Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1955, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1955, Page 9
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 197 Eyðilegging í borginni Jérémie á Haiti eftir að fellibylurinn fór þar yfir. regn og ár flæddu yfir bakka sína. Eftir að fellibylurinn fór yíir Haiti stefndi hann í norðnorðvestur með 25 hnúta hraða að meðaltali, en það er 12% m/sek. Til saman- burðar má benda á, að beztu sprett- hlauparar heimsins hlaupa 100 m. á rúmlega 10 sek., hraði þeirra er því 10 metrar á sekundu eða 20 hnútar. Nú sagði Veðurstofan banda- ríska, að fellibylurinn mundi hægja ferðina og sveigja til norð- austurs, eins og fellibylja er vani, þegar þeir eru komnir inn yfir land. Einna helzt var búizt við, að hann mundi taka stefnu í norð- austur við Alleghany-fjöll og fara síðan yfir Nova Scotia. En Hazel, þessi kynjaskepna, fylgdi hvorki lögum né spám mannanna, heldur jók nú hraðan um helming og geystist nú beint norður með 50 hnúta hraða, böðl- aðist yfir f jöll og firnindi og klukk- an 11 að kvöldi 15. október fór miðjan yfir Torontoborg í Kanada. Þar var fólk alveg óviðbúið þess- um ósköpum, enda hafði fellibylur ekki farið um þessar slóðir í manna minni. Toronto er í Ontario- fylki, sem er eitt aðalfylki Kan- ada. Það var áætlað, að um 94 manns hafi farizt, og tjónið var áætlað um 100 milljónir dollara. Samfara þessu fylgdi steypiregn eða 183 mm., sem var það mesta í sögu fylkisins. Árnar Don og Humber ílæddu yfir bakka sína og sópuðu burt brúm og húsum t. d. sópuðust 14 hús burt við Raymore Drive í Toronto og 35 manns, sem í húsunum bjuggu, fórust. Á tæpum sólarhring, frá því að fellibylurinn fór yfir ströndina í Karolinafylkjunum í Bandaríkjur- um og þar til hann eyddist skyndi- lega við suðurenda Hudsonflóa, höfðu 176 manns látið lífið og tjón- ið var áætlað rúmlega 600 milljón- ir dollara eða rúmlega 9000 milj- ónir ísl* króna. Samanlagt hafa því tæplega 300 manns farizt af völdum þessa felli- byls á Haiti, í Bandaríkjunum og Kanada, og tjónið hefur sennilega orðið samanlagt rúmlega 10.000 miljónir ísL króna. Línuritió sýnir hvernig loft- þrýstingurinn féll mjög snögg- lega á undan miðju fellibylsins og steig jafn- snöggt á bak við miðjuna. Fellibyljir myndast aðallega yfir Norður-Atlantshafi skammt norð- ur af miðbaug. Þeir hreyfast venju- lega vestur á bóginn en breyta svo um stefnu og sveigja til norðvest- urs og að lokum til norðausturs og hafa stundum komizt alla leið til Islands, en þá eru þeir venjulega orðnir að djúpum og víðáttumikl- um lægðum. Þeirra verður venju- lega vart í ágúst, september og október. Fyrsti fellibylurinn á árinu 1954 myndaðist í júlí og olli flóðum í Texas og Mexico. Það má segja, að sá fellibylur hafi fæðst löngu fyrjr tímann, enda er það óvenjulegt að fellibyljir komi svo snemma. Versti fellibylurinn, sem kom á undan „Hazel“, var sennilega sá, sem skall á Nýa-Englandi 21. sept. 1938. Þá fórust 628 manns og yíir 1000 manns slösuðust, einnig varð mikið eignatjón. Fellibylur er að lögun sem hring- ur eða sporbaugur, og fylgir hon- um steypiregn og fárviðri, en í miðjunni, sem kallast „auga“, er logn og heiðskír himinn. Þegar „augað“ fer yfir kemur svikahler, veðurofsann lægir, og það styttir upp, og sólin skín aftur en svo byrjar fárviðrið aftur og þá venju- lega af þveröfugri átt við það, sem áður var. Þótt einkennilegt megi virðast, þá er orkan, sem felst í einum slík-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.