið. Og vegna þess að heimilið var þá forstöðulaust, skip- aði Kjær bónda þar úr sveitinni. Eirík Helgason, umsjónarmann búsins í Langholti „til að hafa um- sjá með kviku og dauðu, sem og því innsiglað er. Svo og tilsegist ráðskonunni, Margrétu Ófeigs- dóttur, að útdeila matinn skikkan- lega og forsvaranlega til þjónustu- fólksins, svo það hafi ei orsök að klaga, en ekkert ónauðsynlega fargast láta“. Enn fremur fyrir- bauð hann „í kröftugasta máta ein- um og sérhverjum, hverju nafni sem heitir, hér af að farga eða úti- láta til nokkurs manns, að frátekn- um ráðsmanninum og ráðskon- unni, sem hafa leyfi mat og drykk til nauðsynlegrar forsorgunar þjónustufólksins út deila og rigt- ugan reikning af standa nær heimtað verður“. Með þessu voru öll ráð tekin af Gísla og skotið loku fyrir að hann gæti ráðsmennskast þar framar. Síðan voru fengnir til virðingar- menn að virða búið og nam virð- ingin alls 184 hundruðum og 44*/2 alin á landsvísu. Var þar talið með allt er Gísli hafði ráðstafað. Meðal eigna Gríms var jörðin Fjall í Ölf- usi, sem talin var 30 hndr. að dýr- leika, en var þá í eyði. Tvær hjá- leigur hennar, Laugarbakkar og Hellir, voru byggðar, en þriðja hjáleigan, Fossnes, í eyði. Líklega hefur Grímur verið talinn bóka- maður á þeirri öld, því að hann átti milli 50 og 60 bindi af bókum. Og það er athyglisvert, að þar eru fáar guðsorðabækur, sem þá var tíðust Bokaeign íslendinga. Hann átti margar góðar bækur, svo sem Njáls sögu, Eddu (gamla útgáfu á 3 tungumálum), Landnámu, Ólafs sögu Tryggvasonar, Ólafs sögu helga, Magnúsar sögu góða, Lög- bók íslands, Alþingisbækur frá 1695, gamla vísnabók, sögubók og mesta fjölda af rímum í 8 bindum. Er getið um Hervararrímur, Bósa- rímur, Geirharðsrímur, Rollants- rímur, Þjófarímur, rímur af Kára Kárasyni o. fl. Á þinginu í Langholti var svo ákveðið, að Gísli skyldi skila aftur öllu því, er hann hafði fargað, eða standa skil á andvirði þess. Skuldir búsins voru nokkrar og meðal annars lagði Þórður Þórðar- son fram 900 rdl. kröfu í búið, því að það væri konungs peningar er Grímur hefði fengið greidda vegna skipverja á „Giötheborg11, en eigi gert nein skil fyrir. Úr því mun þó sennilega hafa raknað, þegar farið var að athuga skjöl Gríms, því að eflaust hafa þar verið skjöl er sýndu, hvernig hann hafði ráðstaf- að þeim peningum. Aftur á móti kom það fram í skjölum búsins, að Grímur taldi til skuldar hjá fjölda manna víðs vegar. Var verið að basla við það í nokkur ár að inn- heimta þessar skuldir, en gekk illa, því að margir skuldunautar voru dauðir, sumir fundust ekki þótt eftir væri leitað, eða voru fluttir í önnur héruð. Mátti því með sanni

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.