Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1955, Side 1
13. tbl.
Jflt>r#unl»Jaí>£in3
Sunnudagur 3. apríl 1955
Wlt
XXX. árg.
Tvö skipströnd fyrir 50 árum
Fjallsá í vexti
í TILEFNI af strandi togarans
„King Sol“ á Mcðallandsfjöru nú
fyrir skemmstu, rifjar blaðið
„Evening Telegraph“ í Grimsbv
upp sögu um togarastrand hér
við land fyrir 50 árum. Þykir
rétt að birta hér þá frásögn, þar
sem lítið er getið um þennan at-
burð í íslenzkum heimildum, en
áður skal þó sögð saga af öðru
strandi, sem varð rétt áður.
s.
STRAND Á BREIÐAMERKUR-
SANDI
Hinn 12. janúar 1905 lagði tog-
arinn „Banffshire" á stað frá
heimahöfn sinni Aberdeen og var
förinni heitið til veiða við fs-
landsstrendur. Hafði skipið með-
ferðis 150 smál. af kolum til farar-
innar. Skipstjóri hét Alfred Jones
og stýrimaður Albert Jones. Segir
nú ekki annað af för þeirra en að
þeir hrepptu dimmviðri þegar þeir
nálguðust ísland. Og laust fyrir
dögun 16. jan. renndi skipið beint
upp í sand, rétt austan við Breiðár-
ós. Var þá á ofsarigning og stórsjór
við ströndina. Rétt áður en skipið
tók niðri, hafði það fengið á sigbrot
-sjó og tók þá út skipsbátinn, svo
að þeir voru þarna illa staddir, og
var ekki um annað að gera en haf-
ast við í skipinu, meðan sætt vævi,
og bíða björgunar.
Þeir héldu nú kyrru fyrir allan
daginn og næstu nótt, eða samtais
28 klukkustundir. En svo hátt hafði
þá brimið borið skipið, að með
háfjöru, sem var stundu eftir há-
degi hinn 17. janúar, var orðið svo
stutt í land að þeir ákváðu að yfir-
gefa skipið, og óðu svo sjóinn í
mitti og upp undir hendur. Gekk
það vel og komust allir á land, en
ekki er nú kunnugt hve margir þeir
voru, líklega 10 eða 11.
Þegar á land var komið fóru þeir
að hugsa um að komast til byggð3
og er svo að sjá sem þeir hafi haft
einhverja hugmynd um að betra
væri að leita vestur á bóginn. En
yfir Breiðárós komust þeir ekki, því
að hann var með öllu ófær, vegna
þess hve mikið var í ánni eftir stór-
rigninguna. Fóru þeir þá austur
fyrir Breiðárlónið og síðan upp
með ánni allt að jökli og komust
fyrir upptök árinnar með því að
fara yfir jökulinn. Héldu þeir svo