Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1955, Síða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 03.04.1955, Síða 10
198 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Sigurður Þorsteinsson bankaritari: Imbrudagar um fellibyl, mikið minni en í djúpri lægð, sem til dæmis kemur hing að upp að ströndum íslands. Við skulum taka dæmi úr dag- lega lífinu til samanburðar og út- skýringar á þessu fyrirbæri. Ef við sitjum við glugga og sólin skín á okkur, er það ósköp þægilegt en ef við tökum brennigler, sem er þó mikið minna að flatarmáli en glugginn og látum sólargeislana falla gegnum brenniglerið á hend- ina, þá finnum við innan skamms til sviða, sem verður að lokum ó- þolandi. Samt er sá hluti sólarljós- ins, sem skín gegnum brennigler- ið, aðeins lítið brot af því, sem kemur gegnum gluggann, og ekki eykst hitagildi sólarljósins við það að fara gegnum brenniglerið Það sem hefur gerzt er aðeir.s þetta: orku hefur verið safnað á minna svæði en áður og áhrifin verða því meiri. Þannig er það líka með fellibvl. Lausn orkunnar, sem býr í felli- bvlnum, gerist á miklu takmark- aðra svæði og mun örar en í venju- legri lægð. Að lokum má benda á, að áður- nefndur fellibylur hafði áhrif hér upp á íslandi, þó að hann væri svona langt í burtu. Veðurstofur á flugvöllum í Bandaríkjunum og Kanada byrj- uðu að spá áhrifum af fellibylnum í tæka tíð, og það olli því, að er- lendar farþegaflugvélar völdu þann kostinn að fara um Kefla- víkurflugvöll. Frá miðnætti 14. október þar til kl. 18 þann 15. lentu 15—20 franskar, ítalskar, enskar og bandarískar flugvélar á Keflavík- urflugvelli, en þar v?r síðan á- kveðið, hvernig mætti hezt forð- ast það, að fljúga í gcgnum felli- bylinn. Stóru flugvélarnar gátu auðvit- að flogið fyrir ofan óveðrið, en samt varð að athuga nákvæmlega lendingarskilyrði á ákvörðunarstað TMBRUDAGAR eru meðal hinna elztu kirkjuhátíða, sem hátíðlegar eru haldnar. Þrátt fyrir það er svo komið, að hér á landi eru þeir að gleymast að mestu leyti með yngri kvnslóðinni. Á 3. öld er þegar farið að halda þá hátíðlega, og hvað helgisiðaform snert- ir eru þeir strax á 4. öld komnir í bað horf, sem enn þann dag í dag er notað, þar sem þeir eru hátíðlegir haldnir. Til að skilja hlutina, verðum við fyrst að athuga uppruna þeirra, sögu og þýðingu. Og skulum við nú athuga lítið eitt þessi atriði hvað snertir Imbrudaga. Upprunalega eru þeir uppskeruhá- tíðir meðal heiðingja, til dýrðar goð- um þeirra. Og eins meðal gyðinga, til dýrðar Guði. Þessar hátíðir mvndast um þrjú aðaluppskerutímabil Austur- landabúa, en þau eru: hveitiuppskeran að sumarlagi, vínuppskeran að haust- lagi, olífuuppskeran að vetrarlagi. — Hugmynd sú er síðan liggur að baki hátíða þessara er, að þakka Guði gjafir hans síðustu mánuðina og fórna honum hluta af uppskerunni, þ. e. frumgróða jarðar, í bæn um áframhaldandj gæzku og gjafmildi. Þegar svo kristnin ryður sér til rúms í heiminum og helgisiðir hennar fara að mótast, kemur þar að, að brauð búið til úr hveiti, vín búið til úr ávexti vínviðarins og olíur unnar úr ávexti olífuviðarins, skipa veglegan sess við hvers konar helgiathafnir. Af þessu leiðir svo að kirkjan tekur upp á sína arma þessar förnu hátíðir, en færir þær aðeins í kristið form. Er fram líða stundir bætir svo kirkjan enn einni hátíð við, sem sé að sumar- lagi og síðan verða þessar hátíðir svo og vinda á flugleið eins og venja er. (Heimildarrit: bandarisku tíma- ritin Time 25. október 1954 og Wcatherwise, fcbrúarheftið 1955. Einnig er stuðzt við dagblöð frá Toronto, Kanada og veðurkort gerð á veðurstofunni á Keflavík- urflugvelli). haldnar ársfjórðungslega, sem á latínu kallast „Quattuor Tempora". Hið lat- neska heiti styttist snemma í meðför- unum í „Quatempor", en það á enn eftir að vera skorið niður í „Ember“ eða „Imbru“. Hljóðbreytingar verða einnig, eins og t. d. „Quatember", en þannig er þetta heiti á þýzku máli og „Quatertemper" á hollenzku. Englend- ingar stytta það svo niður í „Ember“ sbr. Ember Days og skyldleikinn með danska heitinu „Tamper“ og latínunni „Tempora" er auðsær. Hvað íslenzka heitið snertir er svo aftur um tvo möguleika að ræða og er annar sá, að „Emv'e-“ íslenzkist í „Imbru", en hitt er þó líklegra að engilsaxneska heitið „Ymbren" sé móðurorð íslenzka heit- isins. Á 4. öld voru sem sagt hátíðar þessar búnar að fá á sig kristið form, auk þess sem 3 ákveðnir vikudagar voru nú helgaðir þeim; miðvikudagur, föstu- dagur og laugardagur, þeirrar viku er til var valin. En þær voru: ein í dec- ember (vetur), ein á föstunni (vor), ein eftir hvítasunnu (sumar) og ein í september (haust). Miðvikudagurinn var það sem kalla má dagur minninganna. Á honum var minnzt gjafa þeirra andlegra og tím- anlegra er hlotnazt höfðu frá Guði síðasta ársfjórðunginn. Helzta fordæm- ið um slíkt var María Mey, sem geymdi alla þessa hluti í hjarta sér. Miðviku- dagsmessan var því ávallt lesin í Marie Maggiore kirkjunni í hinni kristnu Róm. Föstudagurinn var dagur yfirbóta og iðrunar fyrir drýgðar syndir á seinasta ársfjórðungi. Á þessum tímum voru stórsyndarar settir út af sakramentinu, sem kallað var, þ. e. a. s. þeir máttu ekki meðtaka altarissakramentið. Og þar eð þcir voru sér þess fyllilega með- vitandi að altarissakramentið var óað- skiljanlegur hluti af messunni, þýddi það fyrir þá, að þeir gátu ekki tckið þátt í messufóminni. Eftir að þeir höfðu gcrt yfirbót, var þeim á ný veitt- ur aðgangur að hinu kristilega sam- félagi, samfélagi heilagra, við sátta-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.