Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1954, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1954, Side 8
604 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Þorgr. Halldórsson: Á INDlÁNAÞINGI Tvær Indíánaprinsessur af Delaware og Otoi þjóðflokkunum, Þær eru fagrar með hrafnsvart hár og tindrandi augu.. ■pLESTIR ungir drengir hafa gam- * an af Indíánasögum eða að minnsta kosti var svo um mig. I æsku las ég hverja þá Indíánasögu er ég komst yfir og þeysti um enda- lausar slétturnar í draumum mín- um með tryggan Indíána sem fylgi- svein og mörg voru ævintýrin sem við lentum í, barátta við óvinveitta flokka, vísundaveiðar og eltinga- leikar við villt hrossastóð, en það var ekki fyrr en seinna að ég fór að sjá undurfagrar prinsessur með hrafnsvart hár og tindrandi augu. MEÐAL INDÍÁNA En aldrei óraði mig fyrir því að ég ætti eftir að sitja þing reglu- legra Indíána, horfa á stríðsdansa, hlýða á söngva þeirra í kringum eldinn og gefa prinsessunum hýrt aug€h~Bn nú er ég staddur á þingi þessara þjóðflokka sem ekki fyrir löngu börðust hetjulega vonlausri baráttu gegn tækni hvítu mann- anna. Indíánaþingið í Anadarko er mikill viðburður meðal hinna ýmsu þjóðflokka, sem byggja sléttur Vestur-ríkjanna og er það einu sinni á ári að þeir koma hér saman, minnast frægðar forfeðra sinna, klæðast fornum skartklæðum, dansa stríðsdansa og haga sér að flesto eins og forfeður þeirra, nema hvað þeir láta höfuðleður okkar fölvanganna í friði. Hér eru sam- ankomnar þúsundir Indíána víðs- vegar að og hafa reist tjaldborgir sínar í kring um þingstaðinn og eru þeir af mörgum þjóðflokkum svo sem Delaware, Cherokee, Sem- inole, Apache og Kiowa, svo nokkr- ir séu nefndir. Þegar ég horfi á gömlu höfðingj- ana rétta friðarpípuna á milli sín hverfur hugurinn aftur í tímann og svipmyndir úr sögu þeirra koma fram í hugann. Margt er orðið hér breytt síðan þeir riðu um slétturnar og veiddu vísunda með bogum og örvum og stóð af villtum hestum þeystu um, frjáls eins og fuglarnir sem svifu yfir höfðum þeirra. Fyrstu kynni þeirra af „menn- ingunni“ er hvítir menn komu og rændu frá þeim landsvæðum og drápu niður veiði þeirra með eld- spúandi hólkum. Skrokkar vísund- anna lágu sem hráviði um slétturn- ar, því þúsundir þeirra voru drepnar daglega af tómri drápfýsn, sem kölluð var íþrótt, og gekk þetta þannig til þar til vísundum var nærri gjöreytt. Síðan innbyrðis bardagar jafn- framt baráttu við fölvangana, sem oftast báru sigur úr býtum þrátt fyrir hetjulega baráttu Indíánanna með sínum frumstæðu vopnum. Svo flæmdir úr heimkynnum sín- um inn á ókunn landsvæði þar sem lítil var veiði og léleg. Og barátta þeirra til hins síðasta unz þeir urðu loks að semja frið eftir að höfðingi þeirra Sitting Bull hafði verið tek-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.